Sendir hermenn til Washington

„Við ætlum að taka höf­uð­borg­ina okkar til baka,“ segir Banda­ríkja­for­seti, sem færir lög­regl­una í Washingtonborg undir stjórn alrík­is­ins.

Sendir hermenn til Washington
Sýnir tölur um glæpa­tíðni Donald Trump, ásamt Pam Bondi (R) rík­is­sak­sókn­ara Banda­ríkj­anna, heldur á uppi skýr­ing­ar­mynd þegar hann talar á blaða­manna­fundi um glæpi í Washington DC, í Brady blaða­manna­sal Hvíta húss­ins í Washington DC, í dag ,11. ágúst 2025. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti rétt í þessu að hann væri að senda þjóð­varð­liða og færa lög­regl­una í Washington undir stjórn alrík­is­ins til að takast á við glæpi í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna og „hreinsa burt“ heim­il­is­lausa.

„Þetta er frels­is­dagur í DC og við ætlum að taka höf­uð­borg­ina okkar aftur,“ sagði Trump á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu. „Ég til­kynni um sögu­legar aðgerðir til að bjarga höf­uð­borg þjóðar okkar frá glæpum, blóðsút­hell­ingum, glund­roða og ves­öld og jafn­vel verra,“ sagði Trump.

Trump segir að lög­reglu­stjóra­emb­ættið í Washington, D.C. verði sett undir stjórn alrík­is­ins. Hann vísar til kafla í sjálf­stjórn­ar­lögum District of Columbia sem veitir honum heim­ild til að taka yfir lög­regl­una þegar „sér­stakar aðstæður neyð­ar­á­stands“ eru fyrir hendi.

For­set­inn kveðst ætla að hreinsa Washington af heim­il­is­lausu fólki, eða „fjar­lægja taf­ar­laust heim­il­is­lausa fólkið úr borg­inni og grípa til skjótra aðgerða gegn glæpum.“

Á blaða­manna­fund­inum til­greindi Trump fleiri borgir sem hann full­yrti að hefði háa glæpa­tíðni, en þær eru undir stjórn Demókrata. Hann telur upp nokkur kunn­ug­leg skot­mörk: New York, Los Angeles, Chicago. Hann nefnir þó ekki borgir í rauðum ríkjum með hæstu morð­tíðn­ina: Memphis, St. Louis eða New Orleans.

New York Times bendir á að orða­lag hans sé áhuga­vert. Hann lýsir sumum íbúum banda­rískra borga sem „caravans of mass youth“ (lestir fjölda ung­menna). Hann skiptir út einu orði úr venju­legum árásum sínum gegn „caravans of mass migrants“ (lestum fjölda inn­flytj­enda). Því virð­ist Trump vera að víkka út það sem hann skil­greinir sem ógnir banda­rísks sam­fé­lags.

Washington Post segir ákvörðun Trumps vera afar óvenju­lega beit­ingu á hern­að­ar­mætti inn­an­lands. Hún komi þrátt fyrir að morð­tíðni hafi lækkað síð­ustu tvö ár í mörgum stór­borgum og sé nú með lægsta móti í marga ára­tugi. Muriel E. Bowser, borg­ar­stjóri Washington D.C., hefur ítrekað bent á að ofbeld­is­glæpum hafi fækkað síð­ustu tvö ár eftir aukn­ingu í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins árið 2023.

Fyrr í sumar alrík­is­væddi Trump þjóð­varð­liðið í Kali­forníu og sendi þangað sér­sveit banda­ríska sjó­hers­ins.

Skömmu eftir að Trump tók við völdum á ný náð­aði hann hund­ruð manna sem höfðu tekið þátt í inn­rás í Þing­húsið í Washington 6. jan­úar 2021.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    "... „caravans of mass youth“ (lestir fjölda ungmenna). Hann skiptir út einu orði úr venjulegum árásum sínum gegn „caravans of mass migrants“ (lestum fjölda innflytjenda)."
    Og þannig mun hann halda áfram. Uppskriftin er að ráðast fyrst á veikasta minnihlutahópinn (innflytjendur, trans ...), svo smám saman fleiri. Á endanum uppgötvar fólkið, að allir tilheyra einum eða öðrum minnihlutahóp. En þá er það yfirleitt of seint.
    3
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Alligator Alcatraz , er það áfangastaðurinn ?
    Eða á kannski að láta þetta fólk „hverfa” ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár