Völdu ódýrasta hönnuð Brákarborgar sem uppfyllti ekki hæfisskilyrði

Innra eft­ir­lit Reykja­vík­ur­borg­ar tel­ur að sækja megi skaða­bæt­ur til verk­taka og/eða ráð­gjafa sem komu að bygg­ingu leik­skól­ans Brákar­borg. Leik­skól­an­um var lok­að síð­asta sum­ar og út­tekt kynnt í borg­ar­ráði í dag.

Völdu ódýrasta hönnuð Brákarborgar sem uppfyllti ekki hæfisskilyrði
Brákarborg Leikskólanum var lokað síðasta sumar vegna viðgerða. Mynd: Golli

Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) Reykjavíkurborgar telur rétt að skoða hvort sækja eigi skaðabætur til verktaka eða ráðgjafa sem komu að byggingu leikskólans Brákarborgar.

Borgarráð fjallaði um úttekt IER á fundi sínum í dag og samþykkti að skipa starfshóp til að vinna að umbótum er varða eftirfylgni á hönnun, framkvæmdum og eftirliti með framkvæmdum á vegum borgarinnar.

Í úttektinni kemur meðal annars fram að Arkamon ehf., fyrirtækið sem hannaði burðarvirki leikskólans, hafi ekki mætt kröfum. „IER telur að burðarvirkishönnuður hafi ekki uppfyllt hæfisskilyrði fyrir burðarvirkishönnun skólabyggingar en hann var valinn á grundvelli lægsta verðs,“ segir í samantekt IER.

„Hann var valinn á grundvelli lægsta verðs“

Þá lágu burðarvirkisuppdrættir ekki fyrir þegar útboð í byggingu skólans voru opnuð 2021. „IER telur mikilvægt að ekki vanti í útboðsgögn veigamikla verkþætti í mannvirkjagerð eins og burðarvirkisuppdrætti og greinargerð um burðarhæfni byggingarinnar m.t.t. fyrirhugaðrar notkunar.“

Eftirlitsaðili verkefnisins, Verksýn hf., fær einnig gagnrýni. „IER telur að umsjónar- og eftirlitsaðili hafi ekki staðið að öllu leyti skil á sínum verkefnum samkvæmt útboðsgögnum,“ segir í úttektinni. „Helst ber þar að nefna að ekki var unnin eftirlitsáætlun, lokaskýrsla eða skilagrein og aðeins ein framvinduskýrsla.“

Loks er það gagnrýnt að verktakinn, Þarfaþing ehf., hafi einnig verið í hlutverki byggingarstjóra, sem á að hafa eftirlit með verkinu.

Hundruð milljóna í lagfæringar

Reykjavíkurborg flutti leikskólann Brákarborg í endurbyggt húsnæði við Kleppsveg 150-152 þar sem áður var kynlífstækjabúðin Adam og Eva. Kaup á eignunum voru samþykkt 2020 og starfsemi leikskólans hófst í lok sumars 2022. Fljótlega um haustið bárust tilkynningar um sprungur í hleðsluveggjum leikskólans. Niðurstaða könnunar leiddi í ljós að byggingarnar uppfylltu hvorki fyrir né eftir framkvæmdir gildandi jarðskjálftastaðla og einnig var gerð athugasemd varðandi þök húsanna í tengibyggingu.

Einar ÞorsteinssonFyrrverandi borgarstjóri lét loka húsnæði Brákarborgar og kallaði eftir úttekt.

Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, taldi nauðsynlegt að rýma húsnæðið á meðan lagfæring á burðarvirki húsanna færi fram og óskaði eftir úttekt á því hvar ábyrgðin lægi í málinu. Var starfsemin flutt í bráðabirgðarhúsnæði í Ármúla.

Endanlegur kostnaður við lagfæringarnar liggur ekki enn fyrir en skrifstofa framkvæmda og viðhalds mannvirkja (SFV) bauð verkið út í nóvember 2024 og var lægsta tilboð 223,2 milljónir króna. Verklok eru áætluð í sumar. „Þá er ótalinn kostnaður við skýrslur ráðgjafa, hönnun, umsjón og eftirlit og flutning leikskólans og leigu á öðru húsnæði,“ segir í úttektinni.

17 milljónir fyrir hvert leikskólapláss

Heildarkostnaður við leikskólann vegna endurbóta á húsnæði og lóð og kaupa á fasteignum við Kleppsveg 150-152 nam samtals rúmum 2 milljörðum króna. Þá er ótalinn kostnaður á þeim viðgerðum og endurbótum sem standa yfir. Verkið fór því langt yfir áætlun. „Miðað við þau 100 börn sem innrituð voru hjá Brákarborg árið 2022 kostaði hvert pláss 17 m.kr., eða 1,7 m.kr. á hvern fermetra,“ segir í úttektinni.

„Kostaði hvert pláss 17 m.kr., eða 1,7 m.kr. á hvern fermetra“

„IER telur mikilvægt að umhverfis- og skipulagssvið (USK) meti heildarkostnað vegna tjónsins þegar framkvæmdum við Brákarborg lýkur og hvort sækja eigi skaðabætur til verktaka og/eða ráðgjafa,“ segir í úttektinni.

Þarfaþing ehf. var valið verktaki í framkvæmdirnar en sinnti einnig hlutverki byggingarstjóra, sem hefur þá ábyrgð að hafa virkt eftirlit með þeim sem koma að byggingunni og framkvæma reglulegar úttektir. „IER telur að það að fela verktakanum að annast lögbundið hlutverk byggingarstjóra veiki eftirlitshlutverk hans,“ segir í úttektinni. „Færi betur á því að hlutverkið væri í höndum umsjónar- og eftirlitsaðila.“

Fjórtán úrbótatillögur

IER leggur að lokum til 14 úrbótatillögur og listar þar fyrst upp hugmyndina að sækja skaðabætur til verktaka og/eða ráðgjafa. Þá er USK hvatt til að gera ítarlega skoðun á burðarvirki við kaup á eldra húsnæði og mælt með því að fara ekki í útboð nema útboðsgögn liggi fyrir með veigamiklum þáttum á borð við burðarvirkisteikningar.

Þá er lagt til að USK aðskilji hlutverk verktaka og byggingastjóra til að forðast hagsmunaárekstra við eftirlit. Verklag við kostnaðar- og tímaáætlanir er gagnrýnt, auk þess sem ábendingar um stjórnskipulag, gæðakerfi og mönnun eru lagðar fram.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ekkert skrítið, eftirlitið bara í skötulíki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hélt upp á afmælið með blóðugum bardaga í Hvíta húsinu
4
Erlent

Hélt upp á af­mæl­ið með blóð­ug­um bar­daga í Hvíta hús­inu

„Michelle Obama er karl­mað­ur, er það ekki rétt, Am­er­íka?“ öskr­aði bar­dagakappi í míkró­fón­inn þar sem hann barð­ist fyr­ir fram­an for­set­ann. Don­ald Trump hélt upp á átt­ræð­is af­mæl­ið með því að setja upp UFC-bar­daga í Hvíta hús­inu. Að­dá­andi sagði við­burð­inn „tákn­ræn­an og lýs­andi fyr­ir banda­ríska menn­ingu“ á með­an aðr­ir sögðu hann smekk­lausa nið­ur­læg­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
6
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár