Íslenskir hlauparar sækja æfingabúðir í Kenía

Vignir Már Lýðsson hefur farið með mörgum af bestu hlaup­urum Íslands í ævin­týra­legar æfinga­búðir í Kenía.

Íslenskir hlauparar sækja æfingabúðir í Kenía
Vagga hlaups­ins Vignir hleypur hér í um 2.500 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Mynd: Úr einkasafni

Vignir Már Lýðsson hefur hlaupið síðan árið 2000. Hann segir að það hald­ist í hendur að vera góður í braut, götu­hlaupum og víða­vangs­hlaupum. Vignir er mjög góður hlaup­ari.

„Jú, ég hef unnið ein­hver hlaup, ég hef verið að hlaupa síðan árið 2000 en ég hef ekki unnið Íslands­meist­ara­titil eða neitt sam­bæri­legt, en ég hef tekið þátt í mörgum götu­hlaupum.

Maður þarf að vera „all in“ til að ná þeim árangri en fólk er kannski með fjöl­skyldu og er í vinnu sem tekur tíma svo það getur verið erfitt. Það eru margir sem æfa nán­ast eins og atvinnu­menn án þess að vera það, þetta er mjög stórt áhuga­mál og það er það líka hjá mér og hefur tekið stóran hluta af mínu lífi í gegnum árin.“ 

Sér fyrir mismunandi aðstæður

Vignir byrj­aði í frjálsum íþróttum og í braut­ar­hlaupum, hljóp 800 og 1.500 metra en sneri sér svo mikið að götu­hlaupum. Hann hefur einnig verið í utan­vega­hlaupum.

Hann segir að hlauparar þurfi í fyrsta lagi að sjá fyrir sér enda­markið eða mark­miðið sem þeir vilji ná og vinna sig í gegnum það í hug­anum. 

Á hvað ertu að fók­usera í hlaup­unum, er það mis­jafnt eftir því hvers konar hlaup þú ert að fara?

„Nei, þetta er þannig að þú fók­userar á að gera þitt besta í hlaup­inu og ég held að það skipti ekki einu sinni máli hvort það sé hlaup eða annað, það er ákveð­inn fókus sem þarf að vera til staðar til að koma þér inn í það sem þú ert að gera, og gera það aftur og aftur, maður setur upp í koll­inum mis­mun­andi aðstæður sem geta komið upp þannig að maður hafi ákveðna mynd og geti séð fyrir sér atvik sem geta komið upp. Til dæmis ef maður er að hlaupa nýja braut, og veltir fyrir sér hvernig maður ætlar að takast á við, ef það verður vindur eða sól, fleiri brekkur en maður gerði ráð fyrir eða annað. Þetta er hluti af und­ir­bún­ingnum fyrir keppni. Maður getur gert svona hugs­un­ar­til­raunir og síðan ef við­kom­andi atvik kemur upp þá er maður kannski búinn að gera sér í hug­ar­lund hvernig maður ætlar að bregð­ast við.“ 

Hvað þarf til að kom­ast á þann stað sem þú ert á, að vinna hlaup, er það fyrst og fremst að vera með réttan fókus?

„Maður þarf að æfa stöðugt í langan tíma, ég held að það sé númer eitt. En það er ekki nóg að æfa, maður þarf líka að geta skilað góðum árangri í keppni og þá þarf haus­inn að vera í lagi, og setja sér raun­hæf mark­mið, ekki setja sér stórt mark­mið til að ná á stuttum tíma heldur færri og smærri á ákveðnum tíma og geta þá náð þeim til þess að ná lokamarkmið­inu og líka að taka þátt í keppn­is­hlaupum, „keep showing up“,“ segir Vignir. 

Margir bestu hlauparar heims frá ákveðnu svæði

Vignir hefur farið sjö sinnum í æfinga­búðir til Kenía. Þar er ýmis­legt sem hlauparar sækj­ast eftir.

„Kenía er Mekka hlaupanna. Margir fræg­ustu og bestu hlauparar heims eru frá Kenía. Flestir þess­ara hlaupara koma frá ákveðnu svæði í Kenía og eru af til­teknum ætt­bálki sem heitir Kalenjin, sem býr að mestu í vest­ur­hluta lands­ins. Þar hefur mynd­ast ákveð­inn kúltúr fyrir hlaupum sem margir sækja í. Hann er þannig að þegar þú ert á þessu svæði kemst lítið annað að en hlaup og að ná árangri,“ segir hann.

„Það eru margar ástæður fyrir því að kenísku hlaupararnir eru góðir, fyrir utan kúlt­úr­inn og lík­ams­bygg­ingu þeirra. Þetta svæði er í 2.400 m hæð en í svona mik­illi hæð fer lík­am­inn að mynda fleiri rauð blóð­korn sem lík­am­inn notar til að taka upp súr­efni. Þegar komið er til baka niður við sjáv­ar­mál þá er lík­am­inn að taka upp meira súr­efni og getur „per­for­mað“ betur eða hlaupið hraðar. Margir hlauparar frá Banda­ríkj­unum og Evrópu sækja til Kenía til að soga í sig þessa menn­ingu og maður fær líka orku frá fólk­inu sem er þarna á svæð­inu.“

„Það er gríð­ar­leg fátækt þarna og hlaupin eru ákveðin leið út úr fátækt­inni“
Vignir Már Lýðsson

Bærinn sem flestir eru í heitir Iten. Hann er nán­ast úti í sveit og sjást hlauparar á öllum stígum. „Það alast allir upp við að hlaupa þannig að það verður svo mikil menn­ing í kringum hlaupin. Á Íslandi fara allir í fót­bolta um fimm til sex ára ald­ur­inn og svo halda þeir áfram sem geta eitt­hvað en þarna fara allir í hlaup, prófa að hlaupa þannig að Ken­ía­menn enda alltaf með ýmsa góða hlaupara. Það er gríð­ar­leg fátækt þarna og hlaupin eru ákveðin leið út úr fátækt­inni, því þeir sem eru góðir hlauparar geta farið að keppa í Evrópu, Banda­ríkj­unum eða Asíu og unnið sér inn verð­launafé og annað slíkt.“

Vignir seg­ist hafa farið með ýmsum hlaup­urum til Kenía í gegnum árin, meðal ann­ars Bjart­mari Örnusyni, Arnari Pét­urs­syni, Elínu Eddu Sig­urð­ar­dóttur og Vil­hjálmi Þór Svans­syni og síð­ast með Andreu Kol­beins­dóttur.

Ógleymanlegt augnablik

„Það sem verður svo aug­ljóst í Iten er hversu ein­föld íþrótt hlaup eru. Þú ferð út á morgn­ana, reimar á þig skó og æfingin er byrjuð, og þannig er það hjá öllum, byrj­endum jafnt sem atvinnu­mönnum. Og það sem er svo skemmti­legt er að sjá þá bestu í heimi í nákvæm­lega sömu aðstæðum og þú ert sjálfar í,“ segir Vignir. 

Hlaupa­svæðiFlestir sækja æfinga­búðir í bænum Iten í vest­ur­hluta Kenía.

„Fyrir um 20 árum las ég bók­ina Train hard, win easy, eftir Toby Tanser, þar sem hann lýsir aðstæðum og lífi hlauparanna í Iten en ég heill­að­ist mikið af þeim lestri. Nú var ég kom­inn í sömu aðstæður og í bók­inni en við sáum oft fræga hlaupara á skokki og lifðum í raun svip­uðu lífi. Einn dag­inn var ég að hlaupa í hit­anum í hádeg­inu og það voru ekki margir á ferli, að hlaupa, enda mesta traffíkin snemma á morgn­ana. Ég hljóp fyrir horn á mal­ar­stíg rétt við lít­inn sveitabæ og úr hinni átt­inni beygði annar hlaup­ari sam­tímis inn á sama stíg og ég. Ég sá ekki hver þetta var strax en átt­aði mig fljótt á að þarna var Sifan Hassan, Ólymp­íu­meist­ari í mara­þoni, mætt. Ég hljóp með henni rúman kíló­metra þangað til hún beygði af leið, en augna­blik eins og þetta, að hlaupa einn með Ólymp­íu­meist­ara, er eitt af þessum mörgu litlu atvikum sem gera upp­lifun­ina á þessum stað svo eft­ir­minni­lega og hvetj­andi.“ 

Maraþonhlaup næst á dagskrá

Ýmislegt er fram undan hjá Vigni en hann er smám saman að ná sér af meiðslum sem hann lenti í og segir að utan­vega­hlaup gefi styrk fyrir þau. Hann hljóp Kaup­mann­ar­hafn­ar­m­ara­þonið um nýliðna helgi og er á leið í hálf­mara­þon í Helsinki þessa helgi. „Ég er ekki alveg í mínu besta formi. Ég meidd­ist fyrir tveimur árum og hef verið að koma til baka síðan, en ég er mjög bjart­sýnn fyrir þetta ár ég hef þá trú að þetta verði árið sem ég næ að kom­ast aftur inn í þetta æfinga­pró­gramm sem maður þarf að vera í. Meiðslin geta dregið dilk á eftir sér en ég ætla að fók­usera á æfingar og láta ráð­ast hvort ég taki þátt í mara­þonum eftir maí.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár