„Þarna er fullt af konum að tengjast“

Á Akureyri er hópur ungra kvenna sem hitt­ist reglu­lega og les saman í hljóði. Þær hafa myndað vina­sam­bönd á full­orð­ins­árum í gegnum sam­eig­in­legan áhuga á bókum. Sandra Rebekka Önnu­dóttir Arn­ars­dóttir er annar stofn­andi bóka­klúbbs­ins Les píurnar.

„Þarna er fullt af konum að tengjast“
Litli bóka­klúbb­ur­inn Hittist og les saman. Klúbb­ur­inn varð til eftir félaga­lestur á nýj­ustu bók­inni í Fourth Wing ser­í­unni. Mynd: Aðsend

Í gegnum bækur, þá sér­stak­lega róm­an­tískar fantasíur, hefur hópur kvenna á Akureyri myndað vina­sam­bönd á full­orð­ins­árum. Sandra Rebekka Önnu­dóttir Arn­ars­dóttir stofn­aði bóka­klúbb ásamt vin­konu sinni og heldur mán­að­ar­lega við­burði þar sem ungar konur koma saman og lesa sér til skemmt­unar. 

Sandra RebekkaEign­að­ist vin­konu­hóp út frá bókatok en þar deilir fólk skoð­unum sínum á nýlesnum bókum.

Deila sínum upplifunum

Árið 2021 ákváðu Sandra og vin­kona hennar að stofna bóka­klúbb á Facebook. Fyrst um sinn voru þær bara tvær í klúbbnum og not­uðu hann til að deila efni með hvor annarri. Hópurinn fékk nafnið Les píurnar. Nú fjórum árum síðar eru 26 með­limir í hópnum sem hitt­ist mán­að­ar­lega og les saman. 

„Okkur vant­aði vett­vang til að deila bóka­tengdu efni,“ rifjar Sandra upp og segir hóp­inn í raun hafa stækkað eins og snjó­bolta. Þær aug­lýstu hóp­inn í leit að fólki sem deildi áhuga þeirra á róm­an­tískum …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár