Rósin lokar á Vinstrið

Eftir upp­nám í kjöl­far próf­kjörs hefur Sam­fylk­ing­ar­fé­lagið Rósin ákveðið að standa áfram að baki flokknum í stað þess að hefja sam­starf við Vinstrið.

Rósin lokar á Vinstrið
Guðný Maja Riba Vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­fé­lags­ins Rós­ar­innar und­ir­ritar yfir­lýs­ingu fyrir hönd stjórnar félags­ins, þar sem horfið er frá til­raun for­manns hennar til að hefja sam­starf við Vinstrið. Mynd: HULDA MARGRET

Stjórn Rós­ar­innar, félags innan Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lokið við­ræðum við stjórn­mála­aflið Vinstrið um mögu­legt sam­starf vegna kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Nið­ur­staðan er að Rósin mun fylkja sér áfram að baki Sam­fylk­ing­unni, fremur en að ganga til liðs við Vinstrið.

Aðdrag­andi við­ræðn­anna var ósætti með­lima Rós­ar­innar, og for­manns hennar, Guð­mundar Inga Þór­odds­sonar, með að hann hlyti ekki sæti ofar­lega á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í maí. Rósin sagði sig úr full­trúa­ráði Sam­fylk­ing­ar­innar í kjöl­farið. Þá sagð­ist Guð­mundur Ingi vera „með plan“ og hóf síðan við­ræður við Vinstrið, áður nefnt Vor til vinstri, sem er sam­einað fram­boð Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, sem kjörin var fyrir Sós­í­alista, og Vinstri grænna.

Í yfir­lýs­ingu Rós­ar­innar í dag, sem er und­ir­rituð af vara­for­manni hennar, Guðnýju Maju Riba, er nið­ur­staðan gerð ljós. 

„Að und­an­gengnu mati hefur stjórn Rós­ar­innar ákveðið ein­róma að halda áfram starfi sínu innan Sam­fylk­ing­ar­innar og styðja hana í kom­andi kosn­ingum. Skýr vilji stjórnar er að vinna að festu, sam­stöðu og ábyrgri mál­efna­legri vinnu.“

Þá er vísað óbeint til umræðu um for­dóma gagn­vart for­manni Rós­ar­innar, sem er for­maður Afstöðu, félags fanga.

„Ferlið hefur verið lær­dóms­ríkt og und­ir­strikað mik­il­vægi opinnar umræðu um for­dóma og stöðu jað­ar­settra hópa í sam­fé­lag­inu. Rósin hefur um ára­bil lagt sitt af mörkum til þeirrar umræðu og mun halda þeirri vinnu áfram af ábyrgð og festu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Rósin óskar síðan Sam­fylk­ing­unni „til ham­ingju með öfl­ugan og fjöl­breyttan fram­boðs­lista“.

Athygli vakti í mynda­töku fyrir fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík í dag að Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri, sem hafn­aði í öðru sæti í próf­kjöri flokks­ins, var ekki við­stödd. Hún var sögð veik.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Fyrirsögn pistilsins gefur alranga mynd af atburðarrásinni en glögga mynd af afstöðu ritstjórnar Heimildarinnar til framboðs vinstrimanna.

    Atburðarrásin virðist hafa verið á þessa leið: Eftir ósætti um uppstillingu á lista Samfylkingarinnar, segir Rósin sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar. Formaður Rósarinnar, Guðmundur Ingi Þóroddsson segist í framhaldi munu leita eftir samstarfi við Vinstrið. Þá er kippt í spotta og stjórn Rósarinnar þvinguð til þess að snúa við blaðinu. Hún gefur út dæmalausa yfirlýsingu, þar sem hún étur ofan í sig fyrri gagnrýni, og óskar flokknum „til hamingju með öflugan og fjölbreyttan framboðslista“. Enn fremur segir þar að stjórn Rósarinnar standi einhuga að yfirlýsingunni, sem undirrituð er af varaformanni, en ekki formanni…

    Fyrir þá sem lesa fyrirsagnir er engu líkara en að Vinstrið hafi reynt að draga Rósina á tálar en Rósin skellt á nefið á þeim.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár