Uppgjör að handan: „Mér fannst ég vera ærulaus, non grata, slaufað“

Æviminn­ingar Karls Sig­ur­björns­sonar voru gefnar út á vik­unum og má þar finna ein­stakt upp­gjör við róst­ur­sama tíma þjóð­kirkj­unnar. Hér verður fjallað um kyn­ferð­is­of­beldið sem upp kom og Karl tekst á við í minn­ingum sínum.

Uppgjör að handan: „Mér fannst ég vera ærulaus, non grata, slaufað“

Út er komin stór­merki­leg minn­ing­ar­brot Karls Sig­ur­björns­sonar, fyrr­ver­andi bisk­ups, og nefn­ist Skrifað í sand. Veröld ann­ast útgáfu bók­ar­innar en Karl lést í febr­úar á síð­asta ári. Samkvæmt útgef­anda fannst hand­ritið eftir and­lát hans og fylgdu því engin sér­stök fyr­ir­mæli. Var það gefið út í sam­starfi við fjöl­skyldu Karls. Bókin er hisp­urs­laus og óvægið upp­gjör við eitt erf­ið­asta tíma­bil íslensku þjóð­kirkj­unnar síð­ustu ára­tugi og ómet­an­leg inn­sýn inn í átök sem spönn­uðu í raun hátt í tvo ára­tugi og hverfð­ust að miklu leyti um við­brögð kirkj­unnar við kyn­ferð­is­of­beldi sem dóttir Ólafs Skúla­sonar bisk­ups, Guðrún Ebba, varð fyrir af hálfu föður síns auk ann­arra kvenna.

Ásakanir um kynferðisofbeldi

Í minn­ing­ar­brotum Karls kemur fram að hann hafi fyrst orðið áskynja þess að Ólafur væri ekki allur sem hann væri séður árið 1996. Fjöl­miðlar fjöll­uðu þá um ásak­anir kvenna gegn Ólafi sem þá var biskup en ein þeirra leit­aði til séra Hjálmars Jóns­sonar, sem þá …

Kjósa
66
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár