Drepin af ICE og svo sökuð um hryðjuverk

Heima­varna­ráð­herra Banda­ríkj­anna sakar konu um hryðju­verk sem var skotin í höf­uðið þegar hún reyndi að keyra burt frá vopn­uðum með­limum ICE-sveitar í Minn­ea­polis.

Drepin af ICE og svo sökuð um hryðjuverk
Renee Nicole Good Konan sem lést í skotárás ICE-liða skilur eftir sig ungt barn. „Hún var ein­stak­lega sam­úð­ar­full. Hún hefur hugsað um fólk allt sitt líf,“ segir móðir hennar.

Fulltrúi útlend­inga­eft­ir­lits­ins (ICE) í Minn­ea­polis skaut 37 ára gamla móður til bana í dag eftir að hún reyndi að keyra burt frá vett­vangi aðgerðar sveit­ar­innar. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir rang­lega að hún hafi keyrt yfir full­trú­ann og segir ótrú­legt að hann hafi lifað af.

Jacob Frey, borg­ar­stjóri Minn­ea­polis, kall­aði ásak­anir stjórn­valda um að konan hefði ráð­ist á alrík­is­full­trúa „kjaftæði“ og skor­aði á full­trúa Útlend­inga- og tolla­eft­ir­lits­ins (ICE), sem stóðu fyrir fjölda­árásum annan dag­inn í röð, að yfir­gefa Minn­ea­polis.

Þúsundir manna komu saman til kvöld­vöku á vett­vangi, eins og sjá mátti á sam­fé­lags­miðlum, á meðan mót­mæl­endur söfn­uð­ust einnig saman á Man­hattan, að sögn frétta­rit­ara AFP.

Á mynd­bandi af atvik­inu, sem hefur verið deilt víða, sést Honda-jeppi að því er virð­ist loka leið ómerktra lög­reglu­bif­reiða þegar þær reyna að aka niður snævi þakta götu.

Öku­mað­ur­inn, sem stað­bundnir fjöl­miðlar nefna Renee Nicole Good, 37 ára, reyndi að aka af stað þegar lög­reglu­menn nálg­uð­ust og reyndu að opna dyr bif­reið­ar­innar. Þegar hún reyndi að beygja og keyrt burt skaut einn þeirra þremur skotum að kon­unni með skamm­byssu.

Trump, sem hefur fyr­ir­skipað árásir gegn inn­flytj­endum um allt land, sak­aði fórn­ar­lambið um að hafa „á grimmi­legan hátt“ reynt að keyra yfir lög­reglu­mann­inn.

„Konan sem öskrar, aug­ljós­lega æsinga­mann­eskja að atvinnu, og konan sem ók bílnum var mjög stjórn­laus, hindr­andi og mót­þróa­full, sem svo ekur ofbeld­is­fullt, vilj­andi og grimmi­lega yfir ICE-full­trú­ann, sem virð­ist hafa skotið hana í sjálfs­vörn,“ sagði hann á Truth Social og bætti við: „Byggt á mynd­band­inu er ótrú­legt að hann sé á lífi, en hann er nú á bata­vegi á spít­ala.“

Alrík­is­full­trúar ICE hafa verið í far­ar­broddi í brott­vís­un­ar­her­ferð Trump-stjórn­ar­innar gegn inn­flytj­endum, þrátt fyrir mót­mæli stað­bund­inna yfir­valda.

Heima­varna­ráðu­neytið (DHS) hóf öfl­uga nýlið­un­ar­her­ferð síð­asta sumar til að bæta 10.000 nýjum ICE-full­trúum við þá 6.000 sem fyrir voru.

Það olli gagn­rýni um að nýir lög­reglu­menn á vett­vangi væru ekki nægi­lega þjálfaðir.

Kristi NoemHeima­varna­ráð­herra Banda­ríkj­anna sak­aði kon­una um hryðju­verk, þó svo að mynd­band hafi sýnt hana reyna að kom­ast burt.

Kristi Noem, yfir­maður DHS, sagði að „sér­hver missir á manns­lífi sé harm­leikur“ en sak­aði kon­una sem var drepin um „inn­lenda hryðju­verka­starf­semi“. Hún sagði að Good „hefði elt og hindrað starf (ICE) allan dag­inn.“

„Hún not­aði síðan bif­reið sína sem vopn,“ sagði hún.

Atvikið átti sér stað í mót­mæla­að­gerðum gegn fram­fylgd útlend­inga­laga í suð­ur­hluta Minn­ea­polis, sem er í mið­vest­ur­rík­inu Minnesota.

Heima­varna­ráðu­neytið, sem rekur ICE, sagði á X að fórn­ar­lambið hefði reynt að keyra yfir full­trúa þess sem skaut „varn­ar­skotum.“

Hræðileg sjón

Tim Walz, rík­is­stjóri Minnesota, kall­aði við­brögð alrík­is­stjórn­ar­innar við atvik­inu „áróður“ og hét því að ríki hans myndi „tryggja fulla, sann­gjarna og skjóta rann­sókn.“

Vitnið Brandon Hewitt heyrði „þrjú skot.“

„Ég náði fullt af mynd­böndum af þeim bera líkið í sjúkra­bíl­inn,“ sagði hann við MS NOW.

Annað vitni sem rætt var við af stað­bund­inni stöð FOX9 lýsti hræði­legri sjón.

„Far­þeg­inn sem lifði af fór út úr bílnum alblóð­ugur,“ sagði vitnið.

Hann sagð­ist hafa séð mann sem kynnti sig sem lækni reyna að kom­ast á vett­vang en lög­reglu­menn hafi neitað honum um aðgang.

Mótmæli gegn ICE

Hörð mót­mæli hafa verið gegn aðgerðum Trump-stjórn­ar­innar í útlend­inga­málum, en hún hefur heitið því að hand­taka og vísa úr landi því sem hún kallar „millj­ónir“ óskráðra inn­flytj­enda.

Heima­varna­ráðu­neytið kall­aði ofbeldið „beina afleið­ingu stöðugra árása og djöfla­væð­ingar á full­trúum okkar.“

Full­trú­inn sem hleypti af skot­inu, sem var útskrif­aður af sjúkra­húsi eftir atvikið, var keyrður niður og dreg­inn eftir vegi af mót­mæl­anda gegn ICE í júní, sagði Noem.

Trump hefur gert það að for­gangs­at­riði á öðru kjör­tíma­bili sínu að koma í veg fyrir ólög­lega inn­flytj­endur og vísa úr landi óskráðum inn­flytj­endum, og hefur hert skil­yrði fyrir komu til Banda­ríkj­anna og fyrir vega­bréfs­á­rit­unum.

ICE – sem gagn­rýnendur saka um að hafa breyst í her­sveit undir stjórn Trumps – hefur verið falið að vísa úr landi for­dæma­lausum fjölda óskráðra inn­flytj­enda.

Banda­rísk yfir­völd sögðu að allt að 2.000 lög­reglu­menn væru í Minn­ea­polis vegna aðgerða í útlend­inga­málum.

Fulltrúi banda­ríska útlend­inga­eft­ir­lits­ins skaut óskráðan inn­flytj­anda til bana í Chicago í sept­em­ber eftir að mað­ur­inn reyndi að veita mót­spyrnu við hand­töku með því að keyra bíl sínum á full­trú­ann, að sögn yfir­valda.

„Hefur hugsað um fólk allt sitt líf“

Móðir fórn­ar­lambs­ins, Donna Ganger, sagði við dag­blaðið Minnesota Star Tribune að dóttir hennar „hafi lík­lega verið skelf­ingu lostin.“

Good var „ekki hluti af neinu slíku“ eins og að ögra ICE-full­trúum, bætti Ganger við.

„Það er svo heimsku­legt“ að hún hafi verið drepin, sagði móðir Good, eftir að hafa heyrt af aðstæðum frá frétta­manni.

Ganger sagði að dóttir hennar væri „alls ekki hluti af neinu slíku,“ og vís­aði þar til mót­mæl­enda sem ögra ICE-full­trúum.

„Renee var ein af þeim almenni­leg­ustu mann­eskjum sem ég hef þekkt,“ sagði hún. „Hún var ein­stak­lega sam­úð­ar­full. Hún hefur hugsað um fólk allt sitt líf.“

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þessar sérsveitir Bandaríkjaforseta minna óþægilega á ónefdar sveitir germanskar sem fóru hamförum á fyrri hluta síðustu aldar. Sama með orðræðu forsetans og helstu undirsáta hans.
    3
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Ef ómerktur bíll myndi stoppa við hliðina á mínum og skyndilega væru tveir hlaupandi að bílnum mínum og að reyna að komast inn í hann, þá myndi ég gera nákvæmlega það sem þessi óheppna kona gerði: reyna að keyra frá þeim. Þetta er ekkert annað en ríkisstyrkt morð.
    14
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    First a murder, then a perversion of justice! The new normality!
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár