Kvótafjölskyldurnar á Hátekjulistanum

Nær helm­ing­ur út­hlut­aðra afla­heim­ilda er í eigu ör­fárra fjöl­skyldna en þeim til­heyra skattakóng­ur og skatta­drottn­ing síð­asta árs auk annarra sem komust á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar.

Kvótafjölskyldurnar á Hátekjulistanum
Fjölskyldurnar í Ísfélaginu, Samherja og Brimi Sex fjölskyldur stýra hópum þriggja sjávarútvegsfyrirtækja sem halda á nær helmingi allra aflaheimilda. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Sex fjölskyldur stýra þremur hópum tengdra sjávarútvegsfyrirtækja sem halda samtals á nær helmingi allra útgefinna aflaheimilda.

Hátekjulisti Heimildarinnar, sem á eru 3.542 einstaklingar, tekjuhæsta 1% Íslands, sýnir hversu háum tekjum þessi ítök skila fjölskyldumeðlimum.

Eignarhald á þeim aflaheimildum sem ríkið úthlutar hefur verið greint reglulega í Sjávarútvegsskýrslum Heimildarinnar en sú síðasta var birt í júní.

Tuttugu stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi eiga meira en 78 prósent allra aflaheimilda en hverju og einu er óheimilt að eiga meira en 12 prósent. Þrátt fyrir þetta á til dæmis útgerðarfélagið Brim yfir það prósent útgefinna aflaheimilda þegar dóttur- og hlutdeildarfélög þess eru talin með, samkvæmt nýjustu gögnum Fiskistofu.

Brim-fjölskyldan er einn af áðurnefndum þremur hópum sjávarútvegsfyrirtækja en hin eru kennd við Ísfélagið í Vestmannaeyjum annars vegar og Samherja og Síldarvinnsluna hins vegar.

Fjölskylda Guðmundar í Brimi

Þrjú af stærstu útgerðarfélögum landsins lúta stjórn fjögurra …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
6
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár