Myndir ársins 2025: Golli hlaut bæði verðlaunin

Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar, Kjartan Þor­björns­son, þekktur sem Golli, hlaut bæði verð­laun Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands um myndir árs­ins.

Myndir ársins 2025: Golli hlaut bæði verðlaunin
Frétta­mynd árs­ins „Við þekkjum öll sjálf­una, hvers­dags­lega athöfn sem end­ur­tekur sig enda­laust – óform­leg, næstum kjána­leg – en þessar fjórar konur virð­ast engu að síður vera með­vit­aðar um það afar tákn­ræna og sögu­lega and­ar­tak sem þær eru hluti af,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar vegna vals á frétta­mynd árs­ins. Mynd: Golli

Kjartan Þor­björns­son, þekktur undir nafn­inu Golli, hlaut í dag verð­laun fyrir bæði frétta­mynd árs­ins og mynd árs­ins við opnun ljós­mynda­sýn­ing­ar­innar Myndir árs­ins 2025 í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur. Verð­launin eru veitt af Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lagi Íslands. 

Mynd árs­ins er myndröð Golla sem fjallar um líf Oscars, ungan pilt sem senda átti úr landi. Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar segir að myndröðin minni okkur á að á bak við skrifræð­is­kerfi sam­fé­lags­ins leyn­ist alltaf raun­veru­leg manns­líf, og að hún dragi áhorf­and­ann inn í ferða­lag sem veki spurn­ingar um grunn­gildi Íslands.

Frétta­mynd árs­ins sýnir sögu­legt augna­blik þegar fjórar helstu valda­stöður lands­ins voru skip­aðar konum: Halla Tóm­as­dóttir for­seti, Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri og Guðrún Karls Helgu­dóttir biskup. Myndin sýnir þær fjórar að taka sjálfs­mynd saman. Dóm­nefndin lýsir mynd­inni sem tákn fyrir harða alda­langa bar­áttu fyrir jafn­rétti kvenna. 

Dómnefnd árs­ins skip­uðu Árni Torfason, Arnaldur Hall­dórs­son, Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir og Mads Nissen, þre­faldur World Press Photo vinn­ings­hafi, sem sat í for­mennsku.

Á sýn­ing­unni Myndir árs­ins 2025 eru 104 myndir frá sextán blaða­ljós­mynd­urum, valdar úr rúm­lega 600 inn­sendum myndum. Sýningin er flokkuð í sex flokka: frétta­myndir, dag­legt líf, íþrótta­myndir, por­trett­myndir, umhverf­is­myndir og myndaraðir.

Sýningin verður opin í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur til 17. maí 2026. Samhliða henni kemur út bók með öllum myndum sýn­ing­ar­innar, sem er til sölu í safn­búð safns­ins.

Rök­stuðn­ingur dóm­nefndar vegna vali á mynd árs­ins er eft­ir­far­andi: 

„Margir þurfa tíma til að átta sig á sög­unni, þurfa bak­sýn­is­spegil til að átta sig á því sögu­lega eða umbreyt­andi and­ar­taki sem átti sér stað fyrir framan þá. En fram­úr­skar­andi ljós­mynd­ari er öðru­vísi. Hann sér and­ar­takið fyrir. Berst til að koma sér í rétta stöðu. Og bíður þol­in­móður þangað til stundin rennur upp og rétt er að smella af. Þessi sögu­lega stund, sem hlaut verð­launin Frétta­mynd árs­ins 2025, á sér langan aðdrag­anda. Myndin sýnir fyrstu stund­ina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valda­stöð­urnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tóm­as­dóttir for­seti, Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri í Reykja­vík og Guðrún Karls Helgu­dóttir biskup sitja fyrir á sjálfs­mynd sem virð­ist tekin í hita augna­bliks­ins. Við þekkjum öll sjálf­una, hvers­dags­lega athöfn sem end­ur­tekur sig enda­laust – óform­leg, næstum kjána­leg – en þessar fjórar konur virð­ast engu að síður vera með­vit­aðar um það afar tákn­ræna og sögu­lega and­ar­tak sem þær eru hluti af. Að bak við brosið séu þær þarna sem full­trúar harðrar alda­langrar bar­áttu fyrir jafn­rétti kvenna sem er hvergi lokið.“

Rök­stuðn­ingur dóm­nefndar við val á frétta­mynd árs­ins er eft­ir­far­andi:

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár