Tvær ríkisstofnanir tókust á um upplýsingar

Verð­lags­stofa skipta­verðs fær ekki að­gang að gögn­um í vörslu Skatts­ins vegna at­hug­un­ar á upp­gjöri mak­ríl­ver­tíð­ar síð­asta árs. Skatt­ur­inn neit­ar að af­henda öll þau gögn sem stofn­un­in tel­ur sig þurfa. Um er að ræða tvær stofn­an­ir sem heyra und­ir sitt­hvort ráðu­neyt­ið.

Tvær ríkisstofnanir tókust á um upplýsingar
Makríll Deilan snýst um gögn sem Skatturinn er með og Verðlagsstofan telur sig þurfa vegna athugunar sinnar á makrílverðtíð síðasta árs. Mynd: Kvotinn.is

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá kæru Verðlagsstofu skiptaverðs sem laut að ákvörðun Skattsins um að synja stofnuninni um aðgang að gögnum um makrílútflutning. Ástæðan er að nefndin telur sig ekkert með samskipti á milli tveggja ríkisstofnanna að gera. 

Verðlagsstofa skiptaverðs, stofnun sem heyrir undir matvælaráðuneytið, kærði Skattinn, sem heyrir undir fjármálaráðuneytið, til ráðuneytisins, sem vísaði kærunni áfram til úrskurðarnefndarinnar í febrúar síðastliðnum. Var það liður í tilraun Verðlagsstofunnar til að fá afhent gögn sem varða athugun hennar á uppgjöri makrílvertíðar ársins 2024.

Skatturinn hafði áður afhent hluta gagnanna en synjaði um frekari afhendingu. Úrskurðarnefndin taldi málið ekki falla undir upplýsingalög þar sem Verðlagsstofan er sjálft stjórnvald. Með því hafi stofnunin ekki aðgang að kæruheimild á grundvelli upplýsingalaga og var málinu því vísað frá.

Niðurstaðan staðfestir að stofnanir ríkisins geta ekki krafist aðgangs að gögnum hjá öðrum stjórnvöldum á grundvelli upplýsingalaga.

Uppfært þar sem ranglega var sagt að Verðlagsstofa hafi …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Er ekki málið að það er búið að setja svo marga pólitíska hagsmunaverði inní nefndir að þær vinna gegn ríkjandi valdhöfum, samanber Heiða Björg og Rósa Guðbjarts.?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
1
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.
Smáþörungarnir sem eiga að breyta heiminum
6
Rannsókn

Smá­þör­ung­arn­ir sem eiga að breyta heim­in­um

„Með bein­teng­ingu okk­ar við Hell­is­heið­ar­virkj­un tekst okk­ur bók­staf­lega að breyta orku í mat­væli,“ full­yrti fram­kvæmda­stjóri Vaxa Technologies. Fyr­ir­tæk­ið bygg­ir á að hægt sé að rækta smá­þör­unga til að „um­bylta mat­væla­iðn­að­in­um“ og send­ir spiru­l­ina til vannærðra barna í Afr­íku. Ýms­ar spurn­ing­ar hafa hins veg­ar vakn­að um rekst­ur­inn, mark­aðs­setn­ingu og um­deilda út­reikn­inga á kol­efnisein­ing­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“
5
Viðtal

Dragdrottn­ing­in sem leit­aði skjóls á Ís­landi: „Ég hélt að þetta væru enda­lok­in“

„Þú læt­ur fólk aldrei sjá þig í dragi fyr­ir ut­an klúbb­ana,“ seg­ir Ray Milano, flótta­mað­ur frá Venesúela. Hann varð fyr­ir árás í heimalandi sínu þeg­ar hann skemmti sem dragdrottn­ing­in Cris­art­i­sta. Ray hafði lagt drag-hæl­ana á hill­una þeg­ar hon­um bauðst að koma fram með nýj­um ís­lensk­um vini sín­um, stór­stjörn­unni Páli Ósk­ari Hjálm­týs­syni.

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
2
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
5
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár