Grænlendingar svara fyrir sig: „Trump veit ekki hvernig mér líður“

Aaja Chemnitz, full­trúi Græn­lend­inga á danska þing­inu, segir úti­lokað að NATO geti samið um fram­tíð Græn­lands, án að komu Græn­lend­inga. Íbúar í Nuuk lýsa áhyggjum og ótta. Sveit­ar­stjóri segir námu­vinnslu aldrei verða sam­þykkta í þessu and­rúms­lofti.

Grænlendingar svara fyrir sig: „Trump veit ekki hvernig mér líður“
Treystir á stuðn­ing ann­arra þjóða Aaju Poulsen er ein af þeim sem hefur áhyggjur af fram­vindu mála en heldur í von­ina um að aðrar þjóðir stígi inn í og grípi í taumana. Hún segir súr­r­eal­ískt að fylgj­ast með umræð­unni, það er eins og Trump átti sig ekki á því að líf fólks sé undir.

Aaja Chemnitz, annar tveggja græn­lenskra full­trúa á danska þing­inu, sendi frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook í kvöld þar sem hún segir að NATO ekki hafa umboð til þess að semja um neitt sem snertir Grænland án Græn­lend­inga. „Ekkert um okkur, án okkar.“

Yfir­lýs­ingin er við­bragð við frétt New York Times sem birt var í kvöld, þess efnis að innan NATO sé rætt um mála­miðlun sem feli í sér að Danir gefi eftir hluta af Græn­landi til Banda­ríkj­anna. 

Aaja til­heyrir Inuit Ataqatigiit, vinstri sinn­uðum flokki sem vill ná fram sjálf­stæði Græn­lend­inga, en telur það ekki tíma­bært að svo stöddu. Formaður flokks­ins er Múte B. Egede, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og núver­andi fjár­mála­ráð­herra.

Í fram­lín­unniSamstaða og sam­hæf­ing skipta sköpum, skrif­aði Aaja í gær og birti þessa mynd af sér með Múte B. Egede og Jens-Frederik Nielsen, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands.
…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár