Spurningaþraut Illuga 2. maí 2025 – Hvaða fiskur er þetta? og 16 aðrar spurningar

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 2. maí

Spurningaþraut Illuga 2. maí 2025 – Hvaða fiskur er þetta? og 16 aðrar spurningar
Fyrri mynda­spurn­ing: Hvaða fiskur er þetta?
Seinni mynda­spurn­ing:Hvað heitir þessi karl?

  1. Í hvaða íþrótta­grein gerði Serena Williams garð­inn frægan?
  2. Hvað hefur hið svo­nefnda The Code/Nemo gert sér til frægðar?
  3. Frá hvaða landi koma vin­sælir sjón­varps­þættir sem kall­ast á ensku Squid Game?
  4. En hvað þýðir „squid“?
  5. Björk lék árið 2000 í bíó­mynd sem frægur danskur leik­stjóri gerði. Hvað heitir myndin?
  6. En hvað heitir leik­stjór­inn?
  7. Björk lék í mynd­inni verka­konu sem þarf að kljást við ákveðið heilsu­far­s­vanda­mál. Hún er sem sé að missa ... hvað?
  8. Björk mætti við Ósk­arsverð­launa­af­hend­ingu vegna mynd­ar­innar og klædd­ist þá kjól sem varð víð­frægur því hann var byggður á ákveðnu dýri. Hvaða dýri?
  9. En hvað heitir aftur hæsti foss á Íslandi?
  10. Hvaða ár er sagt að Berlín­ar­múr­inn hafi fallið?
  11. Þann 24. jan­úar 1895 varð ein­hver þeirra Leonard Kristen­sens, Carstens Borchgrevink (báðir Norðmenn) eða Alex­ander von Tunzelmanns (frá Nýja-Sjálandi) fyrstur til að stíga fæti sínum á ákveð­inn stað – svo öruggt sé talið. Hvaða staður var það?
  12. Hvaða eld­fjall gaus með látum á Íslandi sunn­an­verðu 1918?
  13. Khabane Lane, Charli D'Amelio og MrBeast (réttu nafni Jimmy Don­ald­son) eru vin­sælust allra ... hvar?
  14. Vara­for­seti Banda­ríkj­anna er ævin­lega nefndur JD Vance. Fyrir hvaða nöfn standa upp­hafs­stafirnir J og D? Hafa verður bæði nöfn rétt til að fá stig.
  15. Hann skrif­aði einu sinni bók um æskuár sín í til­teknum fjall­garði aust­ar­lega í Banda­ríkj­unum. Hvað nefn­ast þau fjöll?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er mar­hnútur. Á seinni mynd­inni er Modi, for­seti Indlands.
Svör við almennum:
1.  Tennis.  —  2.  Lagið vann Eurovision 2024.  —  3.  Suður-Kóreu.  —  4.  Smokk­fiskur. Kol­krabbi má vera rétt ef þið eruð í góðu skapi.  —  5.  Dancer in the Dark.  —  6.  Von Trier.  —  7.  Missa sjón­ina.  —  8.  Svani.  —  9.  Glymur.  —  10.  1989.  —  11.  Suð­ur­skauts­landið.  —  12.  Katla.  —  13.  Á TikTok. —  14. James David.  —  15.  Appalchiufjöll.
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár