Uppsögn bandarísks aðmíráls vekur spurningar

Aðmíráll Banda­ríkja­hers yfir Suður-Ameríku, sem sér um árásir á grun­aða smygl­ara, hefur til­kynnt um brott­hvarf sitt.

Uppsögn bandarísks aðmíráls vekur spurningar
Alvin Holsey Hættir á hátindi stærsta verk­efnis fer­ils síns. Mynd: AFP

Banda­ríski aðmírál­l­inn sem ber ábyrgð á umdeildum árásum á meinta fíkni­efna­smygl­ara í Karí­ba­hafi sagði í gær að hann myndi láta af störfum eftir aðeins eitt ár í emb­ætti.

Aðmírál­l­inn Alvin Holsey lætur af störfum sem yfir­maður suð­ur­her­stjórnar Banda­ríkja­hers (US Southern Command), sem ber ábyrgð á banda­rískum her­sveitum sem starfa í Mið- og Suður-Ameríku.

Banda­rísk yfir­völd hafa sent umtals­verðan her­afla á svæðið, þar á meðal orr­ustu­þotur og sjö her­skip, sem hluta af því sem stjórn­völd segja vera aðgerðir gegn fíkni­efna­smygli á svæð­inu.

Hingað til hafa banda­rískar her­sveitir gert árásir á að minnsta kosti fimm meinta fíkni­efna­smygl­báta í Karí­ba­hafi sem hafa leitt til dauða 27 manns, í her­ferð sem sér­fræð­ingar segja að sé ólög­leg. Trump hefur hins vegar skil­greint grun­aða smygl­ara sem erlenda óvina­her­menn og rétt­lætt með þeim hætti að þeir séu drepnir án dóms og laga.

Hern­að­ar­upp­bygg­ingin hefur vakið ótta í Caracas um að loka­mark­miðið séu stjórn­ar­skipti í Venes­ú­ela.

„Frá og með 12. des­em­ber 2025 mun ég láta af störfum í banda­ríska sjó­hernum,“ sagði Holsey í yfir­lýs­ingu sem birt var á X-reikn­ingi suð­ur­her­stjórn­ar­innar.

„Það hefur verið heiður að þjóna þjóð okkar, banda­rísku þjóð­inni og styðja og verja stjórn­ar­skrána í yfir 37 ár,“ sagði hann, án þess að gefa skýr­ingu á því hvers vegna hann lætur af störfum fyrr en áætlað var. New York Times hefur hins vegar eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­mönnum innan kerf­is­ins að aðmírál­l­inn hefði lýst áhyggjum sínum af árás­unum á grun­aða fíkni­efna­smygl­ara. Trump til­kynnti í vik­unni að hann væri að íhuga að gera árásir á landi í Venes­ú­ela í stríði sínu gegn meintum smygl­urum og klíkum, sem hann fellir undir lög um bar­áttu gegn hryðju­verkum.

Frá því að Donald Trump for­seti hóf sitt annað kjör­tíma­bil í Hvíta hús­inu í jan­úar hefur hann staðið fyrir hreins­unum á æðstu yfir­mönnum hers­ins, þar á meðal for­manni her­for­ingja­ráðs­ins, Charles „CQ“ Brown hers­höfð­ingja, sem hann rak án skýr­inga í febr­úar.

Aðrir hátt­settir yfir­menn sem reknir hafa verið á þessu ári eru meðal ann­ars yfir­menn sjó­hers­ins og strand­gæsl­unnar, hers­höfð­ing­inn sem stýrði Þjóðar­ör­ygg­is­stofn­un­inni, aðstoð­ar­for­ingi flug­hers­ins, aðmíráll í sjó­hernum sem starf­aði hjá NATO og þrír hátt­settir her­lög­fræð­ingar.

Foringi flug­hers­ins til­kynnti einnig að hann myndi láta af störfum án skýr­inga eftir aðeins tvö ár af fjög­urra ára skip­un­ar­tíma.

Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra, hefur haldið því fram að for­set­inn sé ein­fald­lega að velja þá leið­toga sem hann vill, en þing­menn Demókra­ta­flokks­ins hafa lýst yfir áhyggjum af hugs­an­legri póli­tískri íhlutun í banda­ríska her­inn, sem jafnan er hlut­laus.

Fyrr á þessu ári fyr­ir­skip­aði Hegseth einnig að minnsta kosti 20 pró­senta fækkun á fjölda fjög­urra stjörnu hers­höfð­ingja og aðmírála í virkri þjón­ustu í banda­ríska hernum, auk 10 pró­senta fækk­unar á heild­ar­fjölda hers­höfð­ingja og flota­for­ingja.

Í síð­asta mán­uði voru allir yfir­menn yfir her­afla Banda­ríkj­anna, inn­an­lands sem erlendis, boð­aðir á fund þar sem Trump for­seti og Hegseth stríðs­mála­ráð­herra boð­uðu nýjar áherslur í her­málum, meðal ann­ars útvíkkun á skil­grein­ingu hryðju­verka­hópa, sem nú ná yfir and­fas­ista og smygl­ara, og stríð gegn innri óvini í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár