Af hverju er öll þessi olía í Venesúela?

Valdarán eða valda­ránstil­raun Trumps í Venes­ú­ela snýst um olíu, það er ljóst. En hvað er öll þessi olía að gera í iðrum lands­ins?

Af hverju er öll þessi olía í Venesúela?
Lífið í Venes­ú­ela fyrir 100 millj­ónum ára. Landið var þá að mestu undir sjáv­ar­máli. Þessi sjáv­ar­dýr urðu hluti olíu­auð­lind­anna sem nú er bit­ist um þó megnið af olí­unni sé raunar myndað af örsmáum þör­ungum.

Ég hef sann­frétt að þið þráið að vita hvernig á því stendur að Venes­ú­ela situr á stærstu olíu­lindum í öllum heim­inum en mun minna er af olíu í nágranna­rík­inu Kólumbíu.

Munurinn er sann­ar­lega him­in­hróp­andi.

Þótt Kólumbía og Venes­ú­ela deili landa­mærum, þá situr Venes­ú­ela á um 304 millj­örðum tunna af olíu­birgðum, sem vitað er um, á meðan Kólumbía á aðeins um 2 millj­arða. Þetta þýðir að Venes­ú­ela á um 150 tunnur fyrir hverja eina sem Kólumbía á.

Þegar kemur að vinnsl­unni snýst dæmið við á óvæntan hátt.

Vegna póli­tísks óstöð­ug­leika, við­skipta­banna og skorts á við­haldi hafa inn­viðir Venes­ú­ela drabb­ast niður. Þrátt fyrir þessar óskap­legu olíu­lindir, sem eru meiri en lindir Sádi-Arabíu, dæla Venes­ú­ela­menn nú aðeins upp um 800.000 til 900.000 tunnum á dag.

Kól­umbíu­menn, sem eiga örlítið brot af birgðum Venes­ú­ela, dæla hins vegar upp næstum jafn miklu, eða um 750.000 tunnum á dag.

Kólumbía vinnur því af mik­illi natni úr sínum litlu lindum á meðan „ris­inn í austri“ nær aðeins að nýta örfá pró­sent af olíu­haf­inu undir yfir­borð­inu.

En magnið segir raunar aðeins hálfa sög­una; gæðin eru nefni­lega allt önnur. Olían í Kólumbíu er að miklu leyti „létt“ eða „miðl­ungs­þung“, sem kallað er, sem þýðir að hún er þunn­fljót­andi og auð­veld í vinnslu. Hins vegar er stærsti hlut­inn af olíu Venes­ú­ela „ofur­þung“ olía. Hún er svo seig að hún minnir helst á fljót­andi mal­bik eða sýróp.

Það þarf að hita hana upp eða blanda hana með þynnri efnum bara til að geta dælt henni eftir leiðslum til frek­ari vinnslu.

Þetta gerir olí­una í Venes­ú­ela mun dýr­ari og flókn­ari í hreinsun en þá kól­umbísku.

Fjarlægðin frá fjöllunum

En hvernig stendur á því að nágranna­ríki, sem virð­ast svipuð að allri jarð­fræði, búa yfir svo mis­mun­andi magni?

Ég fór á stúf­ana og kann­aði málið fyrir ykkur.

Ástæðan er í örstuttu máli fjar­lægð Venes­ú­ela frá And­es­fjöllum.

Uppruna olí­unnar má rekja til Krít­ar­tíma­bils­ins í jarð­sög­unni (sem var við lýði fyrir um 90 til 120 millj­ónum ára). Á þeim tíma var norð­ur­hluti Suður-Ameríku ekki fjall­lendi heldur grunnt, hlýtt inn­haf við mið­baug.

Þarna ríkti hið full­komna „dauð­ans jafn­vægi“ í óra­langan tíma og gríð­ar­legt magn af svifi og þör­ungum lifði þar og dó og sökk til botns.

En á botn­inum varð sjór­inn afar súr­efn­is­snauður með tím­anum.

Lítið súrefni

Ástæðan fyrir súr­efn­is­leys­inu er flókin en snýst um hve heitt var á svæð­inu í mjög, mjög langan tíma. Þör­unga­blóm­inn í þessu grunna hafi var gríð­ar­legur.

Magn hinna dauðu þör­unga sem féllu niður á botn var svo mikið að bakt­er­í­urnar, sem brutu þá niður og átu, þær eyddu í raun og veru stórum hluta súr­efn­is­ins á botn­inum.

Og vegna þess hve heitt var, þá bland­að­ist sjór­inn lítið. Dýpt þessa hafs var aðeins um 50-200 metrar en það var eigi að síður mjög lag­skipt.

Súr­efn­is­ríkt yfir­borðs­vatn náði aldrei niður á botn­inn til að end­ur­nýja það súr­efni sem bakt­er­í­urnar not­uðu við veislu­höld sín niðri við og á botn­inum.

Þær höfðu á end­anum notað næstum hvert ein­asta súr­efn­is­mó­lekúl í botn­lag­inu til að „melta“ þessa ofgnótt af mat.

Þegar súr­efnið klárað­ist, þá gátu bakt­er­í­urnar (og önnur dýr) ekki lengur lifað þarna niðri.

Nið­ur­brotið stöðv­að­ist.

Þör­ung­arnir í yfir­borðs­sjónum, sem héldu nátt­úr­lega áfram að falla dauðir til botns, „rotn­uðu“ nú ekki í raun, heldur súrn­uðu eða breytt­ust í vax­kennt efni (kerógen).

Andesfjöll rísa

Nú gerð­ist það næst að fyrir um 65 millj­ónum ára (um svipað leyti og loft­steinn grand­aði risa­eðl­unum) þá byrj­uðu And­es­fjöllin að rísa á vest­ur­jaðri Suður-Amer­íkuflek­ans.

Það tók tugi millj­óna ára og raunar eru fjöllin enn að rísa. En þegar fjöllin risu þrýstu þau set­lög­unum á botni hins gamla grunna inn­hafs í austri niður á við með þunga sínum en huldu þau um leið með efnum sem veðr­uð­ust jafn­óðum af fjöll­unum.

Þarna mynd­að­ist mik­ill þrýst­ingur og hiti og keró­genið tók að ummynd­ast í olíu.

Olían tók svo að leita í eins­konar „hvolf“ eða „skálar“ neð­an­jarðar.

Örlaga­rík­asti tím­inn var fyrir um 20 millj­ónum ára þegar Andes-fjall­garð­ur­inn var að mestu ris­inn og gamli hafs­botn­inn (Kólumbía og síðan Venes­ú­ela) reis nú líka úr sjónum.

Nálægt fjöll­unum voru ham­farir miklar (en vissu­lega afar hægar) og fjöllin „brutu“ skál­arnar fyrr­nefndu svo olían, sem þarna hafði verið að mynd­ast, seytl­aði hingað og þangað.

Hnausþykk olía

Þess vegna er svo agn­ar­lítið af olíu í Kólumbíu miðað við Venes­ú­ela. Fjær fjöll­unum, í Venes­ú­ela, eru skál­arnar hins vegar óskadd­aðar að mestu og því er svo miklu meira magn olíu þar.

Það hafði líka sitt að segja að þar rakst olían á hinn litla en harða Gvæjana-skjöld, sem kall­aður er, og komst ekki lengra, heldur safn­að­ist enn betur fyrir í risa­stórum neð­an­jarð­ar­lónum.

En þar sem þessi mikla olía lenti nálægt yfir­borð­inu, komst hún í snert­ingu við grunn­vatn og bakt­er­íur sem átu úr henni létt­ustu efnin. Eftir varð þessi hnaus­þykka og seiga olía sem Venes­ú­ela er þekkt fyrir.

Ólíkt þunn­fljót­andi olí­unni sem leyn­ist dýpra í kól­umbískri jörð.

Þess má svo geta að lokum að nýlega hafa fund­ist gríð­ar­lega miklar olíu­lindir í haf­inu skammt frá ströndum nágranna­ríkis Venes­ú­ela í austri, Gvæjana, og eru þær af svip­uðum meiði og olían í Venes­ú­ela. Gvæj­anska olían er þó mun þynnri og því auð­veld­ari til vinnslu en olían í Venes­ú­ela.

Rétt eins og kólombíska olían.

Líklegt er talið að enn meiri lindir muni brátt finn­ast út af ströndum Gvæjana og þar sem íbúar lands­ins eru aðeins 800.000 gæti svo farið að þeir verði orðnir hlut­falls­lega rík­asta þjóð heims­ins áður en við er litið.

Ef þeir gæta þess að láta ekki stela frá sér olí­unni!

***

Listi yfir þau tíu lönd sem eiga mest af ennþá óunn­inni olíu (töl­urnar sýna millj­arða tunna):

1.  Venes­ú­ela  304 – Stærsti hlut­inn er „ofur­þung“ olía í Orinoco-belt­inu.

2.  Sádi-Arabía  298 — Var lengi í fyrsta sæti; olían þar er mjög ódýr í vinnslu. Því eru olíu­birgðir Sáda (ennþá að minnsta kosti) verð­mæt­ari en birgðir Venes­ú­ela.

3.  Kanada  168 — Mest­megnis fólgin í „olíu­sandi“ í Alberta og því álíka seig og olían í Venes­ú­ela.

4.  Íran  156 — Útflutn­ingur erf­iður vegna við­skipta­banna.

5.  Írak  145 — Á mikið af ódýrri, léttri olíu sem enn á eftir að kanna að fullu.

6.  Rússland  108 — Mest af olí­unni er í Síberíu; nýjar lindir eru að finn­ast á norð­ur­slóðum.

7.  Kúveit  102 —  Örsmátt land en gríð­ar­lega olíu­ríkt miðað við stærð.

8.   Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin   98 — Abu Dhabi á um 90 pró­sent af þessum birgðum.

9.  Banda­ríkin  69  —  Birgðir hafa auk­ist mikið vegna nýrrar tækni við að vinna olíu úr skífu­steini.

10.  Líbýa  48 —  Mestu olíu­birgðir í Afríku.

Brasilía myndi lenda í 15. sæti á þessum lista með 13 millj­arða tunna, Gvæjana í 17. sæti með 11 millj­arða og Noregur í 22. sæti með 7,6. Kólumbía situr í 35. sæti með sínar tunnur.

Kjósa
63
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Heillandi, frábær grein. Og, ... kæri guð, ég bið þig, er einhver möguleiki að næsta reikistjarna geti ekki haft alveg eins mikla olíu á sér?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár