Ísrael drap tvo þriðju allra fallinna blaðamanna

Met­fjöldi blaða­manna voru drepnir á árinu 2025.

Ísrael drap tvo þriðju allra fallinna blaðamanna
Benjamín Net­anjahú For­sæt­is­ráð­herra Ísraels hefur leitt árásir á Gaza. Alls lét­ust 86 blaða­menn vegna árása Ísraels í fyrra. Mynd: JOE RAEDLE / GETTY IMAGES NORTH AMERICA

Met­fjöldi, eða 129 blaða- og fjöl­miðla­menn, létu lífið um allan heim árið 2025, sagði Nefnd til verndar blaða­mönnum (CPJ) í dag. Ísrael bar ábyrgð á um tveimur þriðju dauðs­fall­anna.

Þetta var annað árið í röð sem met var slegið í fjölda lát­inna blaða­manna og mann­skæð­asta árið síðan CPJ hóf gagna­öflun fyrir meira en þremur ára­tugum.

„Blaða­menn eru drepnir í met­fjölda á tímum þegar aðgangur að upp­lýs­ingum er mik­il­væg­ari en nokkru sinni fyrr,“ sagði Jodie Ginsberg, fram­kvæmda­stjóri nefnd­ar­innar, í yfir­lýs­ingu.

„Við erum öll í hættu þegar blaða­menn eru drepnir fyrir að flytja fréttir.“

Meira en þrír fjórðu allra dauðs­falla árið 2025 urðu á átaka­svæðum, sagði CPJ í skýrslu sinni.

Meira en 60 pró­sent af þeim 86 fjöl­miðla­mönnum sem féllu fyrir skotum Ísra­els­manna árið 2025 voru Palest­ínu­menn sem störf­uðu á Gaza, bætti nefndin við.

Ísra­els­her heldur því fram að hann beini aldrei vís­vit­andi spjótum sínum að blaða­mönnum.

Heim­ildin fjall­aði ítar­lega um dráp á blaða­mönnum á Gaza í umfjöllun síð­asta haust, þar sem nöfn og myndir þeirra föllnu voru birtar.

Fjöldi blaða­manna sem létu lífið í Úkraínu og Súdan jókst einnig árið 2025 miðað við árið áður.

CPJ benti á aukna notkun dróna, en 39 til­felli voru skráð, þar af 28 morð af völdum Ísraels á Gaza og fimm af völdum RSF-sveit­anna í Súdan.

Í Úkraínu létu fjórir blaða­menn lífið af völdum rúss­neskra her­dróna, sem er mesti fjöldi lát­inna blaða­manna í stríð­inu á einu ári síðan 15 létu lífið árið 2022.

Blaða­menn eru í sífellt meiri hættu vegna við­var­andi refsi­leysis, sagði CPJ, og benti á skort á gagn­sæjum rann­sóknum á morðum.

Í Mexíkó voru sex blaða­menn drepnir árið 2025 og öll málin eru enn óleyst. Á Fil­ipps­eyjum voru þrír blaða­menn skotnir til bana.

Aðrir voru drepnir í kjöl­far frétta­flutn­ings um spill­ingu, eins og bangla­desskur frétta­maður sem var höggv­inn til bana af grun­uðum aðilum sem tengd­ust svika­hring, sam­kvæmt skýrslu CPJ.

Svipuð dauðs­föll tengd skipu­lagðri glæp­a­starf­semi voru skráð á Indlandi og í Perú.

Í Sádi-Arabíu var þekktur dálka­höf­undur, Turki al-Jasser, tek­inn af lífi af rík­inu eftir að hafa verið sak­felldur fyrir nokkur brot sem CPJ líkti við „falskar ásak­anir um brot gegn þjóðar­ör­yggi og fjár­mála­glæpi“ sem not­aðar eru til að refsa frétta­mönnum.

Þetta var fyrsta skrá­setta morðið á blaða­manni í Sádi-Arabíu síðan Jamal Khas­hoggi lést árið 2018.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Enn og aftur með fullum stuðningi ríkis sem heldur að það sé lýðræðisríki, ríki sem hefur makalaus hreðjartök á heimsbyggðinni og allri sóun sem við þekkjum frá upphafi vega. Mannkynið ætlar að eyða sér þegandi og hljóðalaust fyrir örfáa hálvita sem sjá ekki fram fyrir budduna sína.
    1
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    No surprise! All faschistoide and colonial powers fear the media as a fourth column in a democratic state!
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er fátt sem að valdið óttast meira en að almenningur viti hvað þeir hafast að. Kannski verður sjálfstæð gagnrýnin hugsun partur af veröld sem var, altént verður það þannig ef við ýtum ekki á móti sem fyrst og sem fastast.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár