Bað um hjálp Trumps til að fá aðild að Evrópusambandinu

Ung­verja­land hindrar aðild Úkraínu að Evr­ópu­sam­band­inu.

Bað um hjálp Trumps til að fá aðild að Evrópusambandinu
Vill inn í ESB Volodomyr Zelensky Úkra­ínu­for­seti telur aðild að Evr­ópu­sam­band­inu mik­il­væga. Mynd: AFP

Úkra­ínski for­set­inn Volody­myr Zelensky hefur upp­lýst að á fundi hans með Donald Trump á mánu­dag, hafi hann beðið Banda­ríkja­for­set­ann um að þrýsta á Ung­verja­land að falla frá neit­un­ar­valdi sínu gegn umsókn Úkraínu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB).

Úkraína sótti um aðild að ESB nokkrum dögum eftir að Rússland réðst inn í landið í febr­úar 2022, en hefur ekki getað haldið áfram aðild­ar­við­ræðum vegna neit­un­ar­valds sem Viktor Orban, þjóð­ernis- og ein­ræð­is­sinn­aður for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, hefur beitt.

„Ég bað Trump for­seta um að Búdapest myndi ekki hindra aðild okkar að Evr­ópu­sam­band­inu,“ segir Zelensky.

„Trump for­seti lof­aði að teymi hans myndi vinna að þessu,“ bætti hann við.

Úkraína hefur viljað aðild að varn­ar­banda­lag­inu Nató, en vegna and­stöðu Rúss­lands og þar með Banda­ríkj­anna við það er talið lík­legra að Evr­ópu­sam­bands­að­ild gæti haft áhrif til að tryggja öryggi lands­ins gagn­vart Rússum.

Stjórn­völd í Ung­verja­landi, nán­asta banda­manni Rúss­lands innan ESB, segir að aðild Úkraínu að Evr­ópu­sam­band­inu skapi örygg­is­á­hættu og að það að taka landið inn á meðan það er í stríði myndi draga Ung­verja­land inn í átök við Rússland.

Stjórn­völd Úkraínu segja áhyggjur Ung­verja­lands vera ástæðu­lausar.

„Það er algjör­lega sann­gjarnt að Úkraína vilji ganga í Evr­ópu­sam­bandið ... Þetta er full­veld­is­réttur okkar,“ sagði Zelensky við blaða­menn.

Sam­skipti milli land­anna tveggja hafa versnað veru­lega síðan stríðið hófst.

Orban hefur neitað að senda hern­að­ar­að­stoð til Úkraínu og hefur jafn­framt hindrað hluta af aðstoð ESB til lands­ins.

Í júlí kall­aði Ung­verja­land sendi­herra Úkraínu á sinn fund í kjöl­far full­yrð­inga um að ein­stak­lingur af ung­verskum þjóð­ern­is­minni­hluta hefði lát­ist nokkrum vikum eftir að her­menn í Úkraínu hefðu ráð­ist á hann.

Örygg­is­þjón­usta Úkraínu sagði í maí að hún hefði hand­tekið tvo meinta ung­verska njó­sn­ara, sem leiddi til þess að löndin tvö vís­uðu tveimur sendi­er­ind­rekum hvort úr landi.

Rík­is­stjórn Íslands stefnir að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu „eigi síðar en 2027“.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár