Sanna útilokar framboð fyrir Sósíalista undir núverandi stjórn

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi úti­lokar að fara fram fyrir Sós­í­alista­flokk­inn á meðan núver­andi stjórn hans er við lýði. Samstarf á vinstri vængnum komi til greina.

Sanna útilokar framboð fyrir Sósíalista undir núverandi stjórn

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, segir úti­lokað að hún fari í fram­boð fyrir flokk­inn meðan núver­andi stjórn hans er við lýði. Hún sér enn fremur ekki fyrir sér raun­hæfar leiðir til þess að Sós­í­alistar sem fylgi henni geti starfað innan flokks­ins. 

Þetta kemur fram í umfjöllun Gímalds­ins um odd­vita stjórn­mála­flokk­anna í Reykja­vík. 

„Mig lang­ar að halda áfram en ég sé ekki mögu­leika á að fara fram með Sós­í­alist­um eins og stað­an er nún­a,“ segir Sanna við Gímaldið. „Eins og stað­an er og mið­að við allt sem á und­an er geng­ið, tel ég litl­ar lík­ur á að fara fram und­ir merkj­um Sós­í­alista og al­veg úti­lok­að með­an þau sem stýra flokkn­um núna ráða þar ríkj­u­m.“

Sanna hefur margoft mælst sá borg­ar­full­trúi sem nýtur hvað mestra vin­sælda. Hefur því verið velt upp í fjöl­miðlum hvort Sanna gæti leitt nýtt fram­boð á vinstri vængnum í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Við Gímaldið sagði hún að sam­starf á vinstri vængnum kæmi vel til greina.

Deilur og vantraust

Miklar deilur hafa verið í Sós­í­alista­flokknum um nokk­urt skeið en ný fram­kvæmda­stjórn var kjörin í vor eftir kosn­ingar á aðal­fundi sem hafa verið kall­aðar hall­ar­bylt­ing. Eftir að nýja fram­kvæmda­stjórnin, sem leidd er af Sæþóri Benjamín Randals­syni, tók við sagði Sanna sig frá trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn þótt hún sitji enn í borg­ar­stjórn.

Í ágúst lýsti Svæð­is­fé­lag Sós­í­alista­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi yfir van­trausti á á Sönnu Magda­lenu vegna þess sem kallað var óvirð­ing hennar við flokk­inn. Ásakaði svæð­is­fé­lagið Sönnu og fyrr­ver­andi stjórn Sós­í­alista­flokks­ins um að skipu­leggja stofnun nýs stjórn­mála­flokks með rík­is­styrk hans.

Á nýlegum félags­fundi í Sós­í­alista­flokknum var farið fram á að hald­inn yrði auka aðal­fundur, sem Sanna kall­aði eftir að fram­kvæmda­stjórnin tæki mark á. Í til­kynn­ingu frá stjórn­inni til flokks­fé­laga eftir fund­inn sagði að margir hefðu mætt á hann „til að hleypa honum upp með óskum um að fara út fyrir vald­svið fund­ar­ins.“

Í forsvari nýrra samtaka

Eftir átökin tóku Sanna og margir þeirra sem hurfu á brott úr ábyrgða­stöðum fyrir Sós­í­alista sæti í stjórn ann­arra sam­taka: Vor­stjörn­unar. Það félag hafði verið rekið við hlið Sós­í­alista­flokks­ins og fjár­magn­aði meðal ann­ars rekstur félags­heim­ilis flokks­ins og sjón­varps- og útvarps­stöðv­ar­innar Sam­stöðv­ar­innar.

Þeim hug­myndum hefur verið velt upp, að bjóða fram undir þeirra merkjum, end­ur­heimti stuðn­ings­fólk Sönnu ekki stjórn á flokknum. Vor­stjarnan nýtur þó engra fjár­fram­laga úr rík­is­sjóði líkt og Sós­í­alista­flokk­ur­inn. Framlög til borg­ar­stjórn­ar­flokks Sós­í­alista úr borg­ar­sjóði hafa hins vegar verið látin renna til Vor­stjörn­unnar, sem og hlut­fall af launum borg­ar­full­trúa flokks­ins.

Það er því ekki úti­lokað að félagið gæti með skömmum tíma orðið að stjórn­mála­hreyf­ingu og fram­boði.


Árétting: Í upp­haf­legri frétt var haldið fram að á nýlegum félags­fundi hefði verið sam­þykkt að halda auka aðal­fund. Um þetta eru þó skiptar skoð­anir. Sanna hefur haldið því fram en með­limir í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins segja að svo hafi ekki verið.
Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Hér lekur lígin af Sönnu litlu Peningarnir sem hún talar um koma frá Sóscelistaflokknum stílarnir sem þau sitja á stálu þau af flokknu ásamt hljóðkerfi og samkomu tjaldi sem flokkurin er með reikinga fyrir Sanna er jagn lðigin og óheiðarleg & Sárin þar sér ekki mun á kúk og skít.
    -16
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár