Greiddu stjórnendaráðgjafa milljónir fyrir húsgagnaráðgjöf

Stjórenda­ráð­gjafi hefur fengið 190 millj­ónir króna frá emb­ættum undir stjórn Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra. Millj­ónir voru greiddar fyrir aðstoð og ráð­gjöf um gard­ínur, val á sorp­flokk­unar­í­látum og pæl­ingar um upp­setn­ingu á pílu­spjöldum.

Greiddu stjórnendaráðgjafa milljónir fyrir húsgagnaráðgjöf
Rík­is­lög­reglu­stjóri Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri hefur ráðið Intru ráð­gjöf til aðstoðar bæði hjá emb­ætt­inu sem hún stýrir nú og hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Golli

Ráð­gjafa­fyr­ir­tæki hefur á und­an­förnum árum fengið 190 millj­óna króna greiðslur frá tveimur emb­ættum undir stjórn Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra. Stærstur hluti hefur verið greiddur af emb­ætti Rík­is­lög­reglu­stjóra, sem hefur greitt fyr­ir­tæk­inu 160 millj­ónir króna. Frá þessu greinir RÚV.

Á bak við Intru ráð­gjöf er Þórunn Óðins­dóttur, sér­fræð­ingur í Lean Manag­ment. Verk­efnin sem hún vann fyrir emb­ættin snér­ust fyrst og fremst að stjórn­enda­ráð­gjöf og -þjálfun. Á síð­ari stigum fóru þau hins vegar líka að snúa að umsýslu í kringum fast­eigna­mál emb­ætt­is­ins. 

Samkvæmt útreikn­ingum frétta­stofu RÚV nam umfang vinn­unnar sem Intra sinnti fyrir emb­ætti Rík­is­lög­reglu­stjóra um 4.800 klukku­stundum. Mikill hluti þeirrar vinnu hafi átt sér stað eftir að verk­efni óskyld upp­haf­legri stjórn­un­ar­ráð­gjöf bætt­ust við samn­ing­inn.

Í frétt RÚV kemur fram að á fyrstu sex mán­uðum þessa árs hafi ráð­gjafa­fyr­ir­tæki Þórunnar fengið greitt fyrir hátt í þús­und klukku­stundir. Það jafn­gildir fullri dag­vinnu á hálfu ári. Fyrir þessa vinnu hafi emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra greitt tæpar 33 millj­ónir króna. 

Meðal verk­efna sem Þórunn rukk­aði fyrir voru að skoða hús­gögn í IKEA og Jysk, ígrunda hvar væri hægt að setja upp pílu­spjöld, koma með til­lögur að sorp­flokk­unar­í­látum og senda beiðni um að breyta heitum á fund­ar­her­bergjum. Sama tíma­gjald var á þessum verk­efnum og stjórn­enda­ráð­gjöf­inni; 36 þús­und krónur með virð­is­auka­skatti, á hverja vinnu­stund. 

Á sama tíma þurfti emb­ættið að óska eftir 80 millj­óna króna við­bót­ar­fjár­veit­ingu á fjár­auka­lögum síð­ast­liðið sumar til að standa undir kostn­aði við nýliða­nám­skeið fyrir sér­sveit lög­regl­unnar, nám­skeið sem ann­ars hefði fallið niður.

Til sam­an­burðar bendir RÚV á að á fjög­urra ára tíma­bili, 2018 til 2021, greiddi heil­brigð­is­ráðu­neytið alls 55 millj­ónir króna fyrir alla aðkeypta ráð­gjöf, og dóms­mála­ráðu­neytið 86 millj­ónir. Greiðslur rík­is­lög­reglu­stjóra til Intru á aðeins rúmum tveimur árum, frá 2023 til þessa árs, nema hins vegar 92 millj­ónum króna.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helgi Guðmundsson skrifaði
    Nú eru góð ráð dýr.
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Þetta er allt komið i góðan og eðlilegan farveg. Búið að ráða vinkonuna í fullt job hjá embætinu, þannig að allir geti unað glaðir við sitt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár