Árás frá Bandaríkjunum yrði „endalok alls“

For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur seg­ist róa öllum árum að því að stöðva yfir­töku Banda­ríkj­anna á Græn­landi.

Árás frá Bandaríkjunum yrði „endalok alls“
Ógn frá banda­manni Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, og Donald Trump, á leið­toga­fundi NATO síð­asta sumar. Mynd: AFP

S

érhver árás Banda­ríkj­anna á banda­lags­ríki NATO myndi þýða enda­lok „alls“, var­aði for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur við í dag, eftir að Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, ítrek­aði ósk sína um að inn­lima Grænland.

„Ef Banda­ríkin ákveða að ráð­ast hern­að­ar­lega á annað NATO-ríki, þá myndi allt stöðvast – þar með talið NATO og þar af leið­andi örygg­is­mál eftir seinni heims­styrj­öld­ina,“ sagði Mette Frederik­sen við dönsku sjón­varps­stöð­ina TV2.

Hún sagði rík­is­stjórn sína gera „allt sem hægt er til að svo verði ekki“.

Frederik­sen krafð­ist þess í gær að Banda­ríkja­stjórn hætti að tala um að taka yfir Grænland, og það sama gerði for­maður lands­stjórnar Græn­lands, Jens-Frederick Nielsen.

„Ég verð að segja þetta mjög skýrt við Banda­ríkin: það er alger­lega fárán­legt að segja að Banda­ríkin eigi að taka yfir stjórn á Græn­landi,“ sagði Mette Frederik­sen í yfir­lýs­ingu í gær.

Nielsen sagði við Trump á sam­fé­lags­miðlum: „Þetta er komið nóg. Enginn frek­ari þrýst­ingur. Engar fleiri aðdrótt­anir. Engir fleiri inn­limun­ar­draumar.“

„Við erum opin fyrir við­ræðum,“ sagði hann þó. „En það verður að ger­ast eftir réttum leiðum og með virð­ingu fyrir alþjóða­lögum.“

Segist þurfa yfirtöku vegna öryggis

Donald Trump sagði í við­tali í gær að hann vildi ræða Græn­lands­málið eftir 20 daga. „Tölum um Venes­ú­ela, Rússland, Úkraínu. Við höfum áhyggjur af Græn­landi eftir tvo mán­uði. Tölum um Grænland eftir 20 daga,“ sagði hann og ítrek­aði að Banda­ríkin þyrftu Grænland af örygg­is­á­stæðum, beint í kjöl­far þess að hafa hand­tekið for­seta Venes­ú­ela í höf­uð­borg lands­ins á grund­velli fíkni­efna­smygls, olíu­fram­leiðslu og örygg­is­sjón­ar­miða.

„Við þurfum á Græn­landi að halda frá þjóðar­ör­ygg­is­sjón­ar­miði og Danmörk mun ekki geta gert það,“ sagði hann og full­yrti að kín­versk og rúss­nesk skip væru „um allt Grænland“. Þá spurði hann blaða­menn: „Vitið þið hvað Danmörk gerði nýlega, til að efla öryggi í Græn­landi? Þeir bættu við einum hunda­sleða í við­bót. Það er satt. Þeim fannst það vera frá­bær aðgerð.“ Loks sagði Trump að Evr­ópu­sam­bandið þyrfti á því að halda að Banda­ríkin tækju Grænland.

Samvinna við Bandaríkin óhögguð

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra kall­aði í dag eftir dýpra sam­tali og sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið, en kvað varn­ar­sam­vinnu við Banda­ríkin standa óhagg­aða.

„Grunn­stoðir íslenskra öryggis- og varn­ar­mála – aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og tví­hliða varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin – standa óhagg­aðar og skipta sköpum fyrir okkur. Hags­munum smá­ríkis er best borgið í sam­starfi og eðli­legt er að við treystum jafn­framt böndin við nágranna- og vina­þjóðir okkar,“ skrif­aði Þor­gerður í grein á Vísi.is. 

„Kínahættan“

Trump skók evr­ópska leið­toga með því að hand­taka Nicolas Maduro, for­seta Venes­ú­ela, sem nú er í haldi í New York.

Trump hefur sagt að Banda­ríkin muni „stjórna“ Venes­ú­ela um óákveð­inn tíma og nýta gríð­ar­legar olíu­birgðir þess.

Banda­ríski leið­tog­inn hefur á svip­aðan hátt aukið þrýst­ing á Grænland und­an­farna mán­uði og sagði í des­em­ber að rúss­nesk og kín­versk skip væru „út um allt“ við strendur lands­ins.

Utan­rík­is­ráðu­neytið í Peking svar­aði fyrir sig í dag og hvatti stjórn­völd í Washington til að „hætta að nota hina svoköll­uðu Kínavá sem afsökun til að sækj­ast eftir per­sónu­legum ávinn­ingi“.

Aaja Chemnitz, sem er full­trúi Græn­lands á danska þing­inu, sak­aði Trump um að „dreifa lygum um kín­versk og rúss­nesk her­skip“.

„Græn­lend­ingar ættu að fara í við­bún­að­ar­ham,“ sagði hún við AFP og bætti við að Græn­lend­ingar þyrftu að fara að taka Trump mun alvar­legar.

Á götum Kaup­manna­hafnar lýsti fólk yfir undrun sinni á hót­unum Trumps.

„Mér finnst það svo­lítið galið að hann geti sagt svona hluti,“ sagði Frederik Olsen, 56 ára.

„Hann hefur allan þann aðgang sem hann vill fyrir her­menn­ina,“ sagði Christian Harpsøe, 46 ára. „Ég sé enga þörf. Þú getur ekki borið þetta saman við Venes­ú­ela.“

„Virðingarleysi“

Deilan vakti stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar víðs vegar að úr Evrópu. Anitta Hipper, tals­maður utan­rík­is­mála ESB, sagði frétta­mönnum að sam­bandið væri stað­ráðið í að verja land­helgi aðild­ar­ríkja sinna.

Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði að „aðeins Grænland og Kon­ungs­ríkið Danmörk“ gætu ákveðið fram­tíð svæð­is­ins – við­horf sem end­ur­spegl­uð­ust í yfir­lýs­ingum frá leið­togum Finn­lands, Sví­þjóðar og Noregs.

Pascal Confavreux, tals­maður franska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sagði við stað­bundna sjón­varps­stöð að „ekki væri hægt að breyta landa­mærum með valdi“ og bætti við að land hans fyndi til „sam­stöðu“ með Danmörku.

Deilan kom upp eftir að Katie Miller, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Trumps, birti mynd á net­inu á laug­ar­dag af Græn­landi í litum banda­ríska fán­ans með yfir­skrift­inni „BRÁÐUM“.

Nielsen kall­aði færsl­una „virð­ing­ar­leysi“. Frederik­sen hvatti Washington á sunnu­dag til að hætta að „hóta sögu­legum banda­manni sínum“ og sagði kröfur Banda­ríkj­anna til Græn­lands „fárán­legar“.

Miller er eig­in­kona Stephen Miller, ráð­gjafa Trumps, sem er almennt tal­inn vera arki­tekt margra stefnu­mála Trumps og stýra harð­línu­á­kvörð­unum for­set­ans í inn­flytj­enda­málum og inn­an­lands­stefnu.

Til að bregð­ast við færslu Miller sagði Jesper Møller Sørensen, sendi­herra Dan­merkur í Washington, að land hans væri þegar að vinna með Washington að því að efla öryggi á norð­ur­slóðum.

„Við erum náin banda­lags­ríki og ættum að halda áfram að vinna saman sem slík,“ skrif­aði Sørensen.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Strumparnir hans Prump gera venjulegum vitfirringum skömm til. Prumpi sjálfur er heimskari en fjögra ára frænka mín. Þar er enga ljósglætu að finna. Frænka mín ratar til dæmis á klósettið alveg sjálf. Prumpi ratar ekki einn á eigið heimilisfang. Þó eru nokkrar gungur að mæra þetta ógeðfellda rusl og úrgang sem leiðtoga "hins frjálsa heims". Jú jú hann hefur mikilvægu starfi að gegna, en bara á klósettinu 💩💩💩
    0
    • GH
      Greg Hill skrifaði
      Vandamálið er að hann hentar tilgangi þess illa sem heldur honum uppi og myndi gera slíkt hið sama fyrir kakkalakka ef hægt væri að viðhalda þeirri uppgerð nógu lengi ...
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár