Býður sig fram til formennsku í VG

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­kona sem vék úr Vinstri græn­um vegna út­lend­inga­mála, er snú­in aft­ur og stefn­ir á for­manns­stól­inn.

Býður sig fram til formennsku í VG
Rósa Björk Brynjólfsdóttir Sagði sig úr Vinstri grænum 2020, en er snúin aftur og farin í formannsframboð. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna sem gekk til liðs við Samfylkinguna árið 2020, hefur tilkynnt um formannsframboð í VG.

Svandís Svavarsdóttir formaður hefur ákveðið að halda ekki áfram þegar landsfundur flokksins fer fram í byrjun mars. 

Rósa kveðst vilja bregðast við bakslagi í umhverfismálum, jafnréttismálum, mannréttindamálum og „forherðingu í útlendingamálum“.

Hún segir að í hægri slagsíðu íslenskra stjórnmála sé „nauðsynlegt að til staðar sé stjórnmálaafl msem veitir öfluga viðspyrnu frá vinstri“.

Rósa sagði sig úr Vinstri grænum árið 2020 eftir að egypsk flóttafjölskylda var flutt úr landi. 

Hér er tilkynning Rósu í heild sinni.

Eftir fjölmörg samtöl við félaga mína hef ég tekið þá ákvörðun um að bjóða fram krafta mína til forystu Vinstri hreyfingarinnar- græns framboðs á landsfundi í byrjun mars. 

Við í Vinstri grænum stöndum á tímamótum nú þegar við kjósum okkur nýja forystu. Við þau tímamót er einstakt tækifæri til að blása lífi í stefnumál og hugmyndafræði sem skipta okkur öll svo miklu máli, skerpa þau og jafnvel endurskapa. 

Við sjáum og upplifum bakslag í umhverfismálunum, jafnréttismálum og mannréttindamálum, og erum að horfa upp á ótrúlega forherðingu þegar kemur að útlendingamálum hér á landi. Ég heyri ákall eftir skýrri rödd sem veitir bakslaginu viðnám og fólk vill líka finna að það er til staðar framtíðarsýn sem byggir á von og fjölbreyttum tækifærum í samfélaginu. Að til staðar sé sameinandi rödd en ekki sundrandi og útilokandi.

Mín áherslumál ef ég næ kjöri sem formaður VG eru að styrkja og skerpa málflutning okkar í umhverfismálunum og standa styrkan vörð um mannréttindamálin. Vinna gegn vaxandi misskiptingu og fátækt og halda á lofti áherslum friðar og meiri samvinnu við líkt þenkjandi ríki á alþjóðasviðinu. 

Undanfarnar vikur er ég búin að eiga góð samtöl við félaga mína í VG um allt land og ég finn að fólk saknar að haldið sé kröftugar á lofti sjónarmiðum umhverfisverndar og mannréttinda. 

Það er einnig ljóst að félagshyggjufólk, í mörgum flokkum, þyrstir í afdráttarlausa afstöðu til þeirra vandamála sem stjórnmálin standa frammi fyrir. Þar sem spyrnt er fótum við mismun í samfélaginu og sundrandi orðræðu. Í hægrislagsíðu íslenskra stjórnmála er nauðsynlegt að til staðar sé stjórnmálaafl sem veitir öfluga viðspyrnu frá vinstri. 

Nú skulum við styrkja okkur um land allt og opna dyrnar fyrir nýjum félögum og ferskum vindum. Við skulum efla sjálfstraustið og horfa til framtíðar saman. 

Á morgun hefst spennandi forval hjá VG í Reykjavík fyrir sæti á sameinuðu framboði með Vori til vinstri fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Við erum að klára framboðslista á Akureyri, í Múlaþingi og í Norðurþingi og vonandi í Borgarbyggð, í Skagafirði og í Hafnarfirði líka. 

Ég er einlæglega spennt og hlakka mikið til að fara í uppbyggingu og viðspyrnu VG. Þar hef ég kynnst mörgu frábæru fólki og kærum vinum í gegnum tíðina; enda segi ég oft að klárasta og fyndnasta fólkið sé samankomið í þessari hreyfingu. 

Það verða brekkur og stundum súld, en sólardagarnir verða frábærir og miklu fleiri! 

Áfram gakk og áfram VG ! 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Það eru fábjánar sem styðja að efni séu sett í fólk og það pyntað.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár