Forsetinn fái dauðadóm

Sak­sókn­arar í lýð­ræð­is­rík­inu Suður-Kóreu vilja að fyrr­ver­andi for­set­inn, Yoon Suk Yeol, verði dæmdur til dauða fyrir að reyna að koma á her­lögum með blekk­ingum.

Forsetinn fái dauðadóm
Reyndi valda­rán Forseti Suður-Kóreu, Yoon Suk Yeol, er fyrir dómi eftir til­raun til að ræna völdum. Sak­sókn­arar fara fram á dauða­dóm. Hér veifar stuðn­ings­maður hans plakati af honum fyrir utan dóms­húsið í Seoul í dag. Mynd: AFP

Sak­sókn­arar í Suður-Kóreu kröfð­ust þess í dag að Yoon Suk Yeol, fyrr­ver­andi for­seti, yrði dæmdur til dauða fyrir að lýsa yfir her­lögum í des­em­ber 2024, sem steyptu land­inu í glund­roða.

Yoon olli póli­tískri kreppu þegar hann til­kynnti enda­lok borg­ara­legrar stjórnar í des­em­ber 2024 og sendi her­menn á þingið til að fram­fylgja því.

Tilraun hans mistókst hins vegar og hann varð fyrsti sitj­andi for­seti lands­ins til að vera tek­inn í gæslu­varð­hald þegar hann var hand­tek­inn í jan­úar síð­ast­liðnum.

Rétt­ar­höldum yfir Yoon fyrir upp­reisn, vald­níðslu og önnur brot tengd yfir­lýs­ing­unni lauk í dag eftir 11 klukku­stunda aðal­með­ferð.

Í loka­orðum sínum sök­uðu sak­sókn­arar hann um að vera höf­uð­paur „upp­reisnar“ sem knúin var áfram af „valda­fíkn sem mið­aði að ein­ræði og lang­tíma valda­tíð“.

Þeir sök­uðu Yoon um að sýna „enga iðrun“ fyrir aðgerðir sem ógn­uðu „stjórn­skipun og lýð­ræði“.

„Stærstu fórn­ar­lömb upp­reisn­ar­innar í þessu máli er fólkið í land­inu,“ sögðu þeir.

„Engar máls­bætur eru til staðar sem taka skal til­lit til við ákvörðun refs­ingar, heldur verður að beita harðri refs­ingu.“

Verj­enda­teymi Yoons hefur á meðan beitt leik­rænum rökum í til­raun til að hjálpa honum og meintum vit­orðs­mönnum hans.

Í dag líktu þeir for­set­anum saman við sögu­legar per­sónur eins og ítölsku fræði­menn­ina Galileo Galilei og Giordano Bruno, sem voru rang­lega dæmdir.

„Meiri­hlut­inn afhjúpar ekki alltaf sann­leik­ann,“ sögðu þeir.

Sak­sókn­arar kröfð­ust þess einnig að Kim Yong-hyun, fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra, yrði dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi.

Búist var við að máls­með­ferð­inni lyki síð­ast­lið­inn föstu­dag, en henni var frestað eftir 15 klukku­stunda umræður – það tók átta klukku­stundir aðeins að fara yfir sönn­un­ar­gögn fyrir Kim.

Lögmaður Kims full­yrti að „stutt tunga“ hefði komið í veg fyrir að hann gæti lesið hraðar.

Í núver­andi rétt­ar­höldum eru átta sak­born­ingar sem taldir eru höf­uð­paurar til­raun­ar­innar til að koma á her­lögum, þar á meðal Yoon og Kim.

Verði hann fund­inn sekur verður Yoon þriðji suður-kóreski for­set­inn sem dæmdur er fyrir upp­reisn, ásamt tveimur her­for­ingjum í tengslum við valda­rán árið 1979.

Jafnvel þótt hann verði sak­felldur og dæmdur til dauða er afar ólík­legt að dómnum verði fram­fylgt þar sem Suður-Kórea hefur við­haldið óop­in­beru afnámi aftaka síðan 1997.

Sak­sókn­arar krefj­ast einnig 10 ára fang­els­is­dóms yfir Yoon fyrir að hindra fram­gang rétt­vís­innar og er búist við að dóm­stóll í Seúl kveði upp dóm í því máli næst­kom­andi föstu­dag.

Hann á líka yfir höfði sér rétt­ar­höld vegna ákæru um land­ráð vegna ásak­ana um að hann hafi fyr­ir­skipað dróna­flug yfir Norður-Kóreu til að styrkja til­raun sína til að lýsa yfir her­lögum.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALSSTAÐAR ER RIFIST OG SKAMMAST OG AUÐVITAÐ FLOGIST Á LIKA OG GEFIÐ DUGLEGA Á KJAFTINN UM LEIÐ
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár