Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði í dag að slíta viðskiptasambandi við Spán, eftir að vinstri stjórn landsins neitaði að leyfa bandarískum flugvélum að nota bækistöðvar sínar til að ráðast á Íran og mótmælti auknum framlögum til varnarmála innan NATO.
„Spánn hefur verið hræðilegur,“ sagði Trump við fréttamenn þegar hann hitti Friedrich Merz, kanslara Þýskalands í Hvíta húsinu.
„Við ætlum að slíta öllum viðskiptum við Spán. Við viljum ekkert með Spán hafa.“
Trump benti á að Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, hefði opinberlega neitað að taka þátt í loforði bandalagsþjóða NATO um að auka útgjöld til varnarmála í fimm prósent af vergri landsframleiðslu, en það eru þau framlög til varnarmála sem Trump hefur þrýst á um og segir Bandaríkin bera of miklar byrðar.
Óljóst er hvaða vald Trump hefði til að „slíta“ viðskiptum við Spán, eftir að Hæstiréttur ógilti notkun hans á neyðarheimildum til að leggja handahófskennda tolla á önnur lönd.
Jose Manuel Albares, utanríkisráðherra Spánar, sagði fyrr að ríkisstjórn hans myndi aðeins leyfa notkun flotastöðvarinnar í Rota og Moron-herstöðvarinnar fyrir aðgerðir sem samræmdust sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ósáttur við Breta vegna „heimskulegu eyjunnar“
Trump sagðist líka vera óánægður með Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sem hefur ekki tekið þátt í árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran en leyfði þó bandarískum hersveitum að nota breskar herstöðvar.
„Ég er ekki ánægður með Bretland,“ sagði Trump.
„Það tók okkur þrjá, fjóra daga að finna út hvar við gætum lent,“ sagði Trump.
Bretland, sem hefur verið traustur bandamaður Bandaríkjanna í báðum heimsstyrjöldunum og í stríðunum í Írak og Afganistan, ákvað að taka ekki þátt í árásinni á Íran sem Trump hóf ásamt Ísrael á laugardag.
Starmer sagði að bandarískar orrustuþotur gætu notað tvær breskar herstöðvar í „sérstökum og takmörkuðum varnartilgangi“ – aðra í Gloucestershire í vesturhluta Englands og hina í sameiginlegri herstöð Bretlands og Bandaríkjanna á Diego Garcia í Indlandshafi.
Starmer sagði að Bandaríkjunum væri ekki heimilt að nota breskar herstöðvar á Kýpur, en ein þeirra varð fyrir árás dróna af íranskri gerð.
„Það tók okkur þrjá, fjóra daga að finna út hvar við gætum lent. Það hefði verið mun þægilegra að lenda þar, í stað þess að fljúga marga aukatíma,“ sagði Trump og virtist vísa til Diego Garcia.
Trump hefur skipt ítrekað um skoðun en á endanum gagnrýnt Starmer fyrir að samþykkja að skila Chagos-eyjum, þar sem Diego Garcia er og þar sem Bretar ráku íbúana burt, til Máritíus og leigja herstöðina í staðinn.
„Ég verð að segja að Bretland hefur verið mjög, mjög ósamvinnuþýtt með þessa heimskulegu eyju sem þeir eiga,“ sagði Trump við hlið Friedrich Merz.
„Þetta er ekki Winston Churchill sem við erum að eiga við,“ sagði Trump.
Merz styður stríðið
Merz lýsti yfir stuðningi við stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Hann sagðist þó vona að því lyki bráðlega, þar sem það væri að skaða heimshagkerfið.
„Þetta er auðvitað að skaða hagkerfi okkar. Þetta á við um olíuverð og þetta á líka við um gasverð. Þess vegna vonumst við öll til þess að þessu stríði ljúki sem fyrst,“ sagði Merz við fréttamenn.















































Athugasemdir (2)