Hannes Hólmsteinn: „Því fleiri sjálfstæðisflokkar, því betra“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son segir erlendar hug­veitur greiða ferða­kostnað þátt­tak­enda á ráð­stefnum eins og þeim sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sótt með honum. Hugveita Hannesar hefur tengsl við sama net og hann seg­ist þekkja millj­arða­mær­ing­inn Charles Koch per­sónu­lega.

Hannes Hólmsteinn: „Því fleiri sjálfstæðisflokkar, því betra“
Robert Tyler og Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Hannes hefur skrifað fjölda rita fyrir hug­veit­una New Direction, sem Tyler starfar fyrir, en Tyler sótti leyni­fund Sig­mundar Davíðs með Repúblikönum.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus og starfs­maður Rann­sókn­ar­set­urs um nýsköpun og hag­vöxt, segir hug­veitu sína starfa með alþjóð­legu neti hug­veitna og stofn­ana sem Mið­flokk­ur­inn teng­ist nú í auknum mæli.

Ein þeirra er New Direction, hug­veita sem teng­ist ECR, Evr­ópu­flokki íhalds­manna og umbóta­sinna, sem Mið­flokk­ur­inn er nú í aðild­ar­ferli hjá. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur sótt fjölda funda á vegum New Direction og starfs­maður hug­veit­unnar, Robert Tyler, sat leyni­fund með honum og full­trúum frá Repúblikana­flokknum í Gauta­borg síð­asta sumar.

Hannes segir New Direction greiða ferða­kostnað fyrir þátt­tak­endur ráð­stefna eins og þeirra sem Sig­mundur Davíð hefur sótt. Sig­mundur Davíð hefur hins vegar engan slíkan kostnað skráð hjá sér í hags­muna­skrán­ingu þing­manna, þrátt fyrir að siða­reglur Alþingis kveði á um það.

Rann­sókn­ar­setur um nýsköpun og hag­vöxt (RNH) er hug­veita sem Hannes …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magni Hjálmarsson skrifaði
    Er orðið hugveita annað orð yfir áróður eða áróðursbragð? Það hefur líka verið talað um lýðskrum í umfjöllun Heimildarinnar um Miðflokkinn. Að þeir hafi verið að læra þá "list" á sérstökum námskeiðum í útlöndum. Er ekki hægt að komast að hinu sanna um þetta mál til að upplýsa íslenska kjósendur um hvaða vinnuaðferð flokkurinn notar við að afla sér fylgis?
    0
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hvernig er hægt að losna við svona mann eins og Hannes úr stjórnmálaumræðunni? Hans sjónarmið eru öll í þá átt að styðja auðvaldið og menn sem vilja sem mest græða á alþýðunni sem stritar til að komast af á tímum himinhárra vaxa og matvælaverðs. Stjórnun Sjálftökuflokksins á fjármálum landsinns undanfarna áratugi hefur verið hrein hörmung enda sumir þar (alls ekki allir) sem gera allt til að græða sem mest. Mér sýnist að Ari sé einn af þeim.
    Bankahrunið var bein afleiðing af fjálshyggjunni. Á því er enginn vafi. Þetta vilja menn eins og Hannes og þeir sem hann styður endurtaka. Ég aðhyllist norræna velferðakerfið. Ekki amerríska kerfið sem gerir ríka ríkari og fátæka fátækari. Mér sýnist Hannes og hans skoðabræður vilja kona á ameríska kerfið á Íslandi. .
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Áhugavert viðtal. Ekki að undra að SDG hafi brugðist ókvæða við, og ekkert munað hverja hann hitti, ef rétt er, að ESB fjármagni að verulegu leyti fundarkostnað þessara samtaka.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár