Ríkisendurskoðun segir þekkingu og eftirlit skorta hjá Sjúkratryggingum

Samn­inga­gerð rík­is­ins hefur ekki orðið skipu­legri og fag­legri með til­komu Sjúkra­trygg­inga og fjár­munir eru ekki nýttir betur að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar. Stofn­unin er ekki að sinna lög­bund­inni skyldu sinni nema að hluta til.

Ríkisendurskoðun segir þekkingu og eftirlit skorta hjá Sjúkratryggingum
Guð­mundur Björgvin Helgason, rík­is­end­ur­skoð­andi Rík­is­end­ur­skoðun bendir á ýmsa van­kanta við starf­semi Sjúkra­trygg­inga. Mynd: Ríkisendurskoðun

Rík­is­end­ur­skoðun telur að tölu­vert vanti upp á til að Sjúkra­trygg­ingar Íslands nái mark­miðum sínum. Stofn­un­ina skorti þekk­ingu og mannauð til að gera nauð­syn­legar grein­ingar fyrir samn­inga sem hún gerir og eft­ir­lit með fram­kvæmd samn­inga hefur á köflum „vart verið til staðar“.

Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði í dag skýrslu til Alþingis um frammi­stöðu stofn­un­ar­innar sem samn­ings- og eft­ir­lits­að­ila. Skýrslan var unnin að eigin frum­kvæði Rík­is­end­ur­skoð­unar og voru mark­mið hennar að kanna hvernig Sjúkra­trygg­ingum hefur tek­ist að upp­fylla skyldur sínar sem kaup­andi ann­ars stigs heil­brigð­is­þjón­ustu utan opin­berra heil­brigð­is­stofn­ana og sem eft­ir­lits­að­ili með samn­ingum um kaup á slíkri þjón­ustu.

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru stofn­aðar á grund­velli laga sem voru sett árið 2008. „Stofn­un­inni var falið að kaupa heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir hönd rík­is­ins og stóðu vonir til þess að með því að fela einni stofnun það hlut­verk myndi samn­ings­staða rík­is­ins stór­batna, sem og aðferða­fræði við samn­ings­gerð og greiðslur,“ segir í skýrsl­unni. „Enn fremur voru vænt­ingar um að sam­hliða yrði mögu­legt að bæta eft­ir­lit með því að ríkið í umboði skatt­greið­enda hlyti við­eig­andi þjón­ustu, í því magni og gæðum sem samið er um hverju sinni.“

Mat Rík­is­end­ur­skoð­unar er hins vegar að 16 árum seinna vanti enn tölu­vert upp á að mark­miðum um mark­viss þjón­ustu­kaup og styrk­ingu rík­is­ins sem kaup­anda heil­brigð­is­þjón­ustu verði náð. „Sjúkra­trygg­ingar hafa enn ekki orðið sá sterki samn­ings­að­ili sem að var stefnt og hefur stofn­unin ekki yfir að ráða þeirri þekk­ingu og mannauði sem þarf til að gera nauð­syn­legar þarfa- og kostn­að­ar­grein­ingar í tengslum við samn­inga. Eftirlit með fram­kvæmd samn­inga hefur sömu­leiðis verið brota­kennt og á tíma­bili vart til staðar. Þá vantar veru­lega upp á að Sjúkra­trygg­ingar leggi mat á árangur samn­inga sem eru við það að falla úr gildi og þurfa e.t.v. end­ur­nýjun,“ segir í skýrsl­unni.

Sjúkra­trygg­ingarFor­stjóri hætti árið 2022 vegna van­fjár­mögn­unar og nýr for­stjóri tók undir áhyggjur hennar.

„Eft­ir­lits­deild Sjúkra­trygg­inga varð aldrei að þeirri öfl­ugu ein­ingu sem að var stefnt,“ segir einnig í skýrsl­unni. „Deildin hefur nú verið lögð niður og breytt fyr­ir­komu­lag er enn í mótun. Mik­il­vægt er að Sjúkra­trygg­ingar vinni mark­visst að því að efla umrædda þætti í starf­semi sinni og að sama skapi er mik­il­vægt að heil­brigð­is­ráðu­neyti leiti leiða til að styrkja stofn­un­ina svo að hún geti sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu með árang­urs­ríkum hætti.“

Veik samningsstaða gagnvart viðsemjendum

Í skýrsl­unni kemur fram að Rík­is­end­ur­skoðun hafi rýnt samn­inga sem Sjúkra­trygg­ingar hafa gert nýlega um ann­ars stigs heil­brigð­is­þjón­ustu sem veitt er utan sjúkra­húsa. „Varpar sú skoðun ljósi á veika samn­ings­stöðu Sjúkra­trygg­inga og oft yfir­burð­ar­stöðu við­semj­enda hennar. Kostn­að­ar­vit­und og þekk­ing er að miklu leyti á hendi þjón­ustu­veit­enda og hefur Sjúkra­trygg­ingum ekki tek­ist að koma á kerf­is­bund­inni grein­ingu á þeirri þjón­ustu og umfangi sem nauð­syn­legt er að kaupa hverju sinni.“

„Kostn­að­ar­vit­und og þekk­ing er að miklu leyti á hendi þjón­ustu­veit­enda“

Sér­stak­lega er bent á að á sex ára tíma­bili, frá 2018–2023, hafi samn­ingar um þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna ekki náðst þar sem sér­greina­læknar neit­uðu að semja á þeim for­sendum sem heil­brigð­is­ráðu­neyti lagði upp með á þeim tíma. Til að ná samn­ingum urðu Sjúkra­trygg­ingar í umboði heil­brigð­is­ráð­herra að víkja umtals­vert frá upp­haf­legum samn­ings­mark­miðum. Ávinn­ingur með samn­ing­unum var meðal ann­ars að kostn­aður sjúk­linga lækki.

„Á hinn bóg­inn eru vís­bend­ingar um að samn­ing­ur­inn sé afkasta­hvetj­andi án þess að kostn­að­arað­hald sé tryggt,“ segir í skýrsl­unni. „Þannig geti samn­ing­ur­inn falið í sér hvata til að veita þjón­ustu óháð bæði raun­veru­legri þörf og hags­munum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar í heild sinni, en engar kostn­aðar-og þarfa­grein­ingar voru gerðar í aðdrag­anda hans. Þá er nægj­an­legt eft­ir­lit með inn­heimtu sam­kvæmt gjald­skrá samn­ings­ins ekki tryggt. Sam­ein­ist sér­fræð­ingar um að nýta gjald­skrá með til­teknum hætti er það á for­ræði sam­starfs­nefndar samn­ings­að­ila að bregð­ast við. Rík­is­end­ur­skoðun áréttar að gæta þurfi að lög­bund­inni ábyrgð Sjúkra­trygg­inga á eft­ir­liti með samn­ingum og að henni verði ekki deilt með öðrum.“

Sinna ekki nema að hluta lögbundnu hlutverki sínu

Athugun Rík­is­end­ur­skoð­unar sýnir einnig að inn­kaupa­ferli Sjúkra­trygg­inga hefur ekki alltaf verið fylgt. „Langan tíma hefur tekið að útbúa skil­virkt inn­kaupa­ferli vegna mynd­grein­inga. Árið 2018 var ákveðið að fara í útboð á þjón­ust­unni en það hefur enn ekki gengið í gegn. Þá hefur inn­kaupa­ferli vegna lýð­heilsu­tengdra aðgerða sömu­leiðis tekið langan tíma og enn ekki tek­ist að gera samn­inga til allt að fimm ára þótt að því hafi verið stefnt frá árinu 2022. Hér spilar einnig inn í óvissa um útboðs­skyldu vegna inn­kaupa á heil­brigð­is­þjón­ustu sem bíður úrlausnar dóm­stóla.“

„Sjúkra­trygg­ingar [eru] ekki nema að hluta til að sinna lög­bundna hlut­verki sínu“

Rík­is­end­ur­skoðun telur ljóst að ekki sé ráð­legt að auka byrðar eða ábyrgð Sjúkra­trygg­inga nema inn­viðir hennar verði styrktir. „Með setn­ingu laga um sjúkra­trygg­ingar átti verk­lag rík­is­ins við samn­inga­gerð að verða skipu­legra og fag­legra, með betri nýt­ingu fjár­muna og bættri kostn­að­ar­vit­und. Það hefur því miður ekki orðið og eru Sjúkra­trygg­ingar ekki nema að hluta til að sinna lög­bundna hlut­verki sínu,“ segir í skýrsl­unni.

Loks kom í ljós að starfs­fólk sem ekki telst til heil­brigð­is­starfs­fólks sam­kvæmt lögum hefur haft aðgang að per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum úr sjúkra­skrám. Slíkur aðgangur á að vera bund­inn við lækna og heil­brigð­is­starfs­fólk. „Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar þurfa Sjúkra­trygg­ingar að tryggja að vinna með per­sónu­grein­an­leg gögn sé án und­an­tekn­inga í sam­ræmi við lög um sjúkra­trygg­ingar og lög um per­sónu­vernd.“

Vöruðu við vanfjármögnun stofnunarinnar

Rík­is­end­ur­skoðun leggur í skýrsl­unni fram sex ábend­ingar til Sjúkra­trygg­inga. Styrkja þurfi stöðu Sjúkra­trygg­inga við samn­ings­gerð, vanda und­ir­bún­ing samn­inga og fram­kvæma nauð­syn­legar grein­ingar vegna þeirra og koma á skýrum inn­kaupa­ferlum. Þá þurfi að efla eft­ir­lit með kostn­aði við samn­inga, tryggja skil­virkt eft­ir­lit með samn­ings­að­ilum og styrkja innra eft­ir­lit og inn­leiða innri end­ur­skoðun.

Loks er fjórum ábend­ingum beint til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Það þurfi að styrkja og efla Sjúkra­trygg­ingar sem kaup­anda, styrkja stefnu­mót­unar- og eft­ir­lits­hlut­verk ráðu­neyt­is­ins, móta stefnu og við­mið um útboð og aug­lýs­ingar og setja fram stefnu um fyr­ir­sjá­an­leika og tím­an­leg samn­ings­mark­mið.

Árið 2022 sagði þáver­andi for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, María Heim­is­dóttir, starfi sínu lausu þar sem hún taldi sig ekki getað borið ábyrgð á rekstr­inum þar sem stofn­unin hafi verið van­fjár­mögnuð. Núver­andi for­stjóri Sjúkra­trygg­inga er Sigurður H. Helgason en hann lýsti sömu áhyggjum yfir í bréfi til heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu skömmu eftir að hann tók við.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Ef hið opinbera hefur ekki bolmagn til þess að gera sanngjarna samninga við kaup á heilbrigðisþjónustu þá gæti lausnin verið að hið opinbera taki einfaldlega að sér að sjá um þjónustuna sjálft.
    Mig grunar að hið opinbera sé að greiða allt of hátt verð fyrir heilbrigðisþjónustu út í bæ.
    Ég þurfti til dæmis að fara í einfalda aðgerð á seinasta ári sem var framkvæmd hjá heilbrigðisþjónustu út í bæ. Aðgerðin tók 30 mín. Viðtöl og undirbúningur annað eins. Reikningurinn hljóðaði upp á 350.000kr sem Sjúkratryggingar Íslands greiddu að mestu!!!! Það er erfitt að sjá að þetta sé eðlilegt verð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár