Hvetja Sönnu áfram og segja tómarúm á vinstri væng stjórnmálanna

„Stöndum með Sönnu!“ er yfir­skrift und­ir­skrift­ar­lista þar sem lýst er yfir stuðn­ingi við Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttir. Bent er á að flokkur hennar, Sós­í­alista­flokkur Íslands, hefur ekki brugð­ist við van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hendur Sönnu sem eitt svæð­is­fé­laga hans birti á dög­unum og að þögnin sé óásætt­an­leg.

Hvetja Sönnu áfram og segja tómarúm á vinstri væng stjórnmálanna

„Stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingin er hvatn­ing til félags­hyggju­fólks að standa með þeim full­trúa í borg­ar­stjórn sem vinnur mark­visst í anda félags­hyggju í borg­inni en hefur þurft að þola mik­inn mót­byr innan eigin flokks frá nýkjörnum stjórnum flokks­ins,“ segja þær Laufey Líndal Ólafs­dóttir og Sara Stef. Hild­ar­dóttir, ábyrgð­ar­menn und­ir­skrifta­söfn­unar til stuðn­ings Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttir, í sam­eig­in­legu svari til Heim­ild­ar­innar um ástæður þess að stofnað var til und­ir­skrifta­list­ans: „Helsta ástæðan er það tóma­rúm sem er orðið til á vinstri vængnum í íslenskum stjórn­málum.“

Sanna er borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins og tekur sem slíkur þátt í meiri­hluta­sam­starf­inu í Reykja­vík­ur­borg. Laufey og Sara hafa báðar starfað lengi innan Sós­í­alista­flokks­ins og gegnt þar trún­að­ar­störfum þar til hall­ar­bylt­ing varð í flokknum í vor. Þá er Sara starf­andi gjald­keri Vor­stjörn­unnar, félags sem stofnað var af fyrri stjórn Sós­í­alista­flokks­ins og hefur fengið hluta af opin­berum styrkjum flokks­ins, og ein þeirra þriggja sem ný fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins kærði til lög­reglu í sumar fyrir efna­hags­brot.

Svæð­is­fé­lag Sós­í­alista­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi sendi á dög­unum frá sér van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á Sönnu þar sem hún er sögð haldin óvild í garð flokks­ins og vinni að því með fyrri stjórn hans að stofna nýjan stjórn­mála­flokk með rík­is­styrk Sós­í­alista­flokks­ins, en Sanna situr í stjórn Vor­stjörn­unnar.

Laufey og Sara segja það sína trú að sá „mót­byr end­ur­spegli ekki vilja meiri­hluta félags­manna flokks­ins og því síður kjós­enda flokks­ins í borg­inni, enda hafa kann­anir und­an­farin 8 ár sýnt fram á mikið traust almennra borg­ara til Sönnu, traust sem nær greini­lega langt út fyrir kjör­fylgi flokks­ins.“

Und­ir­skrift­ar­list­inn er á vefnum Félags­hyggja.com en þar segir meðal ann­ars: „Nýlega var gefin út van­trausts­yf­ir­lýs­ing á hendur Sönnu sem flokkur hennar, Sós­í­alista­flokkur Íslands, hefur ekki brugð­ist við. Þögnin setur starf Sönnu í mikla óvissu. Við teljum það óásætt­an­legt þar sem hún nýtur mik­ils trausts meðal borg­ar­búa eins og kann­anir hafa sýnt.“

„Við höfum skilj­an­lega áhyggjur af störfum hennar undir þessum kring­um­stæðum“

Sanna var end­ur­kjörin sem póli­tískur leið­togi flokks­ins á síð­asta aðal­fundi þar sem full­trúum í stjórn flokks­ins var skipt út fyrir nýja for­ystu. Hún sagði sig hins vegar frá trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn eftir fund­inn.

Í nýlegu við­tali við Sönnu á Sam­stöð­inni sem tekið var í kjöl­far van­trausts­yf­ir­lýs­ing­ar­innar greinir hún frá ólíð­andi fram­komu í sinn garð frá með­limum nýrra stjórna flokks­ins. „Hún greinir þar frá krefj­andi sam­skiptum og óeðli­legum afskiptum stjórna af störfum borg­ar­full­trú­anna. Við höfum skilj­an­lega áhyggjur af störfum hennar undir þessum kring­um­stæðum og vildum því teygja okkur eftir stuðn­ingi við hana út í sam­fé­lagið,“ segja Laufey og Sara.

Þegar þessar línur eru rit­aðar hafa ríf­lega 200 manns skrifað undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við Sönnu.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Þarf ekki eitthvað meira en talvervil GSE til að fylla upp í það tómarúm?
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár