Braut gegn starfsmanni og greiddi sér kvartmilljarð í arð

Fyrr­ver­andi starfs­maður Trölla­ferða lýsir slæmum aðbún­aði stafs­manna í jökla­ferðum fyr­ir­tæk­is­ins. Eig­and­inn, Ingólfur Ragnar Axelsson, hót­aði að reka starfs­mann fyrir að ganga í stétt­ar­fé­lag. Skömmu síðar greiddi hann sér 250 millj­ónir í arð.

Braut gegn starfsmanni og greiddi sér kvartmilljarð í arð
Eigandi Trölla­ferða Ingólfur Ragnar Axelsson hefur ítrekað lent í deilum við starfs­fólk, sam­keppn­is­að­ila og við­skipta­vini. Mynd: MBL / RAX

Tröll ferða­þjón­usta hagn­að­ist um tæpar 223 millj­ónir króna árið 2023 og velta jókst um helm­ing, fór úr tæpum tveimur millj­örðum í tæpa þrjá milli ára. Þá greiddi félagið eig­anda sínum, Ingólfi Ragnari Axels­syni, 250 millj­ónir króna í arð í fyrra.

Ingólfur stofn­aði fyr­ir­tækið og stýrði því þar til síð­asta sumar þegar Gísli Eyland tók við sem fram­kvæmda­stjóri. Í fyrra fór fyr­ir­tækið einnig út í hót­el­rekstur með tæp­lega millj­arðs fjár­fest­ingu í gisti­heim­ilum á Suð­ur­landi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar koma mál tengd Tröll ítrekað inn á borð verka­lýðs­fé­laga og er fyr­ir­tækið þekkt í geir­anum fyrir að vera hart í horn að taka þegar kemur að rétt­indum starfs­fólks.

Ingólfur hefur reglu­lega ratað í frétt­irnar vegna deilna við starfs­fólk, keppi­nauta og við­skipta­vini. Í vor dæmdi Félags­dómur spænskum starfs­manni hjá félagi Ingólfs í vil en Ingólfur hafði hótað honum upp­sögn ef hann gengi í stétt­ar­fé­lag. Var Ingólfur dæmur til að greiða 1,3 millj­ónir …

Kjósa
85
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár