Er búið að eyðileggja miðborgina?

Guðrúnu Haf­steins­dóttur, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, finnst vera búið að eyði­leggja mið­borg Reykja­víkur. Gangandi veg­far­endur sem Heim­ildin náði tali af í mið­bænum eru þó fæstir á sömu skoðun.

Er búið að eyðileggja miðborgina?
Hrátt Sumir við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar eru ekki ýkja hrifnir af nýbygg­ingum í mið­borg­inni. Mynd: Víkingur

Nýverið fór Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í hlað­varps­þátt­inn Sjó­kastið þar sem hún gagn­rýndi meðal ann­ars stjórn­ar­hætti og skipu­lags­mál í Reykja­vík. 

„Skipu­lags­mál borg­ar­innar eru algjör hörm­ung. Mér finnst eig­in­lega búið að eyði­leggja mið­borg­ina. Þessi köldu hús sem hafa verið byggð á Hafn­ar­torgi og víðar [...] Mér finnst þau köld í þess­ari borg­ar­mynd,“ sagði Guðrún í þætt­inum og tók fram að flokkur hennar væri til­bú­inn að taka Reykja­vík­ur­borg að sér til að rétta úr þró­un­inni. 

En er búið að eyði­leggja mið­borg­ina? Heim­ildin fór á stúf­ana og spurði gang­andi veg­far­endur hvort þeir væru sam­mála þess­ari stað­hæf­ingu for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

„[Mér finnst það] ekki rétt en mér finnst ég ekki dóm­bær á það, ég er að vinna í mið­bænum en samt fer ég ekki oft þangað,“ segir Arna Emilía Vig­fús­dóttir. Hún seg­ist þó átta sig á áhyggjum þeirra sem séu á sama …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ES
    Egill Sæbjörnsson skrifaði
    Alltaf góður hann Raggi vinur, hnyttinn, og vinalegur. En hvað á maður að segja, fínt að fólk hafi mismunandi skoðanir og við þurfum öll að þroskast einhvern veginn saman. Konseptið um verndun sögu okkar og að halda rótunum í umhverfinu er annað konsept en hvort ný hús eða gömul séu betri. Mér langar til að svona lauma því inn, að fólk fari meira að hugsa um verndun borgarmyndarinnar. Það vantar algerlega í meðferð hafnarinnar. Þar voru hús rifin sem hefðu getað staðið og gefið okkur og komandi kynslóðum eitthvað til að skilja hvernig lífið var hér á mótunarárum borgarinnar. Í rauninni ætti að vernda allt innan Gömlu Hringbrautar eins og reyndar er talað um í lögum um borgina. En það er eins og það ríki blinda, kannski skiljanleg, því fólk er alltaf innan í þessu svæði og sér það ekki utan frá. Það þarf að passa upp á söguna okkar. Án gömlu húsanna í mibænum væri Reykjavík bara eitthvað allt annað. Og ef það er of mikið tekið af þessu svæði, með nútímabyggingum, og þessi gömlu tekin í burtu, eins og gert var á Hafnartorgi og Vesturbugt, þá... er það eins og að kannski svona mála aðeins inn á Kjarvals málverk, því það þurfi aðeins að bæta það, gera það nú nútímalegra. En, spennandi að sjá hvernig þetta þróast... þetta er nú meira... ég vona að þessi dialogur þróist meira í þá átt sem ég er að ýja hérna að. Peace!
    5
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins ætti að skoða Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-1983. Þar voru mjög róttækar hugmyndir um hraðbrautavæðingu Reykjavíkur og hefði verið skelfilegt ef af hefði orðið.
    Núverandi framkvæmdir í Reykjavík er andstæða fyrri hugmynda Sjálfstæðisflokksins sem réðu bókstaflega öllu í Reykjavík áratugum saman.
    Ætla mætti að formaðurinn stundi steinakast úr eigin glerhúsi.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár