Þegar hægrið vildi skoða ESB, evru og þjóðaratkvæðagreiðslu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son vildu skoða ESB-umsókn og upp­töku evru eftir banka­hrun þar til vinstri­st­jórn var mynduð. Þeir lof­uðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eftir að þeir komust í rík­is­stjórn en annar leiðir nú bar­áttu stjórn­ar­and­stöð­unnar gegn henni og hinn stýrir Samtökum atvinnu­lífs­ins.

Þegar hægrið vildi skoða ESB, evru og þjóðaratkvæðagreiðslu
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son Formenn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks kynntu nýja rík­is­stjórn við Laug­ar­vatn 2013 og lof­uðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB. Mynd: Pressphotoz

„Bjarni Bene­dikts­son og Illugi Gunn­ars­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vilja að Ísland hefji aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið og að ákvörðun um inn­göngu verði borin undir þjóð­ar­at­kvæði.“ Svona hófst for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins 13. des­em­ber 2008.

Þarna hafði Ísland nýlega gengið í gegnum banka­hrun, rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar var enn við völd, löskuð þó, og þeir Bjarni og Illugi ungir og upp­renn­andi í þing­flokki þess fyrr­nefnda. Mikil óvissa var uppi um fram­tíð íslensks efna­hags­lífs og íslensku krón­unnar, en gengi hennar hafði hríð­fallið mán­uð­ina á undan sem þrátt fyrir verð­bólgu­bál gaf vonir um sterk­ari stöðu útflutn­ings­greina.

„En sé horft til lengri tíma er hætt við að krónan verði okkur fjötur um fót,“ skrif­uðu Bjarni og Illugi. „Sá sveigj­an­leiki sem krónan veitir okkur til að kljást við afleið­ingar mis­taka í hag­stjórn eða til að bregð­ast við ytri áföllum á sér því miður þá skugga­hlið að vera sveiflu­vald­andi og geta ýtt undir óstöð­ug­leika í hag­kerf­inu. Óstöð­ugur gjald­mið­ill …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er þetta sem er pólitík, eitt í dag og annað á morgun. Svo eru tíkur þannig að þær ellta þann sem gefur þeim að éta.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár