Bandaríkjaforseti íhugar loftárásir í Venesúela

Donald Trump hefur lýst meinta fíkni­efna­smygl­ara rétt­dræpa sem erlenda óvina­her­menn og lætur aflífa þá án dóms og laga í land­helgi Venes­ú­ela. Banda­ríska leyni­þjón­ustan sögð hafa fengið heim­ild til bana­til­ræða í Venes­ú­ela.

Bandaríkjaforseti íhugar loftárásir í Venesúela
Donald Trump Hefur heim­ilað stríðs­mála­ráð­herra sínum, Pete Hegseth, að drepa grun­aða fíkni­efna­smygl­ara án dóms og laga á haf­inu út af ströndum Venes­ú­ela. Nú vill hann loft­árásir innan landamæra Venes­ú­ela. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í dag að hann væri að íhuga árásir á landi gegn venes­ú­elskum eit­ur­lyfja­hringjum. Þetta kemur í kjöl­far nokk­urra mann­skæðra loft­árása á báta sem sagðir voru flytja eit­ur­lyf, án þess þó að sann­anir þess efnis hafi birst.

„Við erum vissu­lega að horfa til lands núna, því við höfum náð mjög góðum yfir­ráðum á hafi úti,“ sagði Trump við frétta­menn í for­seta­skrif­stof­unni þegar hann var spurður hvort hann væri að íhuga árásir á landi.

Trump neit­aði hins vegar að stað­festa frétt New York Times um að hann hefði leyni­lega heim­ilað CIA að fram­kvæma leyni­legar aðgerðir í Venes­ú­ela gegn stjórn Nicolas Maduro for­seta.

Þegar hann var spurður hvort hann hefði veitt CIA heim­ild til að „taka út“ Maduro, eða að ráða hann af dögum, svar­aði Trump: „Það er fárán­leg spurn­ing að leggja fyrir mig. Ekki beint fárán­leg spurn­ing, en væri það ekki fárán­legt af mér að svara henni?“

Trump, sem hefur lýst sér sem frið­ar­sinna, hefur víkkað út skil­grein­ingu á erlendum her­mönnum þannig að þær nái yfir grun­aða fíkni­efna­smygl­ara. Sömu­leiðis hefur hann talað fyrir því að and­fas­istar í Banda­ríkj­unum, undir merkjum slag­orðs­ins Antifa, séu hryðju­verka­menn og boðað að þeir verði upp­rættir, sem og verði stuðn­ings­menn þeirra leit­aðir uppi.

Heræfingar í Venesúela

Venes­ú­ela tekur hót­un­unum, bæði opin­berum og leyni­legum, alvar­lega.

Í gær voru haldnar her­æf­ingar undir stjórn Maduro með­fram allri Atl­ants­hafs- og Karí­ba­hafs­strönd Venes­ú­ela og aðrar hern­að­ar­að­gerðir eru fyr­ir­hug­aðar í hér­uðum við landa­mærin að Kólumbíu.

Í skila­boðum á sam­fé­lags­miðl­inum Telegram sagði Maduro að hann væri að virkja her­inn, lög­regl­una og þjóð­varð­lið til að verja „fjöll, strendur, skóla, sjúkra­hús, verk­smiðjur og mark­aði“ Venes­ú­ela.

Trump sagði á þriðju­dag að í annarri árás á báta sem sagðir voru flytja fíkni­efni frá Venes­ú­ela hefðu sex „eit­ur­lyfja­hryðju­verka­menn“ fallið.

Að minnsta kosti 27 manns hafa fallið í árásum Banda­ríkj­anna hingað til. Sér­fræð­ingar efast um lög­mæti þess að aflífa grun­aða án dóms og laga á erlendu eða alþjóð­legu haf­svæði, án þess að stöðva eða yfir­heyra við­kom­andi.

Gustavo Petro, for­seti Kólumbíu, hefur sagt að hann telji að sumir þeirra sem lét­ust hafi verið kól­umbískir.

Trump sakar Maduro um að stýra eit­ur­lyfja­hring – ásak­anir sem Maduro neitar.

Áður en hern­að­ar­að­gerðir voru hertar tvö­fald­aði dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna í ágúst verð­launafé til höf­uðs Maduro í 50 millj­ónir dala fyrir upp­lýs­ingar sem gætu leitt til hand­töku hans.

Niculas MaduroTalinn ein­ræð­is­herra af flestum vest­rænum ríkjum, er hinn 62 ára gamli for­seti Venes­ú­ela fyrr­ver­andi verka­lýðs­leið­togi. Fjöl­miðla­frelsi hefur hrunið í land­inu frá því Maduro tók við völdum 2013 af for­vera sínum, Hugo Chávez.

Fordæmir valdaránstilraun CIA

Forseti Venes­ú­ela, Niculas Maduro, for­dæmdi á mið­viku­dag það sem hann kall­aði „valda­rán skipu­lögð af CIA“.

„Nei við stríði í Karí­ba­hafi ... Nei við stjórn­ar­skiptum ... Nei við valdaránum skipu­lögðum af CIA,“ sagði vinstri­s­inn­aði og ein­ræð­is­sinn­aði leið­tog­inn í ávarpi til nefndar sem var sett á fót eftir að banda­rísk yfir­völd sendu her­skip til Karí­ba­hafs­ins í yfir­lýstum aðgerðum gegn eit­ur­lyfjum.

Maduro er víða sak­aður um að hafa haldið völdum með kosn­inga­svindli í fyrra, en eins og þekkt er hafa millj­ónir flúið Venes­ú­ela undan efna­hag­skreppu og ein­ræð­is­stjórn lands­ins, þar á meðal þús­undir til Íslands.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár