Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni

Ungt Mið­flokks­fólk hef­ur sótt við­burði er­lend­is tengda neti hægris­inn­aðra hug­veitna. Fram­bjóð­andi til borg­ar­stjórn­ar fór fyr­ir hönd Mið­flokks­ins á ráð­stefnu með Trump-áhrifa­vald­in­um James O’Keefe og hol­lensk­um aktíf­ista sem varð þekkt­ur fyr­ir hómó­fób­ísk fúkyrði og að syngja nas­ista­söngva.

Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni
Hlédís Maren og James O'Keefe Frambjóðandi Miðflokksins var í viðtali hjá Trump-tengdum aktívista.

Ungt Miðflokksfólk hefur undanfarið setið fundi erlendis þar sem áhrifavaldar úr MAGA-hreyfingunni og aktífistar úr evrópskum hægri-öfgahreyfingum deila með þeim sviðinu.

Frambjóðandi í 4. sæti á lista Miðflokksins til borgarstjórnar, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, hefur sem fulltrúi Miðflokksins sótt viðburði á vegum hugveitnanna New Direction og Nordic Sidebar á Norðurlöndunum. Nordic Sidebar er hugveita sem Katie Hagström, stjórnarmaður Nordic Republicans og milliliður við Trump-tengdu samtökin Turning Point, stýrir.

Á slíkum fundi í Helsinki í febrúar var Hlédís Maren í viðtali hjá James O’Keefe, alræmdum aktífista frá Bandaríkjunum sem hefur dreift fölskum upplýsingum um að forsetakosningunum 2020 hafi verið stolið frá Donald Trump.

Heimildin hefur áður greint frá því að alþjóðafulltrúi Miðflokksins sem einnig er í framboði í Reykjavík, Breki Atlason, sé Íslandsfulltrúi Students for Liberty, félags sem styrkt er í gegnum net alþjóðlegra samtaka sem fá fjármagn sitt að hluta frá bandarískum …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    MAGA is a pest and pandemic!
    5
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ha?er Altað komast aftur í gamla farið eins og áður fyrr?mer sýnist það á óllu svo hann Sigmundur greyið er þa laumunasisti eftir alt saman enda var kallinn aldrei ánægður með það að hafa mig í fjölskyldunni sinni þegar hann sá mig fyrstþótthannleti ekki á neinu bera
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Sækjast sér um líkir.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
5
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár