Líkamsleifar fanga Ísraela bera merki um pyndingar og aftökur, segja læknar

Ísraelsk yfir­völd afhendu lík­ams­leifar palest­ínskra fanga. „Næstum öll höfðu verið tekin af lífi,“ segir læknir.

Líkamsleifar fanga Ísraela bera merki um pyndingar og aftökur, segja læknar
Afhend­ing lík­ams­leifa fanga Starfs­fólk lík­húsa Nasser-spít­al­ans í Khan Yunis tekur við lík­ams­leifum palest­ínskra fanga sem ísra­elsk yfir­völd afhendu í gær. Samkvæmt vopna­hléssamn­ingi ber Ísraelum að skila lík­ams­leifum 15 Palest­ínu­manna fyrir lík­ams­leifum hvers Ísra­els­manns. Mynd: AFP

Lík­ams­leifar 90 palest­ínskra fanga sem ísra­elsk yfir­völd skil­uðu til Gaza sam­kvæmt nýgerðu vopna­hléssam­komu­lagi, báru merki um pynt­ingar og aftökur. Þar á meðal virð­ast fang­arnir hafa verið með bundið fyrir augu, með bundnar hendur og skotsár á höfði, að sögn lækna sem breska blaðið Guardian vitnar til.

Sem hluti af vopna­hléi sem Banda­ríkin áttu milli­göngu um hafa Hamas-sam­tökin skilað líkum gísla sem lét­ust í stríð­inu, og Ísrael afhent lík­ams­leifar tveggja hópa, hvorum um sig 45 Palest­ínu­manna, sem féllu í átök­unum. Skiptin fóru fram í gegnum Alþjóða Rauða kross­inn (ICRC).

Læknar á Nasser-sjúkra­hús­inu í Khan Younis í suð­ur­hluta Gaza, sem tók á móti lík­unum frá Rauða kross­inum, sögð­ust í gær hafa séð veru­leg ummerki um bar­smíðar og aftökur og að ekk­ert lík­amanna væri auð­kenn­an­legt. „Næstum öll voru með bundið fyrir augu og bundnar hendur og þau voru með skotsár á milli augn­anna. Næstum öll höfðu verið tekin af lífi,“ sagði Dr. Ahmed al-Farra, yfir­læknir barna­deildar Nasser-sjúkra­húss­ins.

„Það voru líka ör og aflitun á húð sem sýndi að þau höfðu verið barin áður en þau voru drepin. Það voru líka merki um að líkum þeirra hefði verið mis­þyrmt eftir dauð­ann.“

Farra bætti við að ísra­elsk yfir­völd hefðu afhent líkin án auð­kenn­ingar og að sjúkra­hús í Gaza, sem hefðu orðið fyrir miklum loft­árásum á tveimur ára stríðs­tíma­bili, hefðu ekki tök á að gera DNA-rann­sóknir.

„Þeir þekkja auð­kenni þess­ara lík­ama en þeir vilja að fjöl­skyld­urnar þjá­ist enn meira út af þessum fórn­ar­lömbum,“ sagði lækn­ir­inn.

Stjórn­endur Nasser-spít­al­ans sögðu lík sem hefðu verið geymd í kælikistum í Ísrael hafa verið afhent með núm­eramiðum en án nafna. Læknar sögðu að biðlað hefði verið til nán­ustu aðstand­enda palest­ínskra karl­manna sem saknað væri að aðstoða við auð­kenn­ingu.

Alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn (ICC) rann­sakar stríðs­glæpa­á­sak­anir á hendur báðum aðilum í tveggja ára stríð­inu í Gaza, þar á meðal dráp Ísra­els­hers á 15 palest­ínskum sjúkra­flutn­inga- og björg­un­ar­sveit­ar­mönnum sem fund­ust í grunnri gröf í mars, eftir að mynd­band hafði sýnt atburða­rás­ina.

Að sögn yfir­stjórnar sjúkra­húss­ins sem kom að því máli voru fórn­ar­lömbin kefluð á höndum og fótum og höfðu verið skotin í höfuð.

Afhend­ing lík­ams­leifa af hálfu beggja aðila hafa reynst stór hindrun í inn­leið­ingu vopna­hlés­ins sem tók gildi um helg­ina. Ísrael til­kynnti að hægja yrði á afhend­ingu mann­úð­ar­að­stoðar inn í Gaza vegna tafa á afhend­ingu 28 líka ísra­el­skra gísla sem taldir eru hafa lát­ist í stríð­inu. Þá full­yrtu ísra­elsk stjórn­völd að eitt lík­anna sem hefði verið afhent væri ekki úr hópi fyrr­ver­andi gísla.

Á mið­viku­dags­kvöld til­kynnti Hamas að hóp­ur­inn hefði skilað öllum jarð­neskum leifum lát­inna gísla sem hann hefði aðgang að, og ísra­elski her­inn stað­festi að Rauði kross­inn hefði mót­tekið tvö lík til við­bótar í Gaza.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Appelsínuguli kallinn í USA og hans ástkæra þjóð bjuggu jú til Hamas og fjármagna þetta stríð.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hamas eru líka glæpamenn.
    -4
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      "Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) rannsakar stríðsglæpaásakanir á hendur báðum aðilum í tveggja ára stríðinu í Gaza,..."
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár