Sanna á hrakhólum talin standa sig best

Könn­un sýn­ir að flest­ir telja að Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir hafi stað­ið sig best allra borg­ar­full­trúa. Stjórn Sósí­al­ista­flokks Ís­lands hvatti hana til að segja sig úr flokkn­um.

Sanna á hrakhólum talin standa sig best
Sanna borgarfulltrúi Hefur útilokað framboð með Sósíalistaflokki Íslands undir núverandi framkvæmdastjórn. Mynd: Golli

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, er talin hafa staðið sig best allra borgarfulltrúa í Reykjavík, samkvæmt niðurstöðum könnunar Maskínu. 

Sanna er hins vegar orðin utangarðs í Sósíalistaflokknum og hefur ný framkvæmdastjórn, sem tók yfir í maí, hvatt hana til að „segja sig úr Sósíalistaflokki Íslands“. 

Í könnuninni velur fjórðungur, eða 24% Sönnu Magdalenu, sem er svipað og síðasta ár. Næst flestir, eða 21%, velja Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og hækkar hún úr 17% frá því í ágúst og úr 14% fyrir ári.

Alls telja 9% að Einar Þorsteinsson í Framsóknarflokknum standi sig best og 8% Dóra Björt Guðjónsdóttir, sem hvarf frá formannsframboði í Pírötum nýlega.

Hvaða fulltrúi í borgarstjórn hefur staðið sig best?Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna komast ekki á lista yfir fjóra sem teljast hafa staðið sig best.

Framkvæmdastjórnin kvaddi Sönnu

Ný framkvæmdastjórn tók við í Sósíalistaflokki Íslands í maí, samfara harðvítugum deilum. 

Sanna hætti sem pólitískur leiðtogi Sósíalista eftir það. Stjórn flokksins leitaði skýrra svara frá henni um framhaldið.

Í september sagði Sanna Magdalena að hún íhugaði að bjóða sig fram fyrir annað framboð. „Það er ekkert launungarmál að ný stjórn Sósíalistaflokksins hefur ekki staðið heilshugar að baki borgarstjórnarflokknum,“ sagði hún í samtali við RÚV

Í kjölfarið sendi stjórn Sósíalistaflokksins frá sér yfirlýsingu, þar sem hún var meðal annars sökuð um endurtekin ósannindi.

„Sanna Magdalena Mörtudóttir hefur lengst af á sinni starfsævi unnið sem atvinnustjórnmálakona sem kjörinn fulltrúi Sósíalistaflokksins. Af ummælum hennar að dæma um mögulegt framboð með öðrum flokki virðist hún horfa frekar til eigin frama í stjórnmálum en hag síns eigin flokks og framgang félagshyggju á Íslandi,“ sagði í ályktun framkvæmdastjórnarinnar.

„Eftir margra mánaða umleitanir fékkst hún loks á fund með framkvæmdarstjórn en neitaði að hitta framkvæmdarstjórn einsömul líkt og aðrir borgarfulltrúar flokksins höfðu þá þegar gert. Ekki var að merkja nokkurn samstarfsvilja af hálfu Sönnu Magdalenu á þeim fundi,“ sagði ályktunin.

Þá kvaddi framkvæmdastjórnin hana. „Óskar framkvæmdarstjórn Sönnu velfarnaðar í öllu því sem hún ákveður að taka sér fyrir hendur.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Segir „falsfrétt“ og „óhróður“ að hún vilji bera ESB-aðild undir Bandaríkin
3
StjórnmálEvrópumál

Seg­ir „fals­frétt“ og „óhróð­ur“ að hún vilji bera ESB-að­ild und­ir Banda­rík­in

Ingi­björg Dav­íðs­dótt­ir, þing­kona Mið­flokks­ins, sagði„mjög mið­ur“ að ekki hafi ver­ið fund­að með Banda­ríkj­un­um um „ hvað ger­ist með varn­ar­samn­ing Ís­lands ef Ís­land ákveð­ur að ganga í Evr­ópu­sam­band­ið“, en seg­ir það jafn­gilda „fals­frétt­um“ að hún vilji bera að­ild und­ir Banda­rík­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
3
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár