Hef áhyggjur af öryggi vina minna

Veroniku Tjörva Henry Rán­ar­dóttur hefur alltaf fund­ist skýin á Íslandi fal­leg og ætlar að búa á Íslandi á meðan óvissan í heim­inum eykst. Hún hefur áhyggjur af öryggi vina sinna í Banda­ríkj­unum í kjöl­far til­skip­ana Banda­ríkja­for­seta um rétt­indi trans fólks.

Hef áhyggjur af öryggi vina minna
Ronja Rán­ar­dóttir Veronika Tjörvi Henry Rán­ar­dóttir valdi nafnið sitt af því að henni finnst Veronika fal­legt nafn. En gælu­nafnið hennar er Ronja. Eins og ræn­ingja­dóttir, nema Rán­ar­dóttir. Mynd: Heimildin/Erla María

Ég er með ADHD og ein­hverfu og ég er trans. Ég valdi nafnið mitt af því að ég kann vel við nafnið Veronika. Gælu­nafnið mitt er Ronja, þegar ég var lítil las mamma Ronju ræn­ingja­dóttur fyrir mig og mér fannst það fyndið og skemmti­legt, þar sem mamma mín heitir Rán, að heita Ronja Rán­ar­dóttir.  

Ég ólst upp í Banda­ríkj­unum, Washington-ríki, en flutti til Íslands af per­sónu­legum ástæðum, mig hefur langað til að búa á Íslandi frá því ég var krakki. Mamma mín er íslensk og ég kom hingað í heim­sóknir. Mér hefur alltaf fund­ist skýin á Íslandi svo fal­leg. 

Ég er búin að búa á Íslandi í aðeins meira en ár. Ég er bara að vinna hérna á N1, ég geri ekki mikið annað, ég er ekki í skóla núna en mig langar að læra teikni­mynda­gerð og tölv­un­ar­fræði en ég þarf að læra meiri íslensku áður en ég get farið í háskól­ann. Í frí­tím­anum mínum finnst mér gaman að teikna og vera í tölvu­leikjum. Ég horfði líka á nokkra sjón­varps­þætti og pæli mikið í plott­inu og per­són­unum, stundum skrifa ég eigin sögur. 

„Ég hef áhyggjur af því að for­eldrar mínir eru ekki eins áhyggju­full og þau ættu að vera

Ég kom út sem trans þegar ég var 17 ára, ég hafði ekki mikla mögu­leika á að hugsa um það þegar ég var barn. Ég hef áhyggjur af öryggi vina minna í Banda­ríkj­unum eins og staðan er í dag. Flest þeirra eru hinsegin eins og ég. Washington virkar eins og ríki í felum þessa stund­ina en það virð­ist ekki vera öruggt utan þess þessa stund­ina. Ég hef áhyggjur af því að for­eldrar mínir eru ekki eins áhyggju­full og þau ættu að vera. Það fer aðeins eftir því hvernig allt þró­ast í heim­inum hvernig ég sé fram­tíð­ina fyrir mér. Ég held að ég verði áfram á Íslandi þar til annað kemur í ljós.“

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár