Óttuðust á hverjum degi að hann yrði tekinn
Brosmildur strákur Oscar lifði í mik­illi óvissu sem barn á flótta en er nú orð­inn íslenskur rík­is­borg­ari og órjúf­an­legur hluti af hafn­firskri fjöl­skyldu. Mynd: Golli

Óttuðust á hverjum degi að hann yrði tekinn

Svavar Jóhanns­son og Sonja Magn­ús­dóttir segja að Oscar Andreas Boga­negra Florez verði alinn upp alveg eins og hin börnin þeirra. Oscar hlaut rík­is­borg­ara­rétt í júlí eftir langa bar­áttu. Heim­ildin fékk að skyggn­ast inn í líf fjöl­skyld­unnar sem hefur lítið látið fyrir sér fara eftir mikla umræðu í þjóð­fé­lag­inu í vor.

Svavar Jóhanns­son og Sonja Magn­ús­dóttir kynnt­ust Oscari Andreas Boga­negra Florez fyrst árið 2023 en þá var hann skóla­fé­lagi yngri barna þeirra hjóna. „Hann byrj­aði að venja komur sínar hérna á heim­ilið og var fljót­lega orð­inn dag­legur gestur,“ segir Sonja. Hjónin hrifust strax af drengnum sem er vina­margur, vel lið­inn og brosmildur. 

Þau vissu þá þegar að hann væri barn á flótta sem væri hér á landi með föður sínum. „En fljót­lega fór okkur að gruna að eitt­hvað væri að,“ segir Sonja um sam­skipti þeirra feðga. „Hann sótti mikið í að vera hérna. Hann fékk oft að leggja sig og svaf rosa mikið og þá fór mig að gruna að hann væri ekk­ert að sofa á næt­urnar.“ Svavar bætir við: „Hann var hérna allan dag­inn eftir skóla og vildi fara sem sein­ast heim á kvöldin.“ 

Fjöl­skyldu­sam­ein­ingOscar byrj­aði að venja komur sínar á heim­ilið og var …
Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Ingimundardottir skrifaði
    Þið gerið mig stolta. Takk kæra fjölskylda og allir sem reru í sömu átt og þið
    7
  • Margrét Andrésdóttir skrifaði
    Flott grein og mættu taka fleiri börn inn
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár