„Margt óheppilegt í þessu“

Rík­is­lög­reglu­stjóri snupraður af dóms­mála­ráð­herra fyrir slæma með­ferð á fé. Upp­sagnir hjá emb­ætt­inu, en ráð­gjafi ráð­inn í tíma­bundið starf í ráðn­inga­banni.

„Margt óheppilegt í þessu“
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir Tók ákvörðun um að greiða lean-ráð­gjafa sam­tals 160 millj­ónir fyrir verk­efni á ótengdum sviðum. Mynd: Golli

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri mun hitta Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra á morgun, en ráð­herr­ann sagði í kvöld­fréttum RÚV að 160 millj­óna króna við­skipti rík­is­lög­reglu­stjóra við ráð­gjafa væri „ekki góð með­ferð á opin­beru fé“.

Ráð­gjaf­inn, sem vann meðal ann­ars að því að versla hús­gögn á háu tíma­gjaldi, þar á meðal hjá hús­gagna­versl­unum Jysk sem stýrt er af eig­in­manni hennar, var að lokum ráð­inn í tíma­bundið starf 5. sept­em­ber, tveimur dögum eftir að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins fór fram á gögn um við­skiptin.

Ráð­gjaf­inn, Þórunn Óðins­dóttir hjá Intra, þró­að­ist úr stjórn­un­ar­ráð­gjöf yfir í ýmis við­vik sem hún fékk fyrir greiddar 36 þús­und krónur á tím­ann með virð­is­auka­skatti. Tuttugu til­vís­anir á tveggja ára tíma­bili eru til JYSK, sam­kvæmt frá­sögn RÚV, en einnig sótti hún versl­an­irnar IKEA, Á. Guð­munds­son og Hirzluna.

Í yfir­lýs­ingu Rík­is­lög­reglu­stjóra í gær­kvöldi var harmað að ekki hefði verið farið í verð­fyr­ir­spurnir eða örút­boð.

Nú standa yfir hag­ræð­ing­ar­að­gerðir hjá emb­ætt­inu.

„Núna erum við búin að vera með ráðn­inga­bann í ein­hverja sex mán­uði. Alls verða í kringum tutt­ugu og tvær stöður sem við fækkum um,“ sagði Sigríður Björk í frétta­tíma RÚV í kvöld.

Rík­is­lög­reglu­stjór­inn útskýrði þar til­drög útgjald­anna. Hún sagði emb­ættið hafa verið með 11,7 millj­arða króna veltu og fjölda ólíkra og óvæntra verk­efna, eins og að byggja varn­ar­garða við Grinda­vík og taka upp teiser-vopn. 160 starfs­menn komu að verk­efnum tengdum Grinda­vík, sagði Sigríður Björk.

„Þessi aðferða­fræði, lean, sem er í raun­inni verk­efna­stjórnun, sýnir bara hversu mikið af fjöl­breyttum verk­efnu við erum með og einmitt það að geta vaxið og minnkað eftir þörfum. Mjög mikið af verk­efnum sem koma í fangið á okkur, ófjár­mögn­uðum. Ég er ekki viss um að við hefðum geta sinnt öllum þessum verk­efnum sem við höfum sinnt, tekið þau hratt og örugg­lega, nema einmitt af því að við notum þessa aðferða­fræði, og þá með ráð­gjafa, að geta unnið með flókin verk­efni og þvert á deildir og ein­ingar,“ sagði hún í fréttum RÚV.

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra og Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri munu hitt­ast á morgun. Þær hafa ekki rætt málið fram að þessu, ráð­herr­ann snupraði rík­is­lög­reglu­stjóra í fréttum RÚV í kvöld. „Fyrstu við­brögð er að þetta slær mig ekki sem góð með­ferð á opineru fé,“ sagði Þorbjörg Sigríður dóms­mála­ráð­herra og vís­aði til reglna um opin­ber inn­kaup.

„Við erum búin að vita í ein­hvern tíma að þetta kæmi, og það er margt óheppi­legt í þessu“
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir
Rík­is­lög­reglu­stjóri um við­skipti við ráð­gjafa

„En við höfum verið í þéttum sam­skiptum út af fjár­málum emb­ætt­is­ins, bara frá því í febr­úar,“ sagði Sigríður Björk, og svar­aði til um sam­skipti þeirra um málið: „Ekki annað en að ég upp­lýsti að ég væri að fara í við­töl og þetta mál, við erum búin að vita í ein­hvern tíma að þetta kæmi, og það er margt óheppi­legt í þessu, en á heild­ina litið erum við mjög stolt af því hvernig þessi verk­efna­stjórnun hefur farið fram og gert okkur kleift að bregð­ast við ólíkum verk­efnum sem koma upp með litlum fyr­ir­vara.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    29. október 2025 13:24
    Skammarlegt fordæmi ríkislögreglustjóra um "stuld" á almannafé og vinavæðingu.
    2
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Skammarlegt fordæmi ríkislögreglustjóra um "stuld" á almannafé og vinavæðingu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár