92 ár í dag frá leynifundinum sem kom Hitler til alræðisvalda í Þýskalandi

Þýskir nas­istar voru komnir með kansl­ara­emb­ættið en til að kné­setja lýð­ræðið þurftu þeir að vinna sigur í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum. En kosn­inga­sjóð­ur­inn var tómur.

92 ár í dag frá leynifundinum sem kom Hitler til alræðisvalda í Þýskalandi
Hið van­helga banda­lag: Gustav Krupp von Bohlen und Halbach og Hitler eftir að Krupp-fyr­ir­tækið gekk að fullu og öllu til liðs við nas­ista­stjórn Þýska­lands.

Á þessum degi, 20. febr­úar, fyrir 92 árum var hald­inn í höll rík­is­þings­for­set­ans í Berlínu leyni­fundur sem senni­lega mark­aði tíma­mót í þeirri atburða­rás er end­aði með að Adolf Hitler varð ein­ræð­is­herra Þýska­lands.

Og hleypti af stað seinni heims­styrj­öld­inni, hel­för­inni og fleiru.

Forsagan var í stuttu máli þessi:

Höll rík­is­þings­for­set­ans í Berlínen þar fór leyni­fund­ur­inn fram.

Heimskreppan sem skall á haustið 1929 olli því meðal ann­ars að fyr­ir­ferð­ar­mik­ill en fylg­is­lít­ill öfga­flokkur þýskra fas­ista tók risa­stökk upp á við í fylgi.

Kreppan olli miklu atvinnu­leysi í Þýska­landi og margir hugs­uðu sem svo: Þessi flokkur, NSDAP, Nas­ista­flokk­ur­inn, telur sig hafa úrræðin til að leysa vand­ann. Úr því öðrum flokkum hefur mis­tek­ist að ná stjórn á ástand­inu, hvernig væri þá að gefa nas­istum tæki­færi?

Eftir tvennar kosn­ingar voru nas­istar sum­arið 1932 komnir með rúm­lega 37 pró­senta fylgi á þýska þing­inu og hinn ofstæk­is­fulli leið­togi þeirra heimt­aði að fá völd í hendur. Honum var þó ekki hleypt nærri völd­unum enda fór hann ekk­ert í felur með að hann hugð­ist nota þau til að afnema lýð­ræðið í land­inu.

Fylgi við nasista minnkar

Um haustið 1932 minnk­aði fylgi nas­ista nokkuð í nýjum kosn­ingum og þó þeir væru áfram stærsti flokk­ur­inn á þingi var tölu­vert farið að sljákka í þeim. Efna­hag­ur­inn í land­inu sýndi aug­ljós bata­merki og ekki víst að kjós­endur myndu lengi sýna flokknum tryggð ef atvinnu­leysið færi snögg­lega að minnka.

Þá var flokk­ur­inn stór­skuld­ugur eftir þrennar þing­kosn­ingar og einar for­seta­kosn­ingar á rúmum tveim árum þegar ekk­ert hafði verið til sparað.

Og Hitler var nú ekki lengur óum­deildur innan flokks­ins.

Einmitt þá gerði hinn hægri­s­inn­aði valda­brölt­ari Franz von Papen þau hörmu­legu mis­tök að leiða Hitler — alveg að óþörfu! — til valda sem kansl­ara. Von Papen taldi að hann sjálfur gæti sem varakansl­ari nýtt sér fylgi Hitlers á þingi en króað hann sjálfan af í rík­is­stjórn­inni — þar sem Hitler hafði aðeins tvo ráð­herra auk sín.

Hitler og nas­istar yrðu sem þægir rakkar ann­arra hægri flokka í rík­is­stjórn­inni.

Stefnt að alræðisvöldum

En Hitler ætl­aði nátt­úr­lega alls ekki að láta króa sig af. Hann boð­aði til nýrra kosn­ing­anna dag­inn eftir að hann tók við kansl­ara­emb­ætt­inu 30. jan­úar 1933 og lagði nú allt undir. Kosn­ingar skyldu fara fram 5. mars og eina von Hitlers til þess að ná ein­ræð­is­völdum í land­inu, eins og hann stefndi ein­dregið að, var að Nas­ista­flokk­ur­inn fengi eftir kosn­ing­arnar hreinan meiri­hluta á þingi.

Þá gæti Hitler látið flokk sinn sam­þykkja svokölluð „heim­ild­ar­lög“ (á þýsku Ermächtigungsgesetz, á ensku Enabling Act) sem kveðið var á um í þýsku stjórn­ar­skránni en í þeim fólst í raun að Hitler gæti þá sem kansl­ari stjórnað með til­skip­unum án atbeina rík­is­stjórnar og þings.

Nasistar á hausnum!

Gallinn var sá að þótt Hitler væri vissu­lega sigri hrós­andi yfir því að vera kom­inn í kansl­ara­stól­inn, þá gat hann ekki verið öruggur með að fá meira en 50 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í mars.

Joseph Goebbelsvarð dapur í bragði þegar hann kíkti í kosn­inga­sjóð­inn.

Það var meira en að segja það að auka fylgið úr 33,1 pró­senti í kosn­ing­unum í nóv­em­ber 1932 — þegar það hafði sem sé dreg­ist saman úr 37,3 pró­sentum.

Og þegar Goebbels og aðrir nótar Hitlers fóru að und­ir­búa áróð­urs­her­ferð fyrir mars-kosn­ing­arnar, þá blasti við þeim mjög aðkallandi vanda­mál:

Skuldir flokks­ins voru orðnar svo miklar að hann átti varla til eitt ein­asta mark til að reka nýja kosn­inga­bar­áttu.

Nas­ista­flokk­ur­inn var sem sé á hausnum.

Grasrótarflokkur

Hér er rétt að líta ögn aftur í tím­ann.

Því er stundum haldið fram að þýski Nas­ista­flokk­ur­inn hafi frá upp­hafi verið gerður út af stór­gróss­erum, iðn­rek­endum og öðrum meg­in­kapít­alistum Þýska­lands til þess að klekkja á verka­lýðs­stétt­inni og bar­áttu­mönnum hennar meðal sós­í­alista og komm­ún­ista.

Í raun­inni er þetta ekki rétt. Nas­ista­flokk­ur­inn var sann­ar­lega sprott­inn upp úr gras­rót þjóð­ern­is­of­stopa­manna og Gyð­inga­hat­ara. Fáir raun­veru­legir auð­menn komu við sögu flokks­ins fyrstu miss­erin og árin.

Þeir voru til en þeir voru ekki margir.

Kreppan mikla breytir öllu

Á árunum 1923-1924 byrj­aði þetta svo­lítið að breyt­ast. Í umróti eft­ir­stríðs­ár­anna í Þýska­landi fóru komm­ún­istar mik­inn og þá ekki síður sós­í­alistar. Atvinnu­rek­endur og hægri­menn fóru þá smátt og smátt að líta á hinn uppi­vöðslu­sama Nas­ista­flokk Hitlers sem brjóst­vörn gegn upp­gangi vinstri­manna. Það voru þó aðal­lega smærri atvinnu­rek­endur sem styrktu nas­ista á þessum og næstu árum.

Adolf Hitlerátti pípu­hatt sem hann gat brugðið á haus­inn í sér­lega „fínum“ sel­skap.

Þeir allra rík­ustu héldu sig flestir fjarri og töldu sig hafna langt yfir nas­ista­hyskið. Ein­hverjir styrkir fóru þó úr þeirra ranni til nas­ista en engin ósköp.

Helstur þeirra sem studdu Hitler ríf­lega framan af var Fritz Thyssen for­stjóri risa­fyr­ir­tæk­is­ins Ver­einigte Stahlwerke.

Þetta fór ekki að breyt­ast að ráði fyrr en í ljós kom eftir að kreppan mikla skall á 1929-1930 að Nas­ista­flokk­ur­inn virt­ist í raun­inni vera orð­inn þess umkom­inn að verða alvöru afl í bar­áttu auð­mann­anna gegn vinstri­mönnum og sér í lagi verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Gerið Hitler að kanslara!

Þá byrj­uðu sum stór­fyr­ir­tækin að senda mörk og skild­inga í flokks­sjóði Hitlers, ekki síst eftir að Hitler féllst á fundi snemma árs 1932 á að hætta í mál­flutn­ingi sínum öllu sem mátti flokka sem minnsta gagn­rýni á atvinnu­rek­endur.

Það hafði meðal ann­ars þær afleið­ingar að í nóv­em­ber 1932 birtu nítján full­trúar stórra iðn-, fjár­mála- og land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja yfir­lýs­ingu þar sem þeir hvöttu Hinden­burg for­seta til að gera Hitler að kansl­ara; það væri affara­sæl­ast frá sjón­ar­hóli atvinnu­rek­enda og hægri­manna. En Hinden­burg hlust­aði ekki þá.

Samt voru það enn engin ósköp sem stór­kall­arnir létu af hendi til Hitlers og má marka það af því að þarna í febr­úar 1933, þegar mest á reið, þá voru flokks­sjóðir Nas­ista­flokks­ins galtómir og ekk­ert útlit fyrir að úr rætt­ist fyrir kosn­ing­arnar snemma í mars.

Safnað í kosningasjóð

Og þar sem ljóst er að ansi drjúgur hluti af vel­gengni Nas­ista­flokks­ins und­an­farin miss­eri staf­aði hrein­lega af vel heppn­aðri kosn­inga­bar­áttu sem kost­aði morð fjár — ekki síst leiga á flug­vélum sem Hitler þeytt­ist í um landið þvert og endi­langt — þá horfði nú ekki vel. Í dag­bókum áróð­urs­mála­ráð­herr­ans Goebbels kemur fram að þrátt fyrir óbilandi trú sína á Hitler var hann ekki bjart­sýnn um fram­haldið.

Krupp, IG Farben, AEG, BMW, Siemens ...

En þegar neyðin var stærst var hjálpin næst. Hjalmar Schacht fyrrum Seðla­banka­stjóri studdi nas­ista ákaft þegar þarna var komið sögu og hann gekk nú til þess verks að skipu­leggja leyni­legan fund 25 helstu stór­karl­anna í þýskum iðn­aði ann­ars vegar og Hitlers hins vegar.

Fund­ar­boðið var ein­falt: Nas­ista­flokk­ur­inn fór fram á að þeir auð­jöfr­arnir borg­uðu í kosn­inga­sjóð sinn þrjár millj­ónir marka.

Meðal þeirra sem mættu voru full­trúar flestra stærstu og öfl­ug­ustu iðn­fyr­ir­tækja Þýska­lands — Krupp, IG Farben, AEG, BMW, Opel, Siemens, Allianz ... þið sjáið list­ann yfir þátt­tak­end­urnar hér á Wikipediu.

Til sér­stakra tíð­inda telst að sjá full­rúa IG Farben þarna. Fyr­ir­tækið hafði oft sætt árásum af hendi nas­ista fyrir að gera vís­inda­mönnum af kyni Gyðinga hátt undir höfði.

Mikil áhersla á eignarréttinn

Eftir inn­gangs­orð gest­gjafa fund­ar­ins, Hermanns Görings rík­is­þings­for­seta, sem var sá nas­ista­leið­togi sem ríku karl­arnir kunnu einna best að meta, þá birt­ist Hitler sjálfur og hélt tölu sem stóð í hálfa aðra klukku­stund.

Hermann Göringfíl­aði ríku karl­ana og þeir hann.

Hann lagði þar hvað eftir annað áherslu á að nas­istar myndu alls ekki hrófla neitt við eign­ar­rétt­inum, sem væri heil­agur — en það var mik­ils virði í eyrum fund­ar­gesta sem ótt­uð­ust mjög að ein­hverjar þær ráð­staf­anir yrðu gerðar sem fælu í sér meiri eða minni þjóð­nýt­ingu á fyr­ir­tækjum þeirra.

Ríkir karlar þurfa ekkert að óttast

Allt slíkt var eitur í þeirra beinum en Hitler end­ur­tók oft í ræð­unni að þeir þyrftu ekk­ert að ótt­ast eftir að nas­istar næðu þeim alræð­is­völdum sem að væri stefnt.

Flokk­ur­inn myndi „bjarga þjóð­inni“, ekki síst með því að kveða lýð­ræðið í kút­inn enda hefði sýnt sig að það væri ófært um að leysa vanda­mál þjóð­ar­innar. 

Lýðræðið hefði ekki gert annað en hleypa komm­ún­istum upp á dekk. Nú væri sannað að einka­fram­tak og hinn heilagi eign­ar­réttur þrifust ekki í lýð­ræði. Lýðræðið yrði því að afnema og Nas­ista­flokk­ur­inn væri einn fær um að „kremja and­stæð­ing­ana algjör­lega“ — það er að segja verka­lýðs­hreyf­ing­una, komm­ún­ista og lýð­ræð­is­sinna.

Og síðan að end­ur­reisa mátt rík­is­ins út á við með mjög auk­inni her­væð­ingu.

Fyr­ir­tæki hinna við­stöddu iðn­jöfra myndu þá vita­skuld græða á tá og fingri á því að búa til vopn og her­búnað alls konar.

Það þurfti ekki einu sinni að taka fram.

„Munum halda völdum með öðrum leiðum“

Að lokum sagði Hitler að kosn­ing­arnar í mars yrðu „síð­ustu kosn­ing­arnar“ í Þýska­landi og gaf til kynna að þeir pen­ingar sem þeir iðn­jöfrar legðu fram til Nas­ista­flokks­ins myndu undir öllum kring­um­stæðum nýt­ast, því jafn­vel þótt hann ynni kannski ekki alveg afger­andi sigur í mars, þá myndi hann halda völdum „með öðrum leiðum … beita öðrum vopnum.“

Gustav Krupp von Bohlen und Halbachstýrði Krupp-verk­smiðj­unum sem möl­uðu gull á Hitlers­tím­anum.

Eftir ræðu Hitlers þakk­aði full­trúi risa­fyr­ir­tæk­is­ins Krupp þátt­tak­endum og lagði sér­staka áherslu á afdrátt­ar­lausa skuld­bind­ingu Hitlers við einka­eign­ar­rétt og varn­ar­mátt þjóð­ar­innar.

Að heyra það væri þeim 25-menn­ingum mik­ils virði.

Enginn ríku karlanna hafði áhyggjur af lýðræðinu

Enginn þátt­tak­enda hafði hins vegar minnstu áhyggjur af því þótt lýð­ræðið yrði ber­sýni­lega fótum troðið af nas­istum. Þeir voru ekki lýð­ræð­is­sinnar, þessir ríku karlar.

Hitler yfir­gaf nú fund­inn. Göring hélt aðra stutta ræðu þar sem hann benti á tóma­hljóðið í kosn­inga­sjóðum nas­ista og hvatti við­stadda til að rétta við fjár­hags­stöðu hans. Hann tók einnig fram að næstu kosn­ingar yrðu „örugg­lega þær síð­ustu næstu tíu árin,“ og það myndi í sjálfu sér draga úr þeim „fjár­hags­legum fórnum“ sem Hitler væri nú að fara fram á af iðn­jöfr­unum.

„Nú er gaman í vinnunni!“

Og nið­ur­staðan?

Jú, dag­inn eftir skrif­aði Goebbels í dag­bók­ina sína:

„Göring færir þær gleði­fréttir að þrjár millj­ón­irnar séu til reiðu fyrir kosn­ing­arnar. Stór­kost­legt! Ég gang­set áróð­urs­deild­ina á stund­inni. Eftir aðeins klukku­tíma eru vél­arnar farnar að malla. Nú fer í gang almenni­leg kosn­inga­bar­átta ... Í dag er gaman í vinn­unni. Pen­ing­arnar eru í húsi.“

Líka frá IG Farben.

Kannski hefði Hitler samt getað haldið völdum „með öðrum ráðum“ þótt hann hefði ekki lof­orð um pen­inga frá ríku körlunum á leyni­fund­inum 20. febr­úar 1933. En það er satt að segja vafa­samt.

Það átti margt eftir að ger­ast sem líka skipti máli, ekki síst bruni þing­húss­ins seint í febr­úar 1933. En leyni­fund­ur­inn í höll þing­for­set­ans og und­ir­lægju­háttur auð­kýf­ing­anna við Hitler skipti þó sköpum.

Lesendur geta svo dundað sér við að skoða hvort eitt­hvað af þess­ari atburða­rás kann að eiga við atburði nú 92 árum síðar.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Sá leynifundur sem fram fór í ársbyrjun 1933, nánar tiltekið 4. janúar að tilstuðlan þáverandi bankastjóra í Köln með helstu hagsmunaaðiljum þýska þungaiðnaðaðarins, forseta þýska herráðsins auk fulltrúum þýska nasistaflokksins, NSDAP, var stefnumarkandi fyrir áframhaldandi þróun sögunnar. Bankastjóri þessi bauðst til að greiða upp allar óreiðuskuldir NDSAP gegn því að Adolf Hitler og flokki hans yrði veitt brautargengi og undirbúningur lagður að valdatöku Nasista með stuningi þýska miðflokksins. Merkilegt hve miðflokkar koma víða við sögu. Um þetta mál er m.a. komið í meðfylgjandi grein sem birtist fyrir um 4 árum i Morgunblaðinu og fjallar um auðmanninn Adolf Hitler og valdatöku hans: https://timarit.is/files/47281847
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár