Spurningaþraut Illuga 11. apríl 2025 - Hver er hinn ungi júdókappi? - og 16 aðrar spurningar

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 11. apríl.

Spurningaþraut Illuga 11. apríl 2025 - Hver er hinn ungi júdókappi? - og 16 aðrar spurningar
Fyrri mynda­spurn­ing: Upp úr 1980 var þessi mynd tekin af tæp­lega 25 ára júd­ó­kappa. Tæpum 20 árum seinna varð hann heims­frægur, ekki fyrir júdó. Hvað hét hann?
Seinni mynda­spurn­ing:Hvar má finna þau lönd sem sjást á kort­inu?

  1. Hvað heitir höf­uð­borgin í Japan?
  2. Í mörg hund­ruð ár fram á 19. öld var það ekki keis­ar­inn í Japan sem réði mestu, heldur sá sem gegndi öðru emb­ætti, eins konar sam­bland af yfir­hers­höfð­ingja og for­sæt­is­ráð­herra. Hvað nefnd­ist emb­ættið?
  3. Vicuña, guanaco og alpaca eru þrjár dýra­teg­undir sem lifa á svip­uðum slóðum, ásamt einni teg­und til, sem er raunar lang­þekkt­ast af þeim frændsystk­inum. Hvað nefn­ist sú teg­und?
  4. Hver af þessum rit­höf­undum fékk EKKI Nóbels­verð­laun í bók­menntum þó öll hafi verið á lífi eftir að verð­launin voru stofnuð?: Winston Churchill – Selma Lagerlöf – Gabriel García Márquez – Knut Hamsun – Ernst Hemingway – Carl Spitteler – Leo Tolstoj.
  5. Jóhann Jónsson (1896–1932) ljóð­skáld og Vil­hjálmur Vil­hjálms­son (1945–1977), söngvaskáld og tón­list­ar­maður, urðu báðir mjög skamm­lífir og sökn­uðu þeirra margir. Þeir áttu eflaust margt sam­eig­in­legt en eitt sker sig þó úr, sem sé ... hvað?
  6. Í Mið-Asíu eru 5 fyrrum Sov­étlýð­veldi og enda nöfn þeirra öll á -stan. Þau eru Kasakstan, Tajikistan, Kyrgyzstan, Túrk­menistan og ... hvað heitir það fimmta?
  7. „Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn: Ég fann höfuð af hrúti ...“ og hvað?
  8. Hvaða sögu­frægu vélar voru af gerð­inni Massey Ferguson?
  9. Hann á íslenskan föður og rúss­neska móður, fædd­ist í Nes­kaup­stað en lfutti ungur í Árbæinn og er nú tón­list­ar­maður. Hvað heitir hann?
  10. Í hvaða landi ger­ist þriðja ser­ían af The White Lotus?
  11. Hvað heitir Ringo Starr réttu nafni?
  12. Í hvaða borg fædd­ist Banda­ríkja­for­set­inn Barack Obama?
  13. Sex ára flutt­ist Obama í annað land og bjó þar í fimm ár. Hvaða land var það?
  14. Ein fræg­asta kvik­mynda­stjarna heims fædd­ist í sömu borg og Obama, 6 árum síðar, þó hún flytti brátt líka til ann­ars lands. Hvaða kvik­mynda­stjarna er það?
  15. Margar mið­bæj­ar­rottur í Reykja­vík grétu þar sárt þegar bygg­inga­vöru­versl­unin Brynja var lögð niður fyrir fáeinum miss­erum. Einn af ráð­herrum í núver­andi rík­is­stjórn starf­aði þar við afgreiðslu í 12 ár, 1981 til 1993. Hver er ráð­herr­ann?
Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er hryðju­verka­mað­ur­inn Osama bin Laden. Á seinni mynd­inni eru löndin í Krúnu­leik­unum, Game of Thrones.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Tókíó.  —  2.  Sjógun.  —  3.  Llama-dýr.  —  4.  Tolstoj.  —  5.  Báðir ortu Söknuð.  —  6.  Úsbekistan.  —  7.  „... hrygg og gæru­skinn.“  —  8.  Trakt­orar.  —  9.  Daniil.  —  10.  Taílandi.  —  11. Richard Starkey.  —  12.  Honolulu á Havaí.  —  13.  Indónesía.  —  14.  Nicole Kidman.  —   15. Guð­mundur Ingi mennta- og barna­mála­ráð­herra.
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár