Drápu fleiri blaðamenn með því að ráðast aftur á sjúkrahús

Minnst 20 lét­ust í árás Ísraels á Kh­an-Yun­is-sjúkra­hús­ið á Gaza. Þeirra á með­al voru blaða­menn sem lýstu aðstæðum á vett­vangi og fjöll­uðu um hung­urs­neyð­ina. Að­eins tvær vik­ur eru frá því að sex blaða­menn voru drepn­ir í sams­kon­ar ár­ás á sjúkra­hús.

Drápu fleiri blaðamenn með því að ráðast aftur á sjúkrahús

Yfirvöld í Gaza segja að á meðal 20 sem lét­ust í loft­árás á sjúkra­hús á Gaza í dag hafi verið fimm blaða­menn. Þeir unnu fyrir Reuters, Associated Press og Al Jazeera. Árásin beind­ist að Nasser-sjúkra­hús­inu í Khan Yunis, sem hefur verið skot­mark Ísraels frá því að stríðið hófst. Sjúkra­húsið er eitt af síð­ustu heil­brigð­is­stofn­unum á Gaza sem er enn starf­andi að hluta. 

Alþjóð­leg sam­tök blaða­manna, Committee to Protect Journalists og Reporters Without Borders hafa bent á að á tæpum tveimur árum hafa um 200 blaða­menn verið drepnir í átök­unum. Ekkert stríð hefur kostað jafn marga blaða­menn lífið.

Samkvæmt úttekt Al Jazeera eru látnir blaða­menn nú orðnir 274 tals­ins. 

Fjallaði um hungursneyðina

Í yfir­lýs­ingu frá ísra­elska hernum gerðu her­menn árás á svæðið við Nasser-sjúkra­húsið í Khan-Yunis. Herinn „beini árásum ekki sér­stak­lega að blaða­mönnum“, en aðeins tvær vikur eru liðnar frá því að fjórir blaða­menn Al Jazeera voru drepnir í árásum Ísraela. Sprengju var varpað með dróna á sjúkra­húsið og henni var fylgt eftir með loft­árás á meðan verið var að flytja særða á brott. 

Al Jazeera greindi frá því að mynda­tökur mið­ils­ins, Mohammad Salama, hafi verið drep­inn í árásinni. Í yfir­lýs­ingu segir: „Al Jazeera for­dæmir með sínum sterk­ustu orðum þennan hrylli­lega glæp sem ísra­elska her­námsliðið framdi með því að miða beint á og myrða blaða­menn, sem lið í kerf­is­bund­inni her­ferð til að þagga niður sann­leik­ann.“ 

„Miða beint á og myrða blaða­menn, sem lið í kerf­is­bund­inni her­ferð til að þagga niður sann­leik­ann“
Al Jazeera
for­dæma árásir á blaða­menn

Á meðal ann­arra sem lét­ust var Mariam Abu Daqqa, en síð­asta greinin sem hún skrif­aði fyrir The Associated Press fjall­aði um hung­ursneyð­ina. Hún hafði fjallað með ítar­legum hætti um hung­ursneyð­ina á Gaza sem hefur verið for­dæmd af alþjóða­stofn­unum, en Ísrael hafnar að sé raun­veru­leg.

Nöfn ann­arra blaða­manna sem létu lífið í dag eru Hussam al-Masri sem vann fyrir Reuters, Ahmed Abu Aziz og Moaz Abu Taha.  

Associated Press sagði að þau væru „miður sín og harmi slegin“ yfir dauða Mariam Daqqa, 33 ára frétta­ljós­mynd­ara sem hafði skilað efni fyrir frétta­stof­una frá upp­hafi stríðs­ins. Hún var ekki við störf fyrir AP þegar hún var drepin.

Reuters til­kynnti að sam­starfs­að­ili hennar, Hussam al-Masri, hefði lát­ist og annar, Hatem Khaled, hefði særst í árásinni. „Við erum miður okkar yfir þessum fregnum og krefj­umst taf­ar­lausrar aðstoðar yfir­valda í Gaza og Ísrael til að tryggja Hatem nauð­syn­lega lækn­is­hjálp,“ sagði í yfir­lýs­ingu Reuters.

Samtök palest­ínskra blaða­manna til­kynntu um dauðs­föll Moaz Abu Taha og Ahmad Abu Aziz. AFP greindi frá því að Abu Taha hefði unnið fyrir ýmis palest­ínsk og alþjóð­leg fjöl­miðla­fyr­ir­tæki.

Reykur og blóðugar líkamsleifar

Tak­markað aðgengi fjöl­miðla er að Gaza. Vegna þess hefur AFP ekki getað sann­reynt upp­lýs­ingar frá Ísrael með sjálf­stæðum hætti. 

Myndefni AFP sýnir reyk hins vegar fylla loftið og brak liggja fyrir utan sjúkra­húsið. Palest­ínu­menn bera lík og lim­lestar lík­ams­leifar inn í bygg­ing­una. Á einum stað sést lík hanga af efstu hæð húss­ins á meðan maður hrópar fyrir neðan. 

Kona sem var klædd eins og læknir var borin á börum inn í sjúkra­húsið, með rauða bletti á hvítum sloppnum og blóð­ugan fót. 

Síðar í dag báru hópar fólks lík nokk­urra blaða­manna til grafar í Khan Yunis. Þeir voru vafðir í hvít lík­klæði og fjöl­miðla­vesti þeirra lögð ofan á líkin. 

Krefjast tafarlausra skýringa

Eftir árás­ina krafð­ist Foreign Press Association „taf­ar­lausra skýr­inga“ frá ísra­elska hernum og for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. „Við krefj­umst þess að Ísrael hætti í eitt skipti fyrir öll þeirri við­bjóðs­legu aðgerð að miða á blaða­menn,“ sagði í yfir­lýs­ingu.

Í árás sem beint var að blaða­mönnum Al Jazeera lét­ust einnig tveir laus­ráðnir blaða­menn. Það var í loft­árás sem gerð var á Al-Shifa-sjúkra­húsið í Gaza sem olli mik­illi reiði. Ísrael full­yrti þá að á meðal hinna látnu væri með­limur í Hamas, en síðar kom í ljós að hann hafði unnið sem upp­lýs­inga­full­trúi stjórn­valda um stutt skeið í upp­hafi starfs­fer­ils­ins. 

Samtökin Committee to Protect Journalists for­dæmdu árás­ina með þeim orðum að blaða­menn ættu aldrei að vera skot­mörk í stríði.

Ísrael hefur haldið því á lofti að stríðið gegn Gaza sé and­svar við árás sem Hamas framdi í Ísrael í októ­ber 2023. Í þeirri árás lét­ust 1.219, flestir óbreyttir borg­arar. Nú hefur Ísrael drepið minnst 62.744 Palest­ínu­menn, flesta óbreytta borg­ara, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stjórn­völdum í Gaza sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar telja áreið­an­legar. 

Í dag hafa minnst 54 verið drepnir á Gaza, sam­kvæmt sam­an­tekt Al Jazeera. 

Blaðamenn myrtir og aðgangur heftur 

Í fyrri hluta ágúst­mán­aðar sendi Blaða­manna­fé­lag Íslands frá sér yfir­lýs­ingu þar sem morð Ísra­els­hers á blaða­mönnum á Gaza eru harð­lega for­dæmd. Þar segir: „Stjórn­völd í Ísrael hafa opin­ber­lega við­ur­kennt að hafa með skipu­lögðum hætti beint árásum sínum að blaða­mönnum.“ 

Með því að gera blaða­menn að skot­mörkum reyni Ísrael að „koma í veg fyrir að almenn­ingur, og þar með alþjóða­sam­fé­lagið, fái réttar og sannar upp­lýs­ingar um það sem þar er í gangi og geti brugð­ist við stríðs­glæpum og mann­rétt­inda­brotum.“

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig bent á að stjórn­völd í Ísrael hefti aðgang erlendra blaða­manna inn á Gazasvæðið: „Á sama tíma og Ísra­els­her myrðir palest­ínska blaða­menn sem flytja fréttir frá Gaza og ísra­elsk stjórn­völd koma í veg fyrir að erlendir blaða­menn og frétta­miðlar fái aðgang að vett­vangi, fremja Ísra­els­menn þjóð­ar­morð á Palest­ínu­mönnum.“

BÍ beinir yfir­lýs­ingu sinni til Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra. Kallar félagið eftir því að „íslensk stjórn­völd stígi harðar fram gegn aðgerðum Ísraels gegn almenn­ingi og blaða­mönnum á Gaza og sýni frum­kvæði og dug í bar­átt­unni fyrir mann­rétt­indum, alþjóða­lögum og sann­leik­anum.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár