Breytt fæði breytti líðaninni

Krist­jana Páls­dóttir og Sigurður Pétur Harð­ar­son ákváðu í vetur að gera breyt­ingar á matar­æði sínu en þau áttu bæði við kvilla að stríða eins og háan blóð­þrýst­ing, svefn­vanda, voru of þung og fleira mætti telja. Árang­ur­inn hefur ekki látið á sér standa.

Breytt fæði breytti líðaninni

Eftir að þau Krist­jana Páls­dóttir og Sigurður Pétur Harð­ar­son gerðu breyt­ingar á matar­æði sínu segj­ast þau bæði finna mik­inn mun á líð­an­inni, sofa betur, melt­ingin sé betri auk þess sem þau hafa bæði lést og eru orku­meiri. Mælingar á til dæmis blóð­þrýst­ingi og fleira koma líka vel út. Þau borða hreina fæðu og gjörunn­inn matur fer ekki inn fyrir þeirra varir og telja að það sé komið til að vera. 

Hvers vegna ákváðuð þið að breyta um matar­æði? „Ég rakst fyrir til­viljun á íslenskan fyr­ir­lestur á net­inu sem vakti athygli mína. Þetta var kynn­ing á nám­skeiði sem heitir Heilsu­efl­ing Hildar sem átti að standa yfir í 16 vikur þar sem matar­æðið var tekið í gegn og mik­ill stuðn­ingur í gegnum netið meðan á því stóð. Ég var ekk­ert mjög illa stödd, en ég …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hildigunnur Svínafell skrifaði
    Ó hvað, ég vildi geta verið svona ströng við sjálfan mig..Er ein því maðurinn minn vill ekki taka þátt Grænmeti er ekki HANS og fleira þarna..Það er er erfiðara að hafa ekki annan með sér til að passa Agan,,og hjálpa til að halda rútínunni..
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Wow! Frábært hjá þeim. Held samt að heimabakað súrdeigsbrauð sé í góðu lagi.
    Sykurinn og hvíta hveitið eru sennilega skaðvaldurinn.
    0
    • Hildigunnur Svínafell skrifaði
      Hvíta hveitið er mjög slæmt,,sykurinn ekki betri,,,
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grunnstoðir heilsu

Lifum á tímum mikilla upplýsinga en aldrei verið óupplýstari
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Lifum á tímum mik­illa upp­lýs­inga en aldrei verið óupp­lýst­ari

Geir Gunnar Mark­ús­son nær­ing­ar­fræð­ingur segir að aukin tíðni lífs­stíls­sjúk­dóma kalli á heil­næmara fæði, meiri hreyf­ingu, nægan svefn og streitu­minni lífs­stíl. Hann telur að fæða okkar í dag sé að mörgu leyti verri en fyrir um 30 árum og að við höfum flækt matar­æðið. Þrátt fyrir mikið magn upp­lýs­inga þá gæti mik­illar upp­lýs­inga­óreiðu þegar kemur að nær­ingu. Geir Gunnar vill að fólk borði morg­un­mat til að stuðla að jafn­ari blóð­sykri og orku út dag­inn en morg­un­mat­ur­inn er á veru­legu und­an­haldi.
Hollt mataræði lykilatriði að góðri heilsu
FréttirGrunnstoðir heilsu

Hollt matar­æði lyk­il­at­riði að góðri heilsu

Axel F. Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur í hjarta­lækn­ingum, hefur skoðað tengsl fæðu og lífs­stíls við sjúk­dóma, einkum hjarta- og æða­sjúk­dóma. Talað hefur verið um að lífs­stíls­sjúk­dómar séu stærsta ógnin við heilsu fólks og heil­brigð­is­kerfi til næstu ára­tuga. Axel segir að fólk geti breytt miklu með hollu matar­æði og hreyf­ingu. Félags­leg tengsl séu líka mik­il­væg. Hann ráð­leggur hreina fæðu til að sporna við kvillum.
Hreyfing hefur forspárgildi um hvað við getum í framtíðinni
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Hreyfing hefur for­spár­gildi um hvað við getum í fram­tíð­inni

Dr. Hannes Hrafn­kels­son heim­il­is­læknir segir hreyf­ingu nauð­syn­legan hluta af þeim lífs­stíl sem allir eigi að hafa, einkum ef fólk vill við­halda sæmi­legum lífs­gæðum á efri árum, geta ferð­ast og búið lengur við sjálf­stæði. Hann segir hreyf­ingu geta seinkað sjúk­dómum, og jafn­vel komið í veg fyrir að fólk fái ein­hverja þeirra, en leggur áherslu á að hreyf­ing sé aðeins einn af mörgum þáttum í með­ferð margra sjúk­dóma og að hún þurfi að vera í rútínu okkar.
Eini Íslendingurinn til að hlaupa maraþon með tvö ígrædd líffæri
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Eini Íslend­ing­ur­inn til að hlaupa mara­þon með tvö ígrædd líf­færi

Kári Guð­munds­son fékk grætt í sig nýra og bris fyrir átta árum. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur fengið tvö líf­færi og náð að hlaupa heilt og hálf mara­þon eftir líf­færa­ígræðsl­una og það oftar en einu sinni. Kári hafði í raun mjög lítið hreyft sig í gegnum árin en nú hleypur hann og lyftir til að fá aukið úthald og styrk og seg­ist aldrei hafa verið í betra formi, það sýni allar mæl­ingar.
Það er eitthvað í samfélaginu sem ýtir undir kulnun
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Það er eitt­hvað í sam­fé­lag­inu sem ýtir undir kulnun

Streita er vax­andi vandi í nútíma­sam­fé­lagi og ekki óal­gengt að fólk fari í kulnun. Dr. Ólafur Þór Ævarsson er sjálf­stætt starf­andi geð­læknir og stofn­andi Streitu­skól­ans sem er hluti af heild­stæðri vel­ferð­ar­þjón­ustu Heilsu­verndar. Hann segir að for­varnir og fræðsla séu mik­il­vægir þættir til að fólk verði betur með­vitað um eigin heilsu og geti tekið ábyrgð og spornað við streitu en hún getur haft víð­tæk áhrif á fólk bæði lík­am­lega og and­lega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár