Áfengistengd heilabilun getur svipt fólk skammtímaminni

Eng­il­bert Sig­urðs­son geð­læknir segir mik­il­vægt að und­ir­búa starfs­lok með virkni, félags­legum tengslum og rútínu til að draga úr ein­mana­leika. Heilsa og ætt­ar­saga skipta máli, en aukin vín­drykkja í hópnum veldur áhyggjum fyrir ein­stak­linga og heil­brigð­is­kerfið.

Áfengistengd heilabilun getur svipt fólk skammtímaminni
Dagleg neysla Vín­drykkja er orðin sjálf­sagð­ari í dag­legu lífi, segir Eng­il­bert, sem bendir á að áhrif frá fjöl­miðlum og mark­aðs­setn­ingu áfengis geri hana að eðli­legum hluta hvers­dags­ins. Mynd: Golli

Eng­il­bert Sig­urðs­son, geð­læknir og pró­fessor í geð­lækn­is­fræði, segir áríð­andi að fólk und­ir­búi þriðja ævi­skeiðið svo­kall­aða, þegar það lætur af störfum vegna ald­urs. Hann segir helstu áskor­anir vera ein­mana­leika og van­virkni og því mik­il­vægt að fólk finni sér eitt­hvað að gera, virki tengsl og komi sér upp rútínu, félags­legi þátt­ur­inn sé flestum mjög mik­il­vægur þegar dag­legum vinnu­tengdum sam­skiptum lýkur. Heilsa og ætt­ar­saga um heilsu­brest eru einnig þættir sem eðli­legt er að horfa til þegar starfs­lok nálg­ast. Vín­drykkja hefur auk­ist hvað mest hjá þessum ald­urs­hópi, eins og fram kom í leið­ara Eng­il­berts í mars­tölu­blaði Lækna­blaðs­ins og segir hann að henni fylgi vanda­mál, bæði félags­leg og heilsu­fars­leg og sé áskorun fyrir heil­brigð­is­kerfið. 

Áfengisneysla er stöðugt að aukast meðal eldra fólks

Aðspurður segir Eng­il­bert að ein­mana­leik­inn og að finna sér eitt­hvað að gera frá degi til dags séu aðkallandi þættir sem fólk á þessu skeiði standi gjarnan frammi fyrir. Félags­leg ein­angrun fylgir …

Kjósa
70
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Íslenska vinnu mætti halda að væri eitthvað eitrað fyrir manneskjuna fyrst að hún missir við atvinnulífið hæfileikann til að hugsa um sjálfa sig... kannski breytir atvinnulífið mörgum manninum úr vitsmunaveru í einfalt húsdýr sem ætti svo bara að setja í húsdýragarðinn eftir að farið er á eftirlaun.
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Fasisti
    -1
    • Þorkell Egilsson skrifaði
      Já sennilega eru fleiri en þú ekki sáttir við að þurfa að leggja frá sér flöskuna og fara í meðferð með sínum áunna etanólvanda, allavega ekki með brosi á vör.
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár