Stýrivöxtum haldið óbreyttum eftir verðbólguskot

Vaxta­lækk­un­ar­ferli Seðla­bank­ans stöðv­ast eft­ir óvænta verð­bólgu vegna að­gerða rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Stýrivöxtum haldið óbreyttum eftir verðbólguskot
Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri vonaðist til þess að verðbólga hjaðnaði fyrir vorið, en kippur varð í síðustu mælingu. Mynd: Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25%. Ástæðan fyrir því að vaxtalækkunarferli er sett í bið er hækkun verðlags í janúar sem „megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum“ og verðhækkanir „á tiltölulega breiðum grunni“.

Ákvörðunin hefur töluverð áhrif á fjárhag margra landsmanna. Þetta þýðir að óverðtryggðir vextir á húsnæðislánum, sem eru almennt yfir 8%, eru ólíklegir til að lækka á næstunni. 

Um leið hækkar höfuðstóll verðtryggðra fasteignalána vegna verðbólgunnar á sama tíma og fasteignaverð lækkað síðustu tvo mánuði.

Seðlabankinn segir að „undirliggjandi verðbólguþrýstingur [sé] áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði.“

Þannig hefur verð á mat og drykk hækkað um 5,8% á einu ári, samhliða vaxandi hagnaði matvörukeðja. 

Peningastefnunefnd spáir enn lækkun verðbólgu framundan.

„Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er spennan í þjóðarbúinu horfin, útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt og að verðbólga hjaðni þegar líður á árið. Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast áfram yfir markmiði,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Ástæðan fyrir því að vextir voru ekki lækkaðir, eins og vonast hafði verið til fyrir áramót, er að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,38% í janúar ofan á 1,15% í desember, sem leiddi til þess að verðbólgan náði 5,2%, því mesta frá september 2024. Orsök hækkunar verðbólgunnar voru hækkun ríkisstjórnarinnar á vörugjöldum innfluttra bifreiða samhliða innleiðingu kílómetragjalds.

Eftir það spáði Landsbankinn spáði 0,25% hækkun stýrivaxta.

Áður höfðu forsvarsmenn Seðlabankans spáð hraðri hjöðnun verðbólgunnar.

„Það er það sem ég býst við, að verðbólga muni hjaðna hratt,“ sagði Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri við kynningu vaxtaákvörðunar 19. nóvember, þar sem stýrivextir voru lækkaðir um 0,25%.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár