„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk“

Fyrrum leið­togi Sví­þjóð­ar­demókrata fagnar inn­göngu Mið­flokks­ins í ECR-flokk­inn. Flokk­ur­inn hefur beðist afsök­unar á tengslum við nýnas­isma og ver nú sænsku rík­is­stjórn­ina falli.

„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk“
Mattias Karlsson Helsti hug­mynda­fræð­ingur Sví­þjóð­ar­demókrata fagnar Mið­flokknum sem syst­ur­flokki. Mynd: Esquilo

Mattias Karlsson, þing­maður Sví­þjóð­ar­demókrata og fyrrum leið­togi flokks­ins, fagnar inn­göngu Mið­flokks­ins í ECR-flokk­inn, Evr­ópu­flokk íhalds­flokka.

„Sví­þjóð­ar­demókratar hafa í dag form­lega eign­ast íslenskan syst­ur­flokk,“ skrifar Karlsson á sam­fé­lags­mið­il­inn X. „Á sama tíma stíga Sannir Finnar og Dan­merk­ur­demókratar nýtt skref til að stað­festa holl­ustu sína við ECR-flokk­inn. Skref sem SD tók árið 2019, en var lengi vel einn á Norð­ur­lönd­unum. Góður dagur fyrir nor­ræna íhalds­stefnu og nor­ræna íhalds­sam­vinnu á evr­ópskum vett­vangi.“

Eins og Heim­ildin greindi frá á þriðju­dag er Mið­flokk­ur­inn orð­inn form­legur með­limur ECR-flokks­ins en Evr­ópu­flokk­ur­inn til­kynnti um aðild hans ásamt Sönnum Finnum í Finn­landi og Dan­merk­ur­demókrötum í Danmörku. Flokk­ur­inn er fjár­magn­aður af Evr­ópu­sam­band­inu að hluta en vill breyta ESB til að draga úr umsvifum þess með áherslum á full­veldi þjóð­ríkja. Á meðal ann­arra aðild­ar­flokka eru Lög og regla í Póllandi, Bræðra­lag Ítalíu, sem er flokkur Giorgiu Meloni for­sæt­is­ráð­herra, og Sví­þjóð­ar­demókratar. Á heims­vísu eru …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Dr. Sigmundur Davíð og hjörð hans eru greinilega komin í AFAR vafasaman félagsskap
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár