Forsætisráðherra Grænlands: „Ég verð að trúa“

For­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, Jens-Frederik Nielsen, segir að unnið sé að sam­komu­lagi við Banda­ríkin, en hann þekki ekki inni­hald hugs­an­legs ramma­samn­ings sem for­seti Banda­ríkj­anna hefur vísað til. „Ef við getum ekki átt sam­skipti í réttum far­vegi þá er erfitt fyrir mig að vita hvað hefur farið fram.“

Forsætisráðherra Grænlands: „Ég verð að trúa“

For­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, Jens-Frederik Nielsen, hélt blaða­manna­fund fyrir erlenda blaða­menn sem staddir eru í Nuuk í dag. Þar sagði hann að unnið væri að sam­komu­lagi við Banda­ríkin, en hann þekki ekki inni­hald hugs­an­legs ramma­samn­ings. Forseti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, hefur sagt að sam­komu­lagi hafi verið náð vegna Græn­lands og að sá samn­ingur muni gilda að „að eilífu“. 

Prófsteinn á bandalag vestrænna þjóða

Fund­ur­inn fór fram í menn­ing­ar­mið­stöð Nuuk þar sem for­sæt­is­ráð­herr­ann ávarp­aði blaða­menn. Hóf hann fund­inn á að árétta að Grænland væri enn í miðju alvar­legra atburða, í stöðu sem græn­lenska þjóðin hafi aldrei viljað vera í. „Við finnum fyrir miklum þrýst­ingi á land okkar, banda­menn okkar og vini. Stuðn­ing­ur­inn frá Norð­ur­lönd­unum, Danmörku og Evrópu er ómet­an­legur. Við erum með­vituð um að stuðn­ing­ur­inn krefst mikls af vinum okkar og banda­mönnum og erum afar þakk­lát,“ sagði hann. 

Um leið sagð­ist hann gera sér grein fyrir því að það að verja alþjóða­lög og grunn­gildi lýð­ræðis snerti ekki aðeins Græn­lend­inga heldur sé það próf­steinn fyrir heil­indi vest­rænna banda­manna. Markmið Græn­lend­inga og vilji þeirra sé að við­halda frið­sömum sam­ræðum sem byggir á virð­ingu gagn­vart stjórn­ar­skrá þeirra, rétt­inum til sjálf­stæðis og alþjóða­lögum. 

Taka öryggismál alvarlega

Greindi hann frá því að banda­rískir emb­ætt­is­menn hafi fundað með utan­rík­is­ráð­herrum og sam­þykkt að halda áfram við­ræðum í lok­uðum sam­starfs­hópi sem vinnur að lausn vegna áhuga Banda­ríkj­anna á Græn­landi, án þessi að heil­indum Dan­merkur eða Græn­lands sé fórnað eða rétti þeirra til sjálf­stæðis.

Grænland taki örygg­is­mál á Norð­ur­slóðum alvar­lega og sé skuld­bundið NATO. Unnið verði að því að efla varnir svæð­is­ins, meðal ann­ars með langvar­andi upp­bygg­ingu verk­efna á vegum NATO, auk­inni hern­að­ar­við­veru og her­æf­ingum. 

„Ég trúi því að allir sem hafa stigið fæti á Grænland viti hvar við stöndum, en ég und­ir­strika það aftur: Grænland velur það Grænland sem við þekkjum í dag.“ Grænland sem er hluti af kon­ungs­veldi Dan­merkur og hefur rétt til sjálfs­stjórnar. „Það er ekki hægt að efast um vilja fólks­ins. Til að draga það saman: Við veljum kon­ungs­ríki Dan­merkur, við veljum Evr­ópu­sam­bandið, við veljum NATO.“

Staðan sem upp er komin sé ekki aðeins áskorun fyrir Grænland og Danmörku heldur snú­ist um skipan heims­ins. „Við Græn­lend­ingar erum frið­sælt fólk. Það birt­ist meðal ann­ars í því hvernig við nálg­umst heim­inn í kringum okkur, jafn­vel þótt óvissu­á­stand ríki. Við höfum og munum áfram sækj­ast eftir frið­sælu sam­tali, sem fer fram á réttum vett­vangi og eftir réttum boð­leiðum.“

Er Grænland öruggt?

Eftir að Jens-Frederik Nielsen lauk máli sínu gaf hann sér nokkrar mín­útur til þess að svara spurn­ingum. Blaða­maður CNN fékk orðið: Er Grænland öruggt núna? spurði hann. „Enginn nema Grænland og kon­ungs­ríki Dan­merkur hafa umboð til þess að semja um Grænland,“ svar­aði hann. „Varðandi sam­komu­lagið sem hefur verið vísað til þá veit ég ekki hvað það inni­felur. En ég veit að það er núna verið að vinna að lausn fyrir báða aðila. Við höfum sagt hér í Græn­landi að það eru rauðar línur, sem verður ekki farið yfir.“

Þar á meðal nefnir hann virð­ingu fyrir land­inu, alþjóða­lögum og sjálf­stæði Græn­lend­inga. Græn­lend­ingar eru reiðu­búnir að auka sam­vinnu þjóð­anna í efna­hags­málum og fleiri þáttum, en „það er eitt­hvað sem verður að ræða á grund­velli gagn­kvæmrar virð­ingar.“ Vilji sé til staðar til að gera miklu meira í þeim efnum. 

„Hvað það varðar að vilja eiga Grænland, þangað til í gær gátum við ekki úti­lokað neitt. Viljinn til að eiga Græn­lands birt­ist enn í orð­ræðu gær­dags­ins, en eins og ég segi þá höfum við frá upp­hafi sóst eftir því að eiga virð­ing­ar­fullt sam­tal sem fram fer á réttum vett­vangi.“ Nú sé það í sjón­máli. „Ég er þakk­látur fyrir það.“ 

Var ekki aðili að samtalinu

Aðspurður út í sam­skipti Donald Trump og Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra Græn­lands, segir hann: „Mér skilst að sam­ræður for­set­ans og Rutte hafi verið um sam­eig­in­leg mark­mið og þætti sem hægt er að sam­mæl­ast um, eins og að efla varnir á svæð­inu.“

Græn­lend­ingar séu reiðu­búnir til að gera meira, innan ramma NATO, enda líti hann svo á að Græn­lendar beri þar ábyrgð. Öryggi Norð­ur­slóða sé mik­il­vægt. „Við erum öll sam­mála um það.“

„Full­trúar frá Græn­landi og dönskum stjórn­völdum ræddu við Mark Rutte fyrir nokkrum dögum síðan og skila­boðin sem ég hef fengið er að það sem kom fram þar, um að við værum með skýrar rauðar línur, hafi verið miðlað til for­set­ans.“

Að öðru leyti viti hann hvað hafi farið fram í sam­tali sem hann var ekki aðili að. „Ef við getum ekki átt sam­skipti í réttum far­vegi þá er erfitt fyrir mig að vita hvað hefur farið fram, öðru­vísi en í gegnum fréttir.“

Treystir þú Trump?

Spænskur blaða­maður reisti spurn­ing­una um hvort hægt væri að treysta því sem kom fram í ræðu Banda­ríkja­for­seta í ræðu hans á Davos í gær: Trúirðu hund­rað pró­sent orðum herra Trumps að hann ætli ekki að taka yfir Grænland með her­valdi?

„Auðvitað verðum við að trúa því sem hann segir. Það sem ég vil trúa á er ramm­inn sem skap­aði frið í heim­inum fyrir mörgum, mörgum árum, eftir hrylli­lega tíma. Það sem við viljum trúa er að við séum nánir og ást­kærir banda­menn hins vest­ræna banda­lags. Og það er einnig það sem við verðum að trúa.

Eins og ég sagði, þetta snýst um heims­skipan. Þetta snýst um alþjóð­lög. Þetta snýst um að virða land­fræði­leg heil­indi. Ég trúi því að heim­ur­inn muni ekki taka þessa beygju – svo hrika­lega. Ég verð að trúa því. Og ég trúi á að hið vest­ræna banda­lag og gott sam­starf geti þró­ast til hins betra. Líka fyrir græn­lenska fólkið og kon­ungs­ríkið Danmörku.“ 

Eru Bandaríkjamenn velkomnir til Grænlands?

For­sæt­is­ráð­herr­ann var einnig spurður hvernig hann sér fyrir sér sam­band Græn­lands og Banda­ríkj­anna til fram­tíðar. Þangað hafi Banda­ríkja­menn sótt í hern­að­ar­legum erinda­gjörðum, fyrir námu­gröft eða ferða­mennsku, svo dæmi séu tekin. Eru Banda­ríkja­menn vel­komnir til Græn­lands í náinni fram­tíð?

„Við viljum virð­ing­ar­fullt og frið­sælt sam­band við banda­menn okkar, trausta banda­menn til margra ára. En það leikur eng­inn vafi á því að orð­ræðan sem við höfum setið undir síð­asta ár er óásætt­an­leg fyrir okkur. Allt tal um að eign­ast Grænland er auð­vitað óásætt­an­legt. Það hefur áhrif á hvernig fólk hugsar til hvors ann­ars.“ 

Þrátt fyrir allt von­ist græn­lensk stjórn­völd og vinni enn að því að koma á góðu sam­tali, á réttum vett­vangi, þar sem hægt er að stuðla að sam­starfi og gagn­kvæmri virð­ingu. Ef virð­ing er borin fyrir rauðum línum sem Græn­lend­ingar hafa dregið, geti þessar þjóðir átt gott sam­band í kjöl­farið. 

„Auðvitað er erfitt þegar þú heyrir á hverju kvöldi hót­anir um að taka yfir Grænland“

Það breytir því þó ekki að málið hefur haft mikil áhrif á alla þjóð­ina.

„Auðvitað er erfitt þegar þú heyrir á hverju kvöldi hót­anir um að taka yfir Grænland. Þar til í gær gátum við ekki úti­lokað neitt. Reyndu að ímynda þér hvernig það er fyrir Græn­lend­inga, fólkið hér, frið­sælt fólk, að heyra það og sjá í fjöl­miðlum alla daga að ein­hver vilji svipta þá frels­inu,“ segir hann og græn­lenskur blaða­maður sem situr við hlið blaða­manns Heim­ild­ar­innar and­varpar þungt, svo auð­sýnt er að staðan hefur fengið þungt á hann. For­sæt­is­ráð­herr­ann heldur áfram:  „Það getur auð­vitað gert það að verkum að Græn­lend­ingar sjái þetta öðru­vísi.“ 

Enn haldi græn­lensk stjórn­völd í von­ina um að hægt sé að koma á virð­ing­ar­fullum sam­skiptum og frið­sælu sam­starfi. Gagnvart þess­ari áskorun séu það ekki aðeins hags­munir og frelsi Græn­lend­inga sem sé undir, heldur eitt­hvað allt annað og miklu stærra. Málið snú­ist í raun um heims­skipan, sem hefur stuðlað að friði í ára­tugi. „Það er ekk­ert sem á að spila með.“ 

Eftir fund­inn spurði græn­lenski blaða­mað­ur­inn: Af hverju heyr­ist ekk­ert frá Banda­ríkj­unum um þennan sam­starfs­hóp? 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár