Þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Borgar þú minna til samfélagsins en þú þiggur?“

Stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru „lík­lega bitrir“ og „ein­hver hefur komið illa fram við þá og þeir eru í vand­ræðum með sjálfs­mynd sína,“ skrifar Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þingmaður Sjálfstæðisflokks: „Borgar þú minna til samfélagsins en þú þiggur?“
Jón Pétur Zimsen Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks lýsir þeim sem styðja rík­is­stjórn­ina í pistli á Facebook. Mynd: Alþingi

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, skrifar pistil á Facebook síðu sína í dag þar sem hann lýsir stuðn­ings­fólki rík­is­stjórn­ar­flokk­anna sem „lík­lega bitrum“, „í vand­ræðum með sjálfs­mynd sína“ og segir að þeim finn­ist þeir „ekki metnir að verð­leikum“.

Í pistl­inum, sem er nokkuð ljóð­rænn og byrjar á orð­unum „Hver ertu?“ lýsir Jón Pétur tveimur teg­undum af fólki. Annars vegar þeim sem svara nei við eft­ir­far­andi spurn­ingum og hins vegar þeim sem svara ját­andi og eru stuðn­ings­menn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar eða Flokks fólks­ins.

„Finnst þér erfitt þegar öðrum gengur vel, hvers vegna ekki ég?“ spyr Jón Pétur. „Borgar þú minna til sam­fé­lags­ins en þú þiggur? Þeir sem eru vel stæðir hafa skarað eld að eigin köku með óeðli­legum hætti. Þeir sem þurfa tíma­bundna hjálp til sjálfs­hjálpar eiga að fá að rotna í hel­víti enda aum­ingjar. Ertu stjórn­lyndur?“

„ Þeir sem þurfa tíma­bundna hjálp til sjálfs­hjálpar eiga að fá að rotna í hel­víti enda aum­ingjar“

Jón heldur áfram og beinir sjónum sínum að því sem hann virð­ist sjá sem popúl­íska hegðun stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar. „Ertu til í að tala meira um órétt­læti en að gera raun­veru­lega eitt­hvað í því?“ spyr hann. „Skiptir þig meira máli að fólk haldi að þú sért góður og fáir mörg „like“ á það en að þú gerir raun­veru­lega eitt­hvað í því. Ertu til í stund­ar­vin­sældir þó að það kosti almanna­hag á end­anum? Þeir sem standa sig vel eiga að vinna tölu­verða nauð­ung­ar­vinnu fyrir þá sem leggja sig minna fram. Langar þig að sýn­ast vera góð mann­eskja á net­inu og eltir því það sem er vin­sælt hverju sinni því það er auð­velt að hneyksl­ast á hinu. Ertu yfir­borðs­kenndur og frasatamur? Finnst gott að elta það sem hljómar vel en nennir ekki alveg að kynna þér það? En myndir ALDREI við­ur­kenna það?“

Loks spyr hann hvort les­and­inn sé „x( S,C,F) maður“.

„Þeir sem svara nei eru lík­legir til að sökkva sér í málin, taka afstöðu út frá stað­reyndum en ekki til­finn­ingum. Vilja ÖLLUM gott og lyfta öllum,“ skrifar Jón Pétur og meinar þá lík­lega þá sem ekki styðja rík­is­stjórn­ar­flokk­ana.

„Þeim finnst þeir ekki metnir að verð­leikum og að heim­ur­inn sé ÓSANNGJARN“

„Þeir sem svara Já eru lík­lega bitrir,“ skrifar hann að lokum. „Einhver hefur komið illa fram við þá og þeir eru í vand­ræðum með sjálfs­mynd sína. Þeim finnst þeir ekki metnir að verð­leikum og að heim­ur­inn sé ÓSANNGJARN. Að allt sé ein­hverjum ÖÐRUM að kenna og því nær­tækt að kenna þeim um sem hafa það betur.“

Kjósa
-55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (12)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Mér finnst þetta barnalegt raus.
    1
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Að þessi maður skuli vera þingmaður, en svona vilja sjallarnir hafa þá kolklikkaða.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hann er nú bara skólastjóri. Er þetta ekki spurningin um að geta lesið sér til gagns ?
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hann er í réttum flokki þessi, nógu ands###i leiðinlegur.
    7
  • Hjálmtýr Heiðdal skrifaði
    Þessi þingmaður var eitt sinn skólastjóri!
    5
  • Edvard Guðjónsson skrifaði
    Erfitt að vera Sjalli þessa dagana utan stjórnar án áhrifa og horfa upp á leiðréttingu nýrrar stjórnar á veiðigjöldum fégráðugar útgerðar.
    14
  • Þorvaldur Árnason skrifaði
    Systkinin Kristinn, Nils, Else og Jón eru með þeim auðugustu á lista Viðskiptablaðsins yfir eignafólk landsins.
    7
  • trausti þórðarson skrifaði
    Hann hefur stigið á tappa.
    16
  • Þessi Zimsen er algerlega kolruglaður . Hann ásamt öðrum stóð að einhverju bulli í nokkrar vikur á alþingi til að stoppa frumvarp um veiðigjöld , sem er bara smáaurar. En hvað gerðist ?? það urðu önnur lagafrumvörp sem komust ekki í gegn vegna þvættings og þvælu í stjórnar andstæðingum . Þar má nefna smábátafrumvarpið , breytingu á leigubílalögum ( þar sem S Ingi setti nauðgara og ræningja undir stýri á leigubílum), Utlendingalög, þar sem á að gera það löglegt að henda út hælisleitendum sem gerast brotlegir við lög, nú og kílómetragjaldið sem samið var af fyrri ríkisstjórn. Þessi maður ásamt fleirum er búinn að valda hér miklu tjóni , hann er hreint út sagt kolklikkaður. Hann hefur sannað það að hann er ömurlegasti þingmaðurinn
    18
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hjörðin hjá Sjálfstæðisflokknum hefur oft verið skrítin , en þessi sem skrifað er hér um , er einn sá skrítnasti . Hann sýndi að hann kann að tala um plasttappa .
    19
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár