Laun stjórnenda Morgunblaðsins jukust um nær fjórðung

Árvakur, móð­ur­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, tap­aði 277 millj­ónum króna í fyrra. Félagið er að mestu í eigu helstu útgerð­ar­manna Íslands. Syst­ur­fé­lagið sem rekur einu dag­blaða­prent­smiðju lands­ins skil­aði líka tapi.

Laun stjórnenda Morgunblaðsins jukust um nær fjórðung
Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen Laun stjórn­enda Morg­un­blaðs­ins juk­ust um 37,5 millj­ónir á milli ára á meðan rekst­ur­inn tap­aði 277 millj­ónum króna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Heild­ar­laun og þókn­anir stjórn­enda Árvakurs, móð­ur­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, juk­ust um 37,5 millj­ónir á milli ára. Laun þeirra fóru úr 159,5 millj­ónum króna árið 2023 í 197 millj­ónir sem nemur aukn­ingu upp á tæpan fjórð­ung.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Árvakurs fyrir árið 2024. Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen eru rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins og Haraldur jafn­framt fram­kvæmda­stjóri. 

Tap varð á rekstri félags­ins upp á 276,7 millj­ónir króna á árinu en tap árs­ins 2023 var 39,8 millj­ónir.

„Þá er áhætta fólgin í starf­semi rík­is­ins á fjöl­miðla- og póst­mark­aði

„Helsta áhættan í starf­semi sam­stæð­unnar felst í efna­hags­um­hverf­inu á hverjum tíma sem hefur mikil áhrif á aug­lýs­inga­mark­að­inn,“ segir í árs­reikn­ingnum. „Þá er áhætta fólgin í starf­semi rík­is­ins á fjöl­miðla- og póst­mark­aði og þeim ákvörð­unum sem rík­is­valdið tekur um starf­semi fyr­ir­tækja sinna á þessum mörk­uðum og fjár­veit­ingar til þeirra. Enn fremur er áhætta fólgin í sífellt auk­inni sam­keppni alþjóð­legra sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækja á aug­lýs­inga­mark­aði.“

…
Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Mogginn þiggur opinberra styrkja , og launar þá með pólitískum áróðri gegn samneyslu
    1
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Miður var að útgerðarmenn náðu tökum á Árvakri og Morgunblaðinu. Á hruntímabilinu lagði Vilhjálmur Bjarnason töluverða vinnu við að undirbúa yfirtöku útgáfu þessa merka dagblaðs en tókst ekki. Það naut mikillrar virðingar undir ritstjórn Matthíasar Johannessonar og Styrmis Gunnarssonar sem Ólafur Stephensen leysti síðan af og stýrði á erfiðleikaárinu 2009. Hann reyndist mjög farsæll ritstjóri en var hrakinn úr starfi og Davíð Oddsson tók við. Afleiðingin varð sú að þriðjungur áskrifenda þ. á m. undirritaður sagði upp áskrift blaðsins. Síðan hefur verið mikill hallarekstur á blaðinu og verður ábyggilega þyngra fyrir aðaleigendurna, útgerðarfólkið í landinu, sem kappkostar að berjast að gæta hagsmuna sinna fram í rauðan dauðann. Nú er sá möguleiki fyrir hendi að ríkisstjórnin innkalli allan fiskveiðikvótann með endurúthlutun í huga og með nýjum skilmálum. Það myndi þýða að möguleikar útgerðarinnar að standa í utgáfu Morgunblaðsins verði takmarkaðri og reynt verði að koma rekstri blaðsins á annan aðila sem nýtur meira trausts en útgerðarklíkan.
    Ein myndin af stefnu ritstjórnarinnar að undanförnu er að þeir sem ritað hafa greinar í blaðið jafnvel marga áratugi, fá ekki birtar greinar nema þær falli algjörlega að skoðunum aðstandenda blaðsins. Undirritaður sendi grein fyrir 3 vikum og er óbirt þó fjalli um fagleg málefni varðandi rekstur hlutafélaga.
    Það var mikil eftirsjá að Ólafi Stephensen að hann hafi verið hrakinn úr starfi ritstjóra á sínum tíma. Ein merkasta ákvörðun hans í ársbyrjun 2009 var að efna til vinnu blaðamanna ásamt helstu sérfræðingum þjóðarinnar að skoða alla kosti og galla við aðild að Evrópusambandinu. Þetta var eitt af því áhugaverðasta sem þá var í skoðun. Farið var í þessi mál með þekkingu í huga og málið ekki umvafið einhverjum tilfinningum og huglægum skoðunum. Það þarf að fara aftur í svona vinnu, skoða hvort einhverjar forsendur hafi breyst og hverjir eru kostir og gallar við aðild Evrópusambandinu.
    Mjög líklegt þykir mér að unnt væri að ná góðum samningum enda er skilningur mikill og allsráðandi fyrir þeim sem ekki vilja nein átök af fyrra bragði.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár