Bókarkafli: Morð og messufall

Arndís Þór­ar­ins­dóttir og Hulda Sigrún Bjarna­dóttir sendu nýverið frá sér skáld­sög­una Morð og messu­fall. Heim­ildin birtir kafla úr bók­inni.

Bókarkafli: Morð og messufall

 „Við erum fjarska­lega lánsöm hér í kirkj­unni,“ sagði prest­ur­inn ábúð­ar­fullur. „Við höfum alltaf laðað að okkur afburða­fólk. Það er nefni­lega þannig, væna mín, að gott fólk laðar til sín gott fólk!“

Sif sat bein í baki, reyndi að muna allt sem maður átti að muna í atvinnu­við­tölum, kink­aði kolli og reyndi að líta út eins og gott fólk sem lað­að­ist að séra Reyni.

Hún beit á jaxl­inn til að hrista af sér þessi óheppi­legu hug­renn­inga­tengsl og reyndi að láta skakkt bindi prests­ins ekki trufla ein­beit­ing­una. Út um glugg­ann á bak við séra Reyni sá hún kirkj­una, aðeins spöl­korn frá safn­að­ar­heim­il­inu, litla hvíta bygg­ingu með kubbs­legum litlum turni. Kirkjuna sem gat orðið kirkjan hennar ef allt gengi vel.

„Trú­ar­hit­inn hér í holt­inu er slíkur að til okkar hefur kall­ast mik­il­vægt fólk úr atvinnu­líf­inu!“ Séra Reynir brosti út að eyrum. „Ég reikna með að þú kann­ist við hann Kormák Aust­fjörð?“

Sif íhug­aði að þykj­ast kann­ast við téðan Kormák en ákvað að það gæti skapað meiri vand­ræði en það myndi leysa. „Ég held að ég kann­ist við nafnið,“ sagði hún, „en kem ekki alveg fyrir m …“

Reynir brun­aði áfram eins og eim­reið á fullum dampi. „Á að eins nokkrum mán­uðum, get ég sagt þér, hefur hann Kormákur orðið algjör lyk­il­maður hér í sókn­inni, enda hefur hann aldeilis ýmsa kunn­áttu sem við lærum ekki í guð­fræði­deild­inni! Þaul­reyndur maður!“

„Já,“ sagði Sif var­lega. „Einmitt.“ Hún hik­aði. „Hvað sagðir þú að hann gerði hérna?“

„Ó, hann Kormákur minn, hann er allt í öllu!“ sagði séra Reynir kátur. Hann hall­aði sér yfir borðið og spennti greipar.

„Það væri nær að spyrja hvað hann geri ekki!“

„… Hvað gerir hann ekki?“ spurði Sif.

„Tja, hann giftir ekki og jarðar ekki,“ sagði séra Reynir. „Hvorki fermir né skírir. En það er bara spurn­ing um papp­írana! Ég get trúað þér fyrir því að hann Kormákur myndi alveg hik­laust geta afgreitt þessi mál með miklum sóma!“

Sif kink­aði kolli – enn engu nær

 „Hann Kormákur hefur af alveg ein­stakri ósér­hlífni helgað frí­tíma sinn kirkj­unni. Hann er orð­inn, þér að segja, ómissandi í öllu okkar starfi. Að ekki sé talað um seiglu hans í að koma upp kerta­stjaka­safn­inu okkar.“ Séra Reynir band­aði hendi að pappa­kössum sem stóðu í stæðu í horni skrif­stof­unnar.

„Frítíma?“ spurði Sif. „Er hann sem sagt í sókn­ar­nefnd? Eða er hann sjálf­boða­liði?“

„Sjálf­boða­liði?“ spurði séra Reynir hneyksl­aður. „Hann Kormákur?“

„Nei, ég spyr,“ flýtti Sif sér að segja, „af því þú minnt­ist á frí­tíma. Er hann … kirkju­vörður?“

„Hann Kormákur,“ sagði séra Reynir með alvöru­þunga, „er orð­inn hjartað í þess­ari kirkju, það er ekk­ert öðru­vísi. Þér að segja þá ræddi ég við bisk­upinn um það hvort við þyrftum nokkuð prest, hvort það væri ekki nær lagi að ráða Kormák sem sér­legan fram­kvæmda­stjóra kirkj­unnar. En auð­vitað vantar alltaf fleiri hendur á dekk. Æsku­lýðs­prestur gæti létt ýmsu af Kormáki og gefið honum meiri tíma í sín mik­il­vægu störf.“ Séra Reynir horfði rann­sak­andi á Sif. „Segðu mér, væna, ert þú til dæmis lunkin við að hreinsa veggjakrot? Eða losa stíflur úr kló­settum?“

„Ha?“ sagði Sif, eins og bjáni. „Er ekki ein­hver sem er umsjón­ar­maður fast­eign­ar­innar? Kirkju­vörður? Sem sæi um slíkt?“

 „Sjáðu til,“ sagði séra Reynir og hall­aði sér aftur í skrif­borðs­stólnum. „Hann Kormákur er auð­vitað sterk­efn­aður maður og þarf engin ver­ald­leg laun frá kirkj­unni, en engu að síður fannst okkur rétt að koma honum á launa­skrá til þess að hann væri hér í form­legu hlut­verki og gæti komið fram fyrir hönd kirkj­unnar þegar þörf krefði.“

 „Svo hann er kirkju­vörður?“ spurði Sif. Það var svo­lítið erfitt að fylgja séra Reyni og hún fann að hún var byrjuð að svitna.

Séra Reynir starði á hana með van­þóknun sem gat ekki boðað gott. „Heyrir þú ekk­ert sem ég segi, stúlka? Kormákur er allt í öllu í þess­ari sókn. Og aug­ljós­lega gengur ekki að slíkur maður þurfi að djöfl­ast hér með drullu­sokka.“ Hann hvessti augun enn á hana. „Þetta er nátt­úru­lega lif­andi kirkju­starf! Sókn­ar­prest­ur­inn veit aldrei hverju dag­arnir fleygja að honum. Stundum er það veggjakrot unga fólks­ins og þá stekkur fólk út með máln­ing­arpensil sama hvaða starfs­heiti það ber! Stundum er það ferm­ing­ar­barn með maga­pest! Ég þarf að vita hvort þér gæti verið treystandi fyrir drullu­sokknum ef svo bæri undir!“

Sif kyngdi. Það orð fór af séra Reyni að hann væri svo­lítið sér­stakur. Risaeðla, var raunar orð sem hún hafði ítrekað heyrt notað.

 „Ég er vön að leysa úr þeim verk­efnum sem mér eru fengin,“ sagði hún ákveðin. „Stífluð kló­sett eru mér ekki ofviða.“ Séra Reynir kink­aði ánægður kolli. Hann leit á úrið. „Hann Kormákur minn ætl­aði nú að koma,“ sagði hann, „taka við­talið með mér. En eitt­hvað hefur honum seinkað. Við getum ekki ætl­ast til að maður eins og Kormákur sé þræll klukk­unnar.“ Hann horfði alvar­legur á hana. „Mér finnst bara rétt að hugs­an­legur nýr prestur skilji,“ sagði hann, „að hann – eða hún – á ekki bara að aðstoða mig.“

 Sif kink­aði kolli og brosti til að sýna að hún skildi hvað hann væri að meina – sem hún gerði þó alls ekki.

Nýi æsku­lýðs­prest­ur­inn átti sem sagt að vera aðstoð­ar­maður … kirkju­varð­ar­ins?

 Fótatak berg­mál­aði á flísa­lögðum gangi safn­að­ar­heim­il­is­ins og hurð­inni að skrif­stofu Reynis var svipt upp. Inn gekk maður, eitt­hvað eldri en hún, í galla­buxum og blárri skyrtu, með hár sem féll yfir ennið í sveip og kringlótt gler­augu. Þótt hann væri snyrti­legur til fara var hann lemstr­aður á and­liti – næstum eins og hann væri með glóð­ar­auga. Sif fannst hún kann­ast við hann en átt­aði sig ekki alveg á hvaðan. Senni­lega úr fjöl­miðlum?

 „Fyr­ir­gefið mér,“ sagði Kormákur og brosti til Sifjar. Ósjálfrátt brosti hún á móti. „Ég fest­ist aðeins í sím­anum. Takk fyrir að koma, Sif. Við urðum strax mjög spenntir þegar við sáum fer­il­skrána þína, ekki satt, Reynir?“

Reynir virt­ist alveg geta hamið spennu sína en kink­aði samt kolli til Kormáks.

 „Það er alltaf bit­ist um brauðin hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ sagði Reynir og klapp­aði á bunka af starfs­um­sóknum sem lá á borð­inu. „Sjálfum finnst mér að það ætti að vera hluti af guð­fræði­nám­inu að þjóna í nokkur ár í smærri sóknum úti á landi, eins og ég gerði sjálfur, við heim­skauts­baug!“

 „Heim­skauts­baug?“ át Sif upp eftir honum.

 „Já, heldur betur, ég starf­aði í marga mán­uði á Rauf­ar­höfn eftir útskrift, í fal­legu litlu kirkj­unni hans Guðjóns Sam­ú­els­sonar. Hefurðu athugað, væna mín, hvort það vanti kannski prest á Rauf­ar­höfn? Það er bráð­nauð­syn­legt fyrir nýjan prest að kynn­ast okkar minnstu bræðrum í dýpstu og dimm­ustu döl­unum.“

„Bræðrum, systrum, systk­inum, já, já, en aðstæður fólks eru alls konar og bjóða ekki alltaf upp á það að flytja út á land,“ greip Kormákur fram í og Sif kink­aði þakk­lát kolli. Hún efað­ist um að fólkið á Rauf­ar­höfn kynni að meta þessa lýs­ingu Reynis. Og hún gat ekki flutt út á land. Matti átti pabba og föð­ur­fjöl­skyldu í borg­inni.

 „Þetta er frá­bær sókn, verð ég að segja,“ sagði Kormákur ákafur. Augun tindr­uðu af áhuga og hann bað­aði út höndum um leið og hann tyllti sér á skrif­borð­senda Reynis. „Kirkjan sjálf er að vísu ekki alveg í topp­standi – ég slas­aði mig aðeins hérna í gær þegar skökk skáp­hurð hrökk framan í mig!“ Hann hló og benti á glóð­ar­augað. „En við Reynir erum með margt á prjón­unum og okkur veitir ekki af ferskum liðs­auka! Ég var sér­stak­lega spennt ur að sjá hvað þú hefur fjöl­breytta reynslu í gegnum sum­ar­störf. Útfar­ar­stofan, lög­reglan, hjúkr­un­ar­heim­ilið, leik­skól­inn – þetta er allt þarna! Og svo varstu for­maður Félags guð­fræði­nema? Það bendir nú til leið­toga­hæfi­leika, ekki satt, Reynir?“

Ólíkt Reyni virt­ist Kormákur ekki bara hafa lesið fer­il­skrána hennar heldur þótt mikið til koma. Sif rétti úr sér og leið betur.

Hún hafði klætt sig snyrti­lega um morg­un­inn, í dökk­bláan kjól og ljósa peysu sem hún hafði keypt á nytja­mark­aði og verið dálítið ánægð með. Hún var ekki vön að láta mikið á sér bera en nú fannst henni hún næstum óþarf­lega lát­laus þegar hún mætti þessum jákvæðu við­brögðum Kormáks.

Kormákur fór að þylja upp ýmis verk­efni sem verið var að ýta úr vör í sókn­inni. Sif kink­aði kolli á meðan hann lýsti nýj­ungum í ung­menna­starfi, auk­inni þjón­ustu við for­eldra ungra barna og teng­ingu við hjúkr­un­ar­heim­ili hverf­is­ins. Hún greip inn í með orði og orði þegar henni fannst hún geta lagt eitt­hvað gagn­legt til mál­anna en séra Reynir lét nægja að rymja öðru hverju og kinka kolli.

„Kirkja á auð­vitað að vera meira en bygg­ing og bjalla,“ sagði Kormákur og brosti. „Við eigum að vera hjarta hverf­is­ins!“

Sif skildi nú vel hvað Reynir hafði talað fal­lega um Kormák. Senni­lega hafði kirkju­starfið hér verið dálítið trénað en nú var að koma inn nýtt fólk með nýjar hug­myndir sem gat tosað séra Reyni upp úr hjól­för­unum.

 Og hún var upp­full af ferskum hug­myndum og vildi svo sann­ar­lega verða eitt af þessu nýja fólki.

Hún gaut aug­unum aftur á hvíta kirkju­bygg­ing­una.

Einhvers staðar hringdi sími og það reynd­ist vera í rassvasa Kormáks sem stóð upp frá borðs­horn­inu og horfði á skjá­inn með hleyptum brúnum. „Ég verð víst að taka þetta,“ sagði hann. „Gott að sjá þig, Sif! Við sjá­umst örugg­lega aftur!“

Sími Reynis hringdi um leið og dyrnar lok­uð­ust á eftir Kormáki. Hann leit á núm­erið og stundi, virt­ist íhuga að hunsa sím­talið en hætti svo við. „Afsakaðu mig augna­blik,“ sagði hann svo og sneri sér 180 gráður í leð­ur­klæddum skrif­borðs­stólnum.

 „Sæl vertu, Kolbrún,“ sagði hann í sím­ann. „Ég er á fundi …“ Hann þagði stutta stund og Sif heyrði óm af kven­manns­rödd sem greini­lega var mikið niðri fyrir. „Já. Já, já, en þú verður að skilja að hér er mjög mikið að gera og dreng­ur­inn telst nú orð­inn full­orð­inn og þótt hann komi ekki heim yfir nótt … Já. Já. Nei, nei. Hefur þú íhugað að hringja í vina­línu Rauða kross­ins, Kolbrún mín? Það mætti reyna það svona á meðan þú bíður. Ég heyri í þér á eftir. Kíki kannski í kaffi!“

Hann lagði á án þess að kveðja og leit svo mæðu­legur á Sif.

„Eins og þú sérð er gríð­ar­lega mikið áreiti hér hjá okkar starfs­fólki,“ sagði hann með alvöru­þunga. „Mæður með áhyggjur af upp­komnum börnum fram eftir öllum aldri. Og stundum finnst mér, væna mín, að það verði ekki nokkrum karli hér í hverf­inu mis­ratað á vegi dyggð­ar­innar án þess að frúin hringi í mig til þess að fá aðkomu þjóð­kirkj­unnar að því máli.“

 „Ég skil,“ sagði Sif og var strax farin að sakna Kormáks. „Þessi hluti starfs­ins hefur auð­vitað breyst mikið á síð­ustu árum og ára­tugum?“

 „Breyst! Heldur betur!“ sagði séra Reynir. „Sókn­ar­börnum hefur kannski fækkað og fólk nennir ekki í messu nema að vígt vatn og barns­höfuð komi við sögu. En þau sem eftir standa eru heldur betur kröfu­harðir neyt­endur!“ Hann hristi höf­uðið. „Þegar ég var ungur þá var fólk ekki að ónáða sinn sókn­ar­prest nema eitt­hvað hefði farið veru­lega úrskeiðis. Andlát þá helst.“ Hann and­varp­aði þungan. „En fólk er orðið gríð­ar­lega til­ætl­un­ar­samt í seinni tíð.“ Hann band­aði hend­inni í átt til Sifjar. 

„Þú treystir þér vænt­an­lega í allt svo­leiðis?“ spurði hann. „Að hugga mæður þegar ung­ling­arnir þeirra láta sig hverfa yfir nótt? Að útskýra sjö­unda boð­orðið fyrir mönnum sem detta í það á íþrótta­börum?“

 Sif taldi á putt­unum undir borð­inu. Hún mundi ekki nákvæm­lega röð­ina, þótt sam­hengið gæfi sterkar vís­bend­ingar hérna.

„Jú, ég hef auð­vitað reynslu af …“

Hún þagn­aði.

Þessar drunur? Voru þær eðli­legar? Kannski eitt­hvað í loft­ræst­ing­unni eða þunga­vinnu­vél að keyra fram hjá?

 „Engar áhyggjur, væna mín,“ sagði séra Reynir glað­lega. „Þetta ger­ist á bestu bæjum. Við erum víst öll hold, það er fátt eðli­legra en heil­brigðar þarma­hreyfin …“

 Þá kom höggið.

Jarð­skjálfti. Og hann var stór. Ekki einn af þessum sem var búinn um leið og maður hafði áttað sig á að hann hefði byrjað. Séra Reynir var aðeins lengur að kveikja á per­unni en svo spratt hann upp úr stólnum sínum. Sif sat hins vegar sem fast­ast, læsti fingr­unum um stól­armana og skimaði um skrif­stof­una. Hún sat undir burð­ar­vegg. Það var gluggi nálægt henni sem gæti sprungið, það var áhætta en varla neitt sem yrði veru­lega hættu­legt.

Matti. Hvar var Matti?

Til­finn­ingin bloss­aði upp innra með henni, eitt­hvað frum­stætt eðli sagði henni að hún ætti að vera með ung­ann sinn undir vængnum einmitt núna.

Frum­stætt eðli séra Reynis virt­ist hins vegar segja honum eitt­hvað allt annað, hann hafði tekið stefn­una út úr skrif­stof­unni og stóð nú átta­villtur í gætt­inni.

Skjálft­inn magn­að­ist og Sif fann hvernig jörðin skalf og hún skalf sjálf. Hryggjar­lið­irnir nötr­uðu. Úti tóku kirkju­klukk­urnar að slá óreglu­legt stef.

 Ætlaði aldrei að hætta að skjálfa? Eitthvað hafði verið um skjálfta­virkni und­an­farið og veð­ur­stofan reglu­lega sent út til­kynn­ingar um að senni­lega stytt­ist í nýtt eld­gos, en skjálft­arnir höfðu hvorki verið svona stórir né langir.

Loksins stillt­ist jörðin að nýju.

Í bili. Eflaust kæmu eft­ir­skjálftar.

Sif and­aði frá sér og rétti var­lega úr krepptum fingr­unum.

 „Vá,“ hvísl­aði hún. Hún hafði aldrei upp­lifað svona stóran skjálfta áður.

 Það vældi eitt­hvað í séra Reyni sem stóð fölur í dyr­unum að skrif­stof­unni og virt­ist enn ekki vita í hvora átt­ina hann stefndi.

 „Við ættum að fara út,“ sagði Sif og fálm­aði í kjól­vas­ann eftir sím­anum sínum. „Ef það kemur annar skjálfti væri senni­lega betra að vera úti á lóð­inni. Og ég verð að hringja í strák­inn minn.“

 „Einmitt,“ tafs­aði Reynir. „Ég er að hugsa um, sjáðu til, að hringja á Veð­ur­stof­una til þess að kanna hvers eðlis þessi við­burður var, þetta mál­efni er þannig að við kirkj­unnar þjónar þurfum að geta svarað fyr­ir­spurnum ef …“

 Hringja á Veð­ur­stof­una? Sif vissi að þjóðin fór alltaf öll sem ein á vef Veð­ur­stof­unnar um leið og eitt­hvað skalf til að fá að vita upp­tök og styrk skjálft­anna. Hún hafði ekki kynnst fólki sem hringdi þangað áður. Ekki hafði hún heldur heyrt um að fólk hringdi í sinn sókn­ar­prest við þau til­efni.

 Hún reyndi að hringja í Matta en náði ekki í gegn. Senni­lega var yfi­r­á­lag á sím­kerf­inu. Vonandi bara það. Hvar hafði sum­ar­nám­skeiðið hans aftur átt að vera í dag? Í Hús­dýra­garð­inum?

Þau séra Reynir gengu saman út á stétt safn­að­ar­heim­il­is­ins. Hann hélt sím­anum við eyrað en náði engu sam­bandi við Veð­ur­stof­una. Sif horfði yfir hverfið og var næstum því hissa að sjá öll húsin standa enn. Hún sá mold­ar­stróka í hlíðum Esjunnar – grjót­hrun. Vonandi hafði allt göngu­fólk sloppið.

 Hún gafst sjálf upp á að reyna að hringja og sendi Matta skila­boð. Er allt í lagi, elskan?

 Svarið kom ótrú­lega fljótt, eins og Matti hefði verið með sím­ann í hönd­unum. Þetta var GEÐVEIKT! Á eftir fylgdu fjöl­mörg tjákn sem virt­ust eiga að túlka spennu hans yfir skjálft­anum. Enginn hræddur kall og eng­inn slas­aður kall. Allt í góðu þá?

Ætti hún að hringja í for­eldra sína? Það var ýmis­legt sem hefði getað hrunið yfir mömmu hennar og ef hún þekkti pabba sinn rétt þá var hann senni­lega í, undir eða ofan á ein­hverri bíldruslu með skipti­lykil á lofti. Ef hann var þá ekki áfeng­is­dauður á sóf­anum.

 Hún lét nægja að senda þeim báðum: Allt í góðu hjá ykkur? Bætti svo við: Eftir skjálft­ann, meina ég? Það var svo sem sjaldn­ast „allt í góðu“ hjá for­eldrum hennar.

Hversu slæmt hafði þetta verið?

Var skjálft­inn kannski minni en henni hafði fund­ist hann vera þarna inni í ókunn­ugu safn­að­ar­heim­il­inu þar sem kerta­stjakar skulfu á krókum um alla veggi?

 Hún opn­aði frétta­miðl­ana í sím­anum sínum en þeir gátu ekk­ert sagt henni annað en að stór skjálfti hefði orðið á suð vest­ur­horn­inu en engin merki væru samt um gos­óróa. Beðið væri eftir nákvæmum tölum og frek­ari upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stofu og Almanna­vörnum.

 „Já,“ sagði séra Reynir og virt­ist vera að ná sér. „Við getum kannski bara klárað við­talið hér undir berum himni, það er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu, er það nokkuð?“

Sif leit í kringum sig. Á milli kirkj­unnar og safn­að­ar­heim­il­is­ins var fal­legur garður, sem bar þess þó vitni að her vinnu­skól­ans ætti eftir að koma þar við, setja niður sum­ar­blóm og jafn­vel kíkja á arf­ann í beð­unum undir smá­vöxnum trjánum. Þótt það væri komið fram í júní hefði hún viljað hafa peys­una sína en hún hafði gleymst inni á skrif­stofu prests­ins.

 „Ástæðan fyrir því að ég kall­aði þig inn í við­tal, þótt þú sért auð­vitað óvígð og óreynd, já, svona aðal­á­stæðan …“

Sif beið spennt eftir að heyra hvað af fer­il­skránni hafði náði til Reynis, og jú, Kormáks. Hún hafði lagt mikið á sig til að vera sem bestur kandídat í svona starf. Hún hafði staðið sig vel í námi, unnið sjálf­boða­vinnu tengda starf­inu, byggt upp gott tengsla­net og sum­ar­störfin höfðu mark­visst snúið að und­ir­bún­ingi fyrir hinar marg­vís­legu hliðar prests­starfs­ins.

 Séra Reynir skimaði í kringum sig og hún fékk á til­finn­ing­una að hann væri að leita að borði og stólum til að halda við­tal­inu áfram.

 „Þú, væna mín,“ sagði hann svo þegar hann sneri sér að henni aftur. „Þú spilar á gítar, segir þú, í umsókn­inni þinni.“

 Sif brosti. Yfir­maður hennar á leik­skól­anum hafði líka gripið þetta til­tekna atriði upp úr fer­il­skránni þegar hún var ráðin þangað og hún spil­aði undir söng leik­skóla­barn­anna flesta daga. „Já, ég er sjálf­lærð á gítar en hef spilað síðan ég var krakki,“ sagði hún. „Svo tók ég allt sem ég gat í sál­gæslu og aukakúrsa í sál­fræði og upp­eld­is­fræði. Ég hef unnið sjálf­boða­starf með jað­ar­hópum í gegnum allt námið og eins og þú hefur kannski séð þá var loka­verk­efnið mitt um mik­il­vægi −“

 „Gott mál, gott mál,“ sagði Reynir. „Við eigum nefni­lega þennan fína gítar. Keyptan fyrir sam­skot sókn­ar­innar, get ég sagt þér. Ég réð svo hingað gutta síð­asta vetur til að sjá um sunnu­daga­skól­ann, sá sagð­ist geta glamrað eitt­hvað, en það varð nú ekki mikið úr því hjá honum, blessuðum, og þetta datt allt saman upp fyrir.“

 „Svo, Kormákur, hann spilar þá ekki á gítar?“ missti Sif út úr sér.

 Séra Reynir starði á hana með van­þóknun. „Ég held að við getum nú ekki beðið mann eins og Kormák að taka að sér að gutla á gítar,“ hnuss­aði í honum. „Kanntu á Fésbók?“

 „Jú, jú …“ svar­aði Sif. „Er virkni á sam­fé­lags­miðlum sem sagt hluti af starf­inu?“

 „Æ, hann Kormákur segir mér að kirkjan þurfi að eiga Fés­bók­ar­síðu,“ and­varp­aði séra Reynir. „Fyrir til­kynn­ingar, aug­lýs­ingar og jafn­vel …“ hann hryllti sig, „skemmti­sögur og skrípó­myndir eða eitt­hvað slíkt. Ég vil ekk­ert með þetta hafa, þú skilur, en ef þetta er nauð­syn fyrir kirkj­una okkar – og ekki ætla ég að neita því að þjóð­kirkjan sé aðþrengd, sam­an­ber ræðu mína á síð­ustu presta­stefnu, minntu mig á að afhenda þér ein­tak á eftir – þá vil ég frekar að þessi app­aröt séu í hönd­unum á ein­hverjum sem ég get treyst.“

 „Ég gæti vel haldið utan um síðu sókn­ar­innar,“ sagði Sif. „Við höfum líka mögu­leika á að nýta aðra sam­fé­lags­miðla, sér­stak­lega ef mark­miðið er að ná til unga fólks­ins. Ég hef góð tök á hinum ýmsu miðlum og þekki ágæt­lega til þess sem ung­ling­arnir eru að fást við.“ Þetta var kannski ofmælt en hún hlaut að geta horft á ein­hver kennslu­mynd­bönd á kvöldin.

 Séra Reynir var þög­ull um stund en horfði svo stíft á hana að Sif var næstum búin að missa kurt­eislegt brosið af and­lit­inu. Hún átti óskap­lega bágt með að gera sér grein fyrir hvert þetta við­tal væri að fara og hvernig hún stæði sig í augum prests­ins.

 Aftur heyrð­ist daufur ómur frá kirkju­klukk­unum. Sif leit í kringum sig. Eft­ir­skjálfti. Það var eitt­hvað svo fjar­stæðu­kennt að halda við­tal­inu áfram við þessar aðstæður.

 Séra Reynir virt­ist ekki hafa tekið eftir neinu. Hann horfð­ist í augu við hana undan þungum brúnum. „Sif. Próf­skír­teinin þín líta vel út. Starfs­reynsla þín er fjöl­breytt og með ágætum. En til að vera alveg heið­ar­legur – þið eruð öll með góðar ein­kunnir. Þið hafið öll fjöl­breyttan bak­grunn. Umsóknir eins og þína er ég með í bunkum.“

Sif dró and­ann djúpt. Von­brigðin stungu sárt. „Ég geri mér grein fyrir að það er mikil ásókn í starfið …“

 Séra Reynir var ekki búinn. „En Sif. Kæra Sif. Hann brosti breitt. „Ég verð að trúa þér fyrir einu. Það er fátt sem jafn­ast á við klerk sem leikur á gítar.“

 Sif starði skiln­ings­vana á prest­inn í nokkrar sek­úndur en mætti svo breiðu brosi hans. Hún átti enn mögu­leika. „Já,“ sagði hún, „ég spila, ég meina, leik á gítar!“

 „Segjum þetta bara gott í bili,“ sagði séra Reynir. „En áður en þú ferð skal ég sýna þér kirkj­una mína. Þú þarf nú að hafa rekið nefið aðeins inn.“ Hann leit í kringum sig. „Það hlýtur að vera óhætt, það kemur varla annar skjálfti úr þessu, ha? Við kíkjum inn.“

Anddyri kirkj­unnar var stórt, greini­lega hugsað til að þar gæti fólk safn­ast saman að athöfn lok­inni. Enn fleiri kerta­stjakar í öllum stærðum og gerðum tóku þó óþarf­lega mikið pláss. Sumir þeirra lágu á gólf­inu og höfðu greini­lega oltið um koll eða hrunið af veggjum í jarð­skjálft­anum.

 Séra Reynir tók eftir að hún horfði á þá. „Mér þykir vænt um kerta­stjaka,“ sagði hann hreyk­inn. „Alltof margir hafa fórnað þeim á alt­ari raf­magns­ins vegna eld­hættu og kirkj­unnar menn vita að þá má senda til mín. Við Kormákur erum að vinna að umsókn um styrk til að fá byggt utan um safnið. Það væri alveg prýði­legt að fá smá­hýsi hér á lóð­ina. Kormákur stakk upp á gler­hýsi, svo söfn­uð­ur­inn gæti notið þess að horfa á stjak­ana á göngut­úrum sínum um hverfið.“

 Reynir ýtti upp tvö­földum dyrum sem lágu inn í kirkju­skipið á meðan hann tal­aði. Hátt var til lofts í kirkj­unni og miklir þak­gluggar hleyptu birtu inn í rýmið. Kirkjan rúm­aði greini­lega fjöl­mennar athafnir.

Sif horfði í kringum sig á meðan hún flýtti sér á eftir Reyni og leyfði sér að láta sig dreyma, þótt hún væri enn skekin eftir skjálft­ann.

 Kirkjan hennar?

Einhvers staðar heyrð­ist lágt suð. Sif fálm­aði eftir sím­anum sínum en hann var þög­ull. Að lokum kom hún auga á upp­sprettu suðs­ins, hvítan ryksuguró­bóta sem lædd­ist rólega á milli öft­ustu sætarað­anna.

 „Já, þetta var nú ein hug­myndin hans Kormáks,“ sagði séra Reynir þegar hann sá hvert hún horfði. „Þegar hún Svala okkar gamla var látin hætta í skúr­ing­unum nú fyrir páska, aðeins sjö­tíu og átta ára gömul,“ hélt séra Reynir áfram, „og í hennar stað kom alls konar óhæft fólk frá ræst­inga­fyr­ir­tæki með háværar ryksugur og moppur sem aldrei var hægt að treysta á … Bless­aður dreng­ur­inn er svo lausn­a­mið­aður! Hann mætti bara

einn dag­inn með kass­ann í fang­inu! Þetta er hátækni­apparat, ryksugar teppin og skúrar flís­arnar og við gátum snar­fækkað heim­sókn­unum frá ræst­inga­fyr­ir­tæk­inu, get ég sagt þér.“ Hann horfði á ryksugu­vél­mennið með vel­þóknun. „Hann Kormákur getur skipað henni til verka beint úr sím­anum sínum! Hún er auð­vitað indæl­is­kona hún Svala okkar, en ég verð að segja það að hún Marta tekur öllu styttri kaffi­pásur og hefur minni áhuga á kjafta­sögum um einka­líf sókn­ar­barna!“

 „Marta?“ sagði Sif.

Prest­ur­inn band­aði í átt að ryksug­unni. „Nú, tækni­und­rið er nefnt eftir henni Mörtu úr Lúk­asar­guð­spjalli,“ sagði hann. „Þú manst eftir Mörtu, ekki satt?“

 Sif fór að svitna undan þessu óvænta Bibl­íu­prófi. „Jú, auð­vitað, ég …“

 „Marta. Systir Lasarusar? Þú manst kannski versin?“ sagði séra Reynir. „Um Mörtu og systur hennar, Maríu? María sat við fót­skör Krists og hlust­aði á hann tala. Á meðan var Marta að sinna gest­unum, sjálf­sagt var hún að taka til mat og leggja á borð og svona sem konur gera …“

 „Ha …?“ hvísl­aði Sif. „Svona sem konur …“ En jú, senni­lega höfðu karlar lítið lagt á borð þarna í kringum árið 30?

„Manstu versið, væna mín?“ kvak­aði séra Reynir. Hann rugg­aði sér fram og aftur og virt­ist hinn ánægð­asti með að reka hana á gat.

 „Ekki kannski orð­rétt en auð­vitað þekki ég sög­una,“ sagði Sif. „Marta kvart­aði við Jesú, henni fannst ósann­gjarnt að hún þyrfti að sjá ein um allt saman.“

 „Hárrétt, góða. Marta var að sjá um allt saman á meðan María sat og hlust­aði á Jesú. Marta bað Jesú að segja Maríu systur sinni að hjálpa sér. En Drottinn svar­aði henni og sagði …?“

Sif stóð á gati en séra Reynir lét hana ekki svitna lengi áður en hann brýndi raustina og vitn­aði í ritn­ing­una.

„Marta, Marta, þú ert áhyggju­full og mæð­ist í mörgu.“ Prest­ur­inn brosti breitt. „Þess vegna fannst mér, já, okkur Kormáki, alveg til­valið að nefna þessa indælu tækni­skepnu Mörtu. Hún mæð­ist vissu­lega í mörgu!“

Ryksugan brun­aði í átt­ina að þeim og pípti þrisvar, senni­lega að kvarta yfir að þau stæðu í vegi hennar. Sif sá að ein­hver hafði límt tvö plast­augu ofan á koll­inn á henni. Senni­lega Kormákur? Hún gat ekki ímyndað sér að það hefði verið séra Reynir.

 „Skírn­ar­font­ur­inn okkar er sér­smíð­aður af lista­konu eftir ein­hverja sam­keppni sem var haldin þegar kirkjan var byggð. Lindu eitt­hvað, minnir mig,“ sagði séra Reynir sem hafði stigið yfir Mörtu og strunsað af stað inn í kirkj­una. Hann virt­ist alltaf vilja vera nokkrum skrefum á undan henni. „Og alt­ar­i­stöfl­una smíð­aði merk­is­mað­ur­inn Guð­mundur Mark­ús­son, það vill svo til að hann er náfrændi hans Kormáks skal ég segja þér, tengda­sonur langa­fa­systur ef ég man rétt …“ Hann skimaði í kringum sig og tók upp sím­ann. „Ég sé hann Kormák minn hvergi – ég hringi bara í hann, hann hlýtur að vera hérna ein­hvers staðar … Hann getur sagt þér meira um þetta.“

 Reynir beið með sím­ann við eyrað og starði ein­beittur fram fyrir sig á kerta­stjaka sem sat skakkur á súlu rétt fyrir framan nefin á þeim. Sif kreppti hnef­ana til að hindra sig frá því að rétta hann við. Það var ekki búið að ráða hana enn. Út undan sér sá hún ryksug­una stefna í hleðslu undir bekk aft­ast í kirkj­unni.

Klass­ískt stef sem henni fannst hún eiga að þekkja hljóm­aði ein­hvers staðar að. Séra Reynir brosti. „Sko!“ sagði hann. „Hann Kormákur er senni­lega of upp­tek­inn til að svara, bless­aður! Nú rennum við bara á hljóðið!“

Hann þramm­aði af stað inn kirkju­gólfið og Sif elti. Hún mændi í kringum sig á steindu glugg­ana og útskorna kirkju­bekki. Og, jú, hér voru líka kerta­stjakar. Út um allt, og fóru kirkj­unni ekki vel. Hún hugs­aði hlý­lega til Kormáks. Þetta var lúmsk hug­mynd hjá honum, að byggja hýsi undir þetta sér­visku­lega verk­efni séra Reynis og koma stjök­unum þar með burt úr kirkj­unni.

 Séra Reynir stopp­aði snöggt og starði fram fyrir sig. Sif rak nefið næstum í bakið á honum en náði að sveigja frá og tölta upp að hlið hans. Og starði líka.

Kormákur lá á tröpp­unum vinstra megin við alt­arið. Risa­stórt sár var á gagn­aug­anu og blóð­taumar höfðu lekið niður tröpp­urnar. Augun voru opin. Við hlið hans lá risa­stór ker­takróna sem hafði greini­lega hrunið niður úr loft­inu við jarð­skjálft­ann.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár