Þingmaður Sjálfstæðisflokks hnakkreifst við hóp kennara

Jón Pét­ur Zimsen, þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi skóla­stjóri, hvatti kenn­ara til að hrista af sér hlekk­ina og hafna „elít­unni“ í spjall­hópi á Face­book. „Ertu móðg­uð, gæti ekki ver­ið meira sama,“ svar­aði hann þeg­ar kenn­ari sagði hann tala nið­ur til kenn­ara­stétt­ar­inn­ar.

Þingmaður Sjálfstæðisflokks hnakkreifst við hóp kennara
Jón Pétur Zimsen Kennarar í Facebook-hópi sögðu þingmann Sjálfstæðisflokks frekar tilheyra „elítunni“ en þeir sjálfir. Mynd: Golli

Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýndi „menntaelítu“ og sagði ákveðinn hóp hafa grimm tök á stéttinni og ákveða hvað sé ásættanlegt skólastarf og hvað ekki. Þetta kom fram í rimmu hans við hóp kennara á Facebook-síðunni Skólaþróunarspjallið á föstudag.

Umræðan hófst fyrir helgi eftir að Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi skólastjóri Réttarholtsskóla og Melaskóla, birti myndband á TikTok þar sem hann kallaði eftir því að einkunnir yrðu aftur gefnar í tölum en ekki bókstöfum. Bætti hann því við, líklega í gríni, að kennarar elskuðu að gefa nemendunum einkunnina „drullusokkur“.

Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, gagnrýndi myndbandið í spjallhópnum. „Birtist þá ekki menntamálaráðherraefni flokksins í stuttu myndbandi hvers inntak er að Sjálfstæðisflokkurinn sé á móti bókstafaeinkunnum (sem nóta bene voru skrifuð inn í námskrá í ráðherratíð Sjálfstæðisráðherra – og kynnt á sínum tíma sem stórkostleg framför af aðalleikara myndbandsins …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Maðurinn er fífl."
    5
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Það er eitthvað að hjá Jóni. Nú ætti einhver sem stendur honum nærri að setjast með honum og ræða við hann
    16
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Jón Pétur er með ákveðna hæfileika sem nýtast vel í dag í markaðskerfi athyglinnar, hann er athyglissjúkur og er alveg sama hvort athyglin er jákvæð eða neikvæð, bara að hann fái hana.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
4
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu