Bandamaður Trumps segir næsta stríð liggja fyrir

„Dagar þeirra eru taldir,“ segir þing­mað­ur­inn Lindsey Graham sem lýsir umsnún­ingi í utan­rík­is­stefnu Repúblik­ana frá fyrri stefnu Trumps.

Bandamaður Trumps segir næsta stríð liggja fyrir
Boðar næsta stríð Lindsey Graham, öld­unga­deild­ar­þing­maður Banda­ríkj­anna, talar við und­ir­ritun frum­varps í for­seta­skrif­stof­unni í Hvíta hús­inu þann 3. febr­úar 2026 í Washington. Mynd: AFP

Lindsey Graham, öld­unga­deild­ar­þing­maður í flokki Repúblik­ana frá Suður-Karólínu, segir liggja ljóst fyrir hvert næsta stríð Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta verður.

Trump fyr­ir­skip­aði um helg­ina stóra árás á Íran, sem stendur enn yfir, þar sem þjóð­ar­leið­tog­inn Aya­tollah Khameini var drep­inn, eins og flestir hugs­an­legir eft­ir­menn hans, að sögn for­set­ans.

Donald Trump hefur áður gagn­rýnt for­vera sína fyrir stríð og sér­stak­lega þau sem stefna að stjórn­ar­skiptum. Hann titl­aði sig „frið­ar­for­seta“.

Lindsey Graham lýsti og hrós­aði allt annarri stefnu í við­tali við Fox News. „Íranska stjórnin. Móð­ur­skip alþjóð­legrar hryðju­verka­starf­semi er við það að hrynja. Skip­stjóri skips­ins, Aya­tollah, er stein­dauður.“

Hann sagði að Trump væri „gull­stað­all“ utan­rík­is­stefnu. Hann hrós­aði Trump fyrir að „ljúka verki“ Ronalds Reagan, fyrr­ver­andi for­seta, og benti á Nicolas Maduro, nú fyrr­ver­andi leið­toga Venes­ú­ela, sem sönnun fyrir vel heppn­aðri stefnu, en hann var hand­tek­inn af banda­rískri sér­sveit í djarfri hern­að­ar­að­gerð í árs­byrjun.

„Ég er mik­ill aðdá­andi Ronalds Reagan, en ég er hér til að segja ykkur að Donald Trump er gull­stað­all­inn fyrir repúblik­ana, kannski hvaða for­seta sem er, þegar kemur að utan­rík­is­stefnu,“ sagði Graham. „Maduro? Allir töl­uðu um hann; en Donald Trump er búinn að koma honum í fang­elsi!“ sagði Graham og bætti við:

„Kúba er næst. Þeir munu falla. Þetta komm­ún­íska ein­ræð­is­ríki á Kúbu? Dagar þeirra eru taldir.“

Vildi að Íslendingar ræddu við Graham

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, nefndi sér­stak­lega Lindsey Graham í við­tali á RÚV í jan­úar þegar hann lagði til að Íslend­ingar rækt­uðu sam­bandið við Banda­ríkin „á mjúkan hátt“, með því að ræða við aðila í kringum Donald Trump. 

„Það er hægt að gera það með ýmsum hætti. Það er hægt að fara þangað og hitta þar þing­menn, eins og Lindsey Graham og Angus King og Susan Collins og ýmsa aðra,“ sagði hann. „Kannski ættum við að beita þeirri þum­al­putta­reglu á næstu miss­erum að fyrir hvern einn fund sem er tek­inn í Brussel þá þurfi að taka tvo fundi í Washington, meðan þessi stormur gengur yfir.“

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þar kemur hinn sanni Framsóknarmaður upp í fyrverandi forseta vorum, rassasleikingar bestar, engin afstaða.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár