Seðlabankinn kannaði hagsmunaárekstra vegna unnustu Ásgeirs

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er æðsti yfir­maður eft­ir­lits með fjár­fest­inga­sjóði sem unnusta hans stýrir. Seðla­bank­inn segir málið hafa verið skoðað og engar vís­bend­ingar séu um að hann hafi miðlað til hennar upp­lýs­ingum.

Seðlabankinn kannaði hagsmunaárekstra vegna unnustu Ásgeirs
Ásgeir Jónsson og Helga Við­ars­dóttir Helga stofn­aði sjóð­inn eftir að Ásgeir var skip­aður seðla­banka­stjóri og þau trú­lof­uð­ust.

Helga Við­ars­dóttir, unnusta Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra, stýrir fjár­fest­inga­sjóði sem Seðla­bank­inn hefur eft­ir­lit með. Seðla­bank­inn segir mögu­lega hags­muna­á­rekstra hafa verið metna og við­skipti hennar ekki vera sam­bæri­leg við erlend mál þar sem umsvif maka seðla­banka­stjóra á fjár­mála­mörk­uðum hafa dregið í efa trú­verð­ug­leika bank­ans.

Sjóð­ur­inn heitir Spakur Invest og var stofn­aður árið 2021. Helga er fram­kvæmda­stjóri hans, situr einnig í stjórn og er á meðal fjár­festa í honum sam­kvæmt við­tali við hana í Við­skipta­Mogg­anum í ágúst. Sjóð­ur­inn fjár­festir aðeins í hluta­bréfum skráðra breskra og banda­rískra fyr­ir­tækja að hennar sögn, þar á meðal Uber, Stride og McBride. Fjár­festar eru rúm­lega þrjá­tíu og stærð sjóðs­ins tæpur millj­arður íslenskra króna. Sjóð­ur­inn hefur skilað 28,64 pró­sent ávöxtun fyrstu sjö mán­uði árs­ins.

Helga og Ásgeir hafa verið í sam­bandi síðan 2018 en Ásgeir varð seðla­banka­stjóri ári síðar. Þau trú­lof­uðu sig á nýárs­dag 2021, skömmu áður en Helga stofn­aði sjóð­inn, og eru með sama lög­heim­ili.

…

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Auðvitað kemur hér ein af ástæðum þeirra sem eru á móti aðild að ESB ! Regluverk vinnur með venjulegu fólki ! Það er þannig að allt mælir með aðild að ESB hjá okkur hinum !
    0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Allar reglur ESB á þessu sviði gilda nú þegar á Íslandi í gegnum EES samninginn. Nákvæmlega ekkert við það myndi breytast þó Íslandi gengi í ESB. Auk þess er það óheimilt samkvæmt stjórnarskrá og tveimur bindandi þjóðaratkvæðagreiðslum.
      -2
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þetta er mjög óheppilegt og óviðeigandi sem skýrir vel stöðu mála þar sem íslenskar reglur eru væntanlega hvorki jafn nákvæmar og ákveðnar og innan Evrópusambandsins.
    Við búum við fámenni þar sem ýmsir fjáraflamenn komast upp með margt meira en eðlilegt telst vera innan vrópusambandsins. Er þar ekki komin meginskýringin á andstöðu þessara aðila við inngöngu í Evrópusambandið?
    5
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Allar reglur ESB á þessu sviði gilda nú þegar á Íslandi í gegnum EES samninginn. Nákvæmlega ekkert við það myndi breytast þó Íslandi gengi í ESB. Auk þess er það óheimilt samkvæmt stjórnarskrá og tveimur bindandi þjóðaratkvæðagreiðslum.
      -2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Fjárfestar eru rúmlega þrjátíu og stærð sjóðsins tæpur milljarður íslenskra króna. Sjóðurinn hefur skilað 28,64 prósent ávöxtun fyrstu sjö mánuði ársins."
    Skyldi Wintris gamli eiga hluti þarna?
    1
  • GS
    Gunnar Snæland skrifaði
    sjúkt
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár