Stjórnendaráðgjafinn vinnur áfram að húsnæðismálum ríkislögreglustjóra

Stofn­andi og eini starfs­maður Intru ráð­gjafar, sem hefur fengið 160 millj­ónir króna greiðslur frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir ýmis verk­efni, var í byrjun sept­em­ber ráðin í fullt starf á skrif­stofu Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra. Staðan var ekki aug­lýst.

Stjórnendaráðgjafinn vinnur áfram að húsnæðismálum ríkislögreglustjóra
Yfir­maður Þórunn starfar nú sem sér­fræð­ingur á skrif­stofu Sigríðar Bjarkar rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Golli

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur ráðið stjórn­enda­ráð­gjafann Þórunni Óðins­dóttur, eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins Intru ráð­gjafar, til starfa á skrif­stofu emb­ætt­is­ins. Ráðn­ingin er tíma­bundin og var staðan ekki aug­lýst.

Frétta­stofa RÚV greindi frá því í gær að Þórunn hefði í gegnum Intru fengið greiddar 160 millj­ónir króna fyrir ýmis og fjöl­breytt verk­efni hjá emb­ætt­inu. Hún er stjórn­enda­ráð­gjafi og sér­fræð­ingur í Lean Mana­gement, en var falið að velja gard­ínur og fara í skoð­unar- og inn­kaupa­ferðir í Jysk og IKEA fyrir emb­ættið. 

Í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar kemur fram að hún muni halda áfram verk­efnum sem tengj­ast hús­næð­is­málum emb­ætt­is­ins. Þar segir einnig að Þórunn hafi verið ráðin 5. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og gegni stöðu sér­fræð­ings á skrif­stofu rík­is­lög­reglu­stjóra. Hún sinnir verk­efnum sem tengj­ast hús­næð­is­málum emb­ætt­is­ins og stjórn­un­ar­ráð­gjöf, en ráðn­ingin gildir í þrjá mán­uði.

Þórunn hefur þó gegnt ígildi fulls starfs hjá emb­ætt­inu mun lengur, en í frétta­flutn­ingi RÚV segir að á fyrstu sex mán­uðum þessa árs hafi Intra fengið greiddar hátt í þús­und klukku­stundir, sem jafn­gildir fullri dag­vinnu. 

Ákvörð­unin um fast­ráðn­ingu var tekin „í lok sum­ars þegar ljóst var að nið­ur­staða vegna hús­næð­is­mála emb­ætt­is­ins myndi drag­ast á lang­inn“, að því er segir í svari emb­ætt­is­ins.

Fyrra samstarf fyrir tugi milljóna

Þórunn hefur á und­an­förnum árum veitt rík­is­lög­reglu­stjóra og stofn­unum undir stjórn Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur víð­tæka stjórn­un­ar­ráð­gjöf. Samkvæmt gögnum sem frétta­stofa RÚV greindi frá í gær hefur emb­ættið keypt þjón­ustu af Intru fyrir um 160 millj­ónir króna, og heild­ar­greiðslur frá stofn­unum undir stjórn Sigríðar Bjarkar nema um 190 millj­ónum króna.

Þjón­ustan hefur meðal ann­ars tengst inn­leið­ingu á Lean Mana­gement-verk­ferlum og umbóta­starfi innan emb­ætt­is­ins. Það er þó ekki síst ráð­gjöf Þórunnar um skipu­lag vinnu­rýma, þar á meðal val á gard­ínum, sorp­flokk­unar­í­látum og upp­setn­ingu á pílu­spjöldum, sem hefur vakið athygli. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár